Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra vegna storms og mikillar rigningar. Viðvaranirnar verða í gildi í allan dag og fram á kvöld. 25.9.2026 07:31
Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Ástralska leikkonan Margot Robbie hefur breytt nafni sínu í Margot Ackerley. Hún giftist Tom Ackerley, kvikmyndaframleiðanda, fyrir tíu árum en hélt áfram að nota sitt eftirnafn. Búist er við því að hún muni halda áfram að nota Robbie-nafnið opinberlega og í starfi. 25.9.2026 06:54
Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Maður var handtekinn í gær eða nótt í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en ekkert fleira kemur fram um málavexti. 25.9.2026 06:18
Mikill munur á afkomu almannatengla Þrjú af sjö helstu fyrirtækjum landsins sem sérhæfa sig í almannatengslum skiluðu tapi á síðasta ári. Þrjú þeirra skiluðu hagnaði og eitt hefur ekki skilað ársreikningi. 24.9.2026 12:50
Høiby skiptir um verjendur Nýir verjendur munu fara með mál Mariusar Borg Høiby, stjúpsonar Hákons VIII Noregskonungs, þegar þau verða tekin fyrir að nýju fyrir dómstólum eftir áfrýjun. Verjendurnir segjast ætla að leggja fram sönnunargögn sem ekki hafa sést áður og fá ný vitni til að gefa skýrslur fyrir dómi. 24.9.2026 08:00
Greiðir sér hálfan milljarð í arð Sögn ehf., félag leikstjórans og kvikmyndaframleiðandans Baltasars Kormáks Baltasarssonar, hagnaðist um 340 milljónir árið 2025. Árið 2024 greiddi hann sér 510 milljónir í arð og í ár gætu arðgreiðslurnar numið 550 milljónum. 24.9.2026 07:01
Rigning og vindur Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld. 24.9.2026 06:40
Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 24.9.2026 06:21
„Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst. 23.9.2026 07:34
Gular viðvaranir á morgun Í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Suður- og Austurlandi vegna austan storms og mikillar rigningar. Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu. 23.9.2026 06:57