Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca. 25.1.2021 23:44
Harriet Tubman verði andlit tuttugu dollara seðilsins sem fyrst Ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta hyggst leita leiða til að flýta ferlinu við að prenta peningaseðla með mynd af Harriet Tubman. Stjórn Donalds Trump, forvera hans í embætti, lét ákvörðun Baracks Obama þess efnis niður falla. 25.1.2021 23:09
Milljarða samkomulag í höfn um greiðslu bóta til minkabænda Samkomulag er í höfn milli dönsku ríkisstjórnarinnar og meirihluta flokka á þingi um greiðslu bóta vegna minkamálsins svokallaða. Samkomulagið tókst loksins í kvöld eftir ríflega tveggja mánaða viðræður og hljóðar það upp á 18,7 milljarða danskra króna, eða sem nemur tæpum 396 milljörðum íslenskra króna. 25.1.2021 21:46
Forsætisráðherra Ítalíu segir af sér á morgun en vonast til að mynda nýja stjórn Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hyggst segja af sér embætti á morgun. Conte vonast þó til þess að fá umboð frá forseta landsins til að mynda nýja og sterkari ríkisstjórn eftir að hann tapaði meirihluta í öldungadeild þingsins. 25.1.2021 20:15
Hátt í fjórtán þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca væntanlegir til landsins í febrúar Von er á 13.800 skömmtum af bóluefni frá AstraZeneca í febrúar, ef væntingar ganga eftir um að bóluefnið fái markaðsleyfi í Evrópu á föstudaginn. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn Rúv. 25.1.2021 19:30
Sigldi utan í Elliðaey Skuttogarinn Dala Rafn VE sigldi utan í Elliðaey við komu til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Eyjafréttir greina frá óhappinu en málsatvik eru sögð óljós að svo stöddu. 25.1.2021 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Þórólfur Guðnason ítrekaði á upplýsingafundi dagsins að fólk vandi sig við sóttvarnir og fari í sýnatöku við minnstu einkenni. Ástæðan er ótti við bakslag enda er faraldurinn í miklum vexti allt í kringum okkur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir stöðuna í nágrannalöndunum og fjöllum nánar um þrjú afbrigði veirunnar sem talin eru ein aðalástæða fleiri smita og dauðsfalla í heiminum. 25.1.2021 18:01
John Snorri þurfti að snúa við en ætlar seinna á toppinn Fjallagarpurinn John Snorri Sigurjónsson og föruneyti hans, sem hélt af stað á topp K2 á laugardaginn, neyddust til að snúa við vegna veðurs og tókst ekki að ljúka för sinni á toppinn. Teymið er komið aftur í grunnbúðirnar og eru allir heilir á húfi. 25.1.2021 17:59
Ákvörðun um að gefa nemanda núll í prófi vegna meints prófsvindls felld úr gildi Ákvörðun deildarforseta við raunvísindadeild Háskóla Íslands um að gefa nemanda núll í einkunn á lokaprófi í lífrænni efnafræði vegna meints prófsvindls hefur verið felld úr gildi. Ákvörðun um að veita nemandanum ekki rétt til endurtökuprófs og að veita honum áminningu hefur einnig verið felld úr gildi. Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndar kærumála háskólanema sem birtur var í dag. 25.1.2021 17:39
Vettlingarnir frægu ekki til sölu Jen Ellis, kennarinn sem gerði vettlingana sem Bernie Sanders klæddist við innsetningarathöfn Joe Bidens, segir slíka vettlinga ekki vera til sölu. Sjálfur hefur Sanders reynt að nýta þessa óvæntu frægð myndarinnar af sér með vettlingana til góðs. 24.1.2021 23:18