Starfsfólk elti mann sem hafði stolið úr verslun Starfsfólk verslunar í Kópavogi hringdi í lögreglu klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi eftir að maður hafði stolið úr búðinni. Starfsfólkið hafði elt manninn en lögreglan hafði síðar afskipti af honum og vettvangsskýrsla rituð. 22.9.2022 06:31
Útgerð Stefnis hætt og þrettán manns sagt upp Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. (H-G hf.) hefur ákveðið að hætta útgerð ísfisktogarans Stefnis ÍS 28 vegna samdráttar í úthlutuðu aflamarki þorsks. Þrettán manna áhöfn Stefnis verður sagt upp frá og með áramótum. 21.9.2022 12:35
Breyta nafni hótelkeðju Icelandair og Flugleiða Nafnabreytingu á Flugleiðahótelum hf. og keðju Icelandair Hótela er lokið, en nýir eigendur félagsins, Berjaya Land Berhard (Berjaya), gerðu samkomulag við fyrri eigendur, Icelandair Group, um að láta af notkun vörumerkis þess síðarnefnda að lokinni sölu hótelfélagsins. 21.9.2022 11:50
Hjóli Gísla Arnar stolið þrátt fyrir lás af dýrustu gerð Hjóli leikarans Gísla Arnar Garðarssonar var stolið fyrir utan Borgarleikhúsið í laugardagskvöld á meðan Gísli var að sýna sýninguna Ég hleyp. Það tók þjófinn aðeins örfáar sekúndur að nappa hjólinu. 21.9.2022 11:36
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. 21.9.2022 11:21
Úthverfatófan ekki hættuleg mönnum Tófan sem sást á flakki um Breiðholtið fyrr í vikunni hefur sést bæði í Árbænum og Grafarholti síðan þá. Dýraþjónusta Reykjavíkur segir enga ástæðu til að óttast tófuna en varar fólk þó við að reyna að klappa henni. 21.9.2022 09:09
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21.9.2022 08:07
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. 21.9.2022 07:40
Konur brenna slæður sínar í Íran Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar. 21.9.2022 07:13
Talinn vera innbrotsþjófur en var í raun húsráðandi Klukkan hálf tíu í gær barst lögreglu tilkynning um yfirstandandi innbrot á heimili í Grafarholti. Lögreglan mætti á svæðið en þá kom í ljós að innbrotsþjófurinn var í raun húsráðandi og hafði læst sig úti. 21.9.2022 06:51