„Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Óvissa ríkir um hvenær fyrirhuguð gjaldtaka á bílastæðum við innanlandsflugvelli hefst, sem átti að hefjast í vikunni. Málið strandar hjá fjármálaráðherra sem hefur ekki undirritað þjónustusamning sem þegar hefur verið endurnýjaður milli innviðaráðuneytisins og Isavia. Þetta setur Isavia í einkennilega stöðu að sögn framkvæmdastjóra Isavia innanlandsflugvalla. 18.6.2024 12:31
Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Hundrað og fimmtíu aðgerðir voru kynntar í nýrri áætlun í loftslagsmálum í dag. Hún felur í sér grundvallarbreytingu í nálgun stjórnvalda hvað varðar samtal við atvinnulíf og sveitarfélög um loftslagsmál. Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu uppfærða útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag. Aðgerðaáætlunin samanstendur af 92 loftslagsaðgerðum og 58 loftslagstengdum verkefnum. 14.6.2024 21:01
„Þetta er óboðlegt og það á að hafa afleiðingar“ Það er algjörlega fráleitt að ráðherrar reyni að beita sér gegn lögreglu og ráðherra sem það gerir þarf að sæta ábyrgð. Þetta segir þingmaður Viðreisnar. Ríkisstjórnin þurfi að sameinast um stefnu um verslun með áfengi, svo íslensk fyrirtæki sitji við sama borð og erlend. Heilbrigðisráðherra telur fjármálaráðherra ekki hafa gert mistök með því að senda erindi um málið til lögreglu. 13.6.2024 19:01
Iðnaðarnjósnir raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki Svokallaðar iðnaðarnjósnir eru raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Utanríkisráðherra lítur það alvarlegum augum að hópar netþrjóta beiti njósnum hér á landi. 9.6.2024 21:00
Lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum í tengslum við vændisrannsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í aðgerðir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku í tengslum við vændisrannsókn. Höfð voru afskipti af og rætt við nokkurn fjölda einstaklinga sem tengjast auglýsingum fyrir vændi. 9.6.2024 19:04
Þremur skipverjum verið sleppt úr haldi Enginn er í varðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot sem sagt er tengjast skipverja á grænlenska frystitoganum Polar Nanoq. RÚV greindi frá því í gær, samkvæmt heimildum, að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi handtekið skipverja vegna gruns um kynferðisbrot og að fleiri skipverjar hafi verið yfirheyrðir. 9.6.2024 10:56
Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga rann með miklum krafti yfir Grindavíkurveg í dag, eftir að hraunflæði jókst skyndilega í nótt. Hraunbreiðan er nú í um áttahundruð metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt áfram. 8.6.2024 22:53
Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. 8.6.2024 21:00
„Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ Maðurinn sem réðist á Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. júní. Utanríkisráðherra Íslands segir uppákomuna alvarlega. Árás á lýðræðislega kjörna fulltrúa sé árás á lýðræðið. 8.6.2024 14:16
Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Það er raunveruleg hætta á að Vinstri græn kveðji íslensk stjórnmál og fari í sögubækurnar, nái flokkurinn sér ekki á strik fyrir næstu kosningar. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir einnig athyglisvert að landsfundur verði ekki haldinn fyrr en í október. 8.6.2024 13:01