Hafnar því að nokkuð saknæmt sé í greininni um MAST Ester Hilmarsdóttir hafnar því alfarið að nokkuð saknæmt sé að finna í skrifum hennar um „glyðrugang eftirlitsstofnana“ en forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn hennar hafa kært ummælin til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Greint var frá því fyrr í dag. 28.8.2024 17:44
Annar skemmdarvargurinn handtekinn en hinn á bak og burt Tvo daga í röð voru framin eignaspjöll í og við bygginguna sem stendur við Guðrúnartún 1 í Reykjavík. Í gærmorgun braust þangað inn maður sem braut rúðu og olli öðrum eignaspjöllum innandyra og á mánudagsmorgun gekk annar maður berserksgang fyrir utan húsið, braut þar flísar af klæðningu hússins og framdi önnur skemmdarverk á bílastæðinu við húsið. 28.8.2024 14:54
Þrír nýir ráðherrar í Danmörku: „Við erum farin inn að spila skák“ Þrjú ný ráðuneyti verða stofnuð í Danmörku og næsti fulltrúi Dana í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur verið valinn. Mette Frederiksen forsætisráðherra tilkynnti um þetta í hádeginu í dag á blaðamannafundi ásamt þeim Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra og Lars Løkke Rasmusen utanríkisráðherra en saman mynda flokkar þeirra ríkisstjórn landsins. 28.8.2024 12:43
Hreyfill gerir sátt við Samkeppniseftirlitið eftir kvörtun Hopp Samkeppniseftirlitið og leigubílafyrirtækið Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt vegna háttsemi Hreyfils sem fólst í því að banna leigubifreiðastjórum sem eru í þjónustu hjá Hreyfli að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar Hopp leigubílum ehf. til eftirlitsins vegna háttsemi Hreyfils. Í sáttinni felst meðal annars að Hreyfill muni ekki hindra að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir stöðina nýti sér einnig aðra þjónustuaðila sem sinna leigubílaakstri. 28.8.2024 11:32
Æfa björgun á hafi, flutning slasaðra og pólsk flugskeytakerfi Norður-Víkingur, tvíhliða varnaræfingin Íslands og Bandaríkjanna, er nú í fullum gangi og mun standa yfir í og við Ísland fram yfir helgi. Fleiri bandalagsþjóðir taka einnig þátt í æfingunni en á næstu dögum verður meðal annars æfð björgun á hafi úti og flutningur á slösuðum með þyrlum til Keflavíkur. 28.8.2024 10:55
Kæra meintar aðdróttanir um mútuþægni til lögreglu Forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn stofnunarinnar hafa sent kæru til lögreglunnar á Norðurlandi eystra á hendur einstaklingi sem stofnunin segir hafa haft uppi aðdróttun um mútuþægni. 28.8.2024 09:48
„Við þurfum bara að læra að segja nei“ Leiðsögumaður, ferðaþjónustufyrirtæki, ferðasölufyrirtæki og þjóðgarðurinn Vatnajökull brugðust í aðdraganda slyssins á Breiðamerkurjökli þar sem tveir bandarískir ferðamenn lentu undir ís í fyrradag. Þetta er mat Stephan Mantler jöklaleiðsögumanns sem hefur áratuga reynslu af jökla- og fjallamennsku á Íslandi. 27.8.2024 22:36
Kona á sjötugsaldri dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag til að sækja konu á sjötugsaldri sem hafði verið dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru. Konan var komin til meðvitundar áður en hún var sótt með þyrlu og send til skoðunar á sjúkrastofnun. 27.8.2024 16:29
Engar fundargerðir um tjón á kvíum og einn dagur í starfsþjálfun Matvælastofnun fann sjö frávik, þar af fimm alvarleg, í reglubundinni úttekt stofnunarinnar á starfstöð fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði í vor. Að mati stofnunarinnar voru alvarleg frávik frá gæðakröfum hvað varðar eldisbúnað, þjálfun starfsfólks, gæðahandbók og innra eftirlit og úttektir. Þá gerir MAST einnig athugasemdir við eftirlit og viðgerðir fyrirtækisins á netapokum og við verklagsreglur. 27.8.2024 15:11
Hersveitir, herskip og flugvélar á sveimi við Ísland næstu daga Varnaræfingin Norður-Víkingur, tvíhliða varnaræfing Íslands og Bandaríkjanna, hófst í gær og stendur yfir til þriðja september. Æfingin fer fram hér á landi og á hafsvæðinu umhverfis Ísland en auk Íslands og Bandaríkjanna taka þátt í æfingunni bandalagsríkin Danmörk, Frakkland, Holland, Noregur, Pólland og Portúgal. Þá tekur hluti fastaflota Atlantshafsbandalagsins þátt í æfingunni. 27.8.2024 14:17