„Þið eruð ekki ein“ Elísabet Englandsdrottning nýtti tækifærið í jólaávarpi sínu í gær til að fullvissa þau sem hafa átt erfitt, fjarri vinum sínum og fjölskyldu á þessu ári, um að þau séu ekki ein. Hún sagði að það sem marga langi í um jólin sé „einfalt faðmlag eða þétt handtak,“ en að „jafnvel dimmustu um nætur fylgi von með nýjum degi.“ 26.12.2020 09:49
Gömul bloggfærsla kom upp um „leynilegt vitni“ sem reyndist vera stuðningsmaður Trump Lögmaðurinn Sidney Powell vitnaði til vitnisburðar „leynilegs vitnis“ þegar hún fór þess á leit við Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa við ósigri Donalds Trump í forsetakosningunum vestanhafs. Vitnið leynilega er sagt vera fyrrverandi verktaki hjá leyniþjónustunni sem búi yfir upplýsingum um erlent samsæri um að grafa undan lýðræði. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að ónefnda vitnið reyndist vera hlaðvarpsstjórnandi og stuðningsmaður Trump sem áður hefur komist í kast við lögin fyrir að villa á sér heimildir. 25.12.2020 16:30
Vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag og óttast stóra bylgju eftir hátíðirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í Landakotskirkju. 25.12.2020 14:22
Þúsundir ljósmynda sem týndust í aurskriðunum fundust óskemmdar Þúsundir ljósmynda í eigu Tækniminjasafns Austurlands sem týndust í aurskriðunum á Seyðisfirði í síðustu viku fundust óskemmdar á Þorláksmessu. Hlé hefur verið gert á hreinsunarstarfi í bænum en því verður framhaldið eftir helgi. Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir að ástandið sé viðkvæmt en að vel sé fylgst með. 25.12.2020 14:02
Píratar íhuga vantrauststillögu á hendur Bjarna Þingflokkur Pírata hefur til skoðunar að leggja fram vantrauststillögu á hendur Bjarna Benedikssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kom fram í hádegisfréttum Rúv í dag þar sem haft var eftir Jóni Þór Ólafssyni, þingmanni Pírata og formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að vera Bjarna í of fjölmennu samkvæmi á Þorlásmessu sé til þess fallið að rýra traust í garð stjórnmálamanna. 25.12.2020 13:27
Neverland-búgarður Jackson seldur langt undir ásettu verði Neverland, búgarður poppstjörnunnar Michael Jackson heitins, hefur verið seldur fyrir 22 milljónir dollara, eða sem nemur rúmum 2,8 milljörðum íslenskra króna. Þrátt fyrir að upphæðin kunni að hljóma há er hún engu að síður ekki nema fjórðungur af upphaflegum verðmiða eignarinnar. Það mun hafa verið milljarðamæringurinn Ron Burkle sem keypti eignina en kaupin hafa verið sögð vera algjör „þjófnaður.“ 25.12.2020 12:54
Erlendir miðlar fjalla um veisluna í Ásmundarsal: „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra“ „Það er ekki bara kuldinn sem hefur látið íslenska fjármála- og efnahagsráðherrann roðna um eyrun.“ Svo hefst frétt danska miðilsins B.T. þar sem fjallað er um veru Bjarna Benediktssonar í fjölmennu samkvæmi á Þorláksmessu sem lögregla leysti upp. „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra: Var gripinn í stóru partýi af lögreglu,“ en svo hljóðar fyrirsögn fréttarinnar. 25.12.2020 11:48
Danska þjóðkirkjan leggur til að jólamessu verði aflýst Danska þjóðkirkjan hvatti til þess fyrr í kvöld, kvöldið fyrir aðfangadag, að öllum jólaguðsþjónustum fram til 3. janúar verði aflýst. Þetta þýðir að þjóðkirkjan mælist til þess að engar jólamessur fari fram á aðfangadag. Joy Mogensen, menningarmálaráðherra Danmerkur, styður þau tilmæli biskupsumdæma landsins, sem þjóðkirkjan tekur undir, um að rétt sé að aflýsa jólamessum. 23.12.2020 23:55
Björgólfur og Guy Ritchie njóta lífsins í svissnesku Ölpunum Svo virðist sem lífið hafi leikið við þá Björgólf Thor Björgólfsson og Guy Ritchie og eiginkonur þeirra Kristínu Ólafsdóttur og Jacqui Ainsley, í skíðaparadísinni St. Moritz í Sviss á dögunum. 23.12.2020 23:11
Héraðsbúar gerðu heimagerðan jólaís handa Seyðfirðingum Íbúar Múlaþings hafa margir hverjir tekið sig til að búið til heimagerðan jólaís og gefið Seyðfirðingum. Heldur óvenjuleg jól blasa við fjölmörgum Seyðfirðingum í ár í kjölfar náttúruhamfarananna sem þar hafa riðið yfir. 23.12.2020 21:53