Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Engar vís­bendingar um kvikusöfnun en ríf­lega sjö hundruð skjálftar

Íbúar á suðvesturhorni landsins fundu margir vel fyrir snörpum jarðskjálfta sem reið yfir á öðrum tímanum í dag. Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana vera hluta af því sem kalla mætti „hefðbundna jarðskjálftavirkni vegna flekahreyfinga“ og að það séu engar vísbendingar um kvikusöfnun og þar af leiðandi ekki von á eldgosi bráðlega.

Fleiri bitnir af hundunum

Tveir lausir Border Collie-hundar réðust á fólk við Reynisvatn í Grafarholti um helgina. Þá fóru í það minnsta tvö upp á slysadeild í kjölfar árásanna en nú hafa fleiri sögur sem hljóða svipað litið dagsins ljós. Fjöldi fólks hefur lýst áhyggjum af þessum hundum og hafa margir sagt eiganda þeirra vanhæfan. Mál þar sem hundar bitu fólk rötuðu inn á borð MAST um helgina og var á laugardaginn kallað á lögregluna vegna hundanna.

Enn ekkert spurst til Hákonar

Enn hefur ekkert spurst til Hákonar Þórs Elmers, hins 53 ára föður sem hvarf sporlaust af flugvelli í Búdapest í apríl. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, vekur nú athygli á mannshvarfinu en Hákon er bróðursonur hans. 

Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu

Níu ára drengur og bekkjarsystkini hans hringdu eftir aðstoð þegar að eldri maður gerði ítrekað tilraunir til að lokka þau með sér úr búð í hverfi 104. Þá segir móðir hans frá því að hún vilji ekki ímynda sér hvað gæti hafa gerst ef einhvert þeirra hefði fallist á að fara með honum.

Dua Lipa gekk að eiga sinn heitt­elskaða

Breska tónlistarkonan Dua Lipa gekk í það heilaga í dag en hún og breski leikarinn Callum Turner voru fyrst orðuð við hvort annað snemma árs 2024 og staðfestu trúlofun sína í júní 2025. Athöfnin þótti verulega látlaus og var haldin í Old Marylebone Town Hall í London, sunnudaginn 31. maí.

Tveggja bíla á­rekstur á Suður­lands­braut

Tveggja bíla árekstur varð rétt eftir klukkan níu í kvöld þegar fólksbílar rákust á ofan við hringtorgið sem liggur að beygjunni inn á Suðurlandsbraut. Þá var umferð um gatnamótin stýrt af lögreglunni sem lokaði fyrir umferð í vestur um stund en hefur nú opnað aftur fyrir alla umferð. 

Tvö á slysa­deild eftir á­rás lausra hunda

Maður og kona sem fóru út að njóta veðursins í dag við Reynisvatn í Grafarholti fóru á slysadeild eftir að lausir hundar bitu þau til blóðs. Hundarnir voru tveir og af tegundinni Border Collie en eigandi þeirra var með þriðja hundinn í taum á göngu við Reynisvatn í Grafarholti. 

Senda loft­belgi á loft á hálf­tíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir

Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis.

Undir­búa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála

Veitur hafa stöðvað borun í Skammadal og vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila í kjölfar umræðu um mengun í Varmá. Leit að heitu vatni í dalnum, sem er í Mosfellsbæ, hefur valdið litabreytingum á vatninu í ánni. Á vef Veitna segir meðal annars að áhrif á ánna hafi orðið meiri en áætlað var við upphaf framkvæmdanna.

Líkams­á­rás á veitinga­stað í mið­borginni og um­fangs­mikill þjófnaður

Lögreglustöð eitt barst tilkynning um líkamsárás og eignaspjöll á veitingastað í miðborginni í dag en gerandinn var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Þá sinnti lögreglustöð þrjú, sem fær tilkynningar um mál í Kópavogi og Breiðholti, útkalli þar sem tveir menn áttu að hafa verið að stela miklu magni þýfis úr matvöruverslun. Rannsókn stendur enn yfir í báðum málum.

Sjá meira