Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Yfir sjö þúsund kylfingar tóku þátt í Regluverðinum, leik Varðar og Golfsambands Íslands um golfreglur, í sumar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Verði. 4.9.2026 10:30
Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Reykjavíkurborg ætlar að gefa uppbyggingaraðilum meira svigrúm til að ákveða stærð og herbergjafjölda íbúða og draga úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum. Samfylkingin segir breytingarnar veikja skipulagsramma borgarinnar og geta gert áætlanir um innviði ómarkvissar. 3.9.2026 16:33
Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018. 3.9.2026 16:21
Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Breyta á reglum Vikinglottó þannig að annar vinningur safnist ekki lengur upp milli vikna þegar enginn vinnur hann. Féð fer þess í stað í varasjóð sem er notaður til að tryggja og hækka fyrsta vinning. 3.9.2026 14:45
Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur samþykkti í gær að fella niður bindandi hámark á fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar. 3.9.2026 13:48
Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Stjórnvöld vilja breyta lögum um kílómetragjald eftir reynsluna af fyrstu átta mánuðum kerfisins. Skuld fyrri eiganda á ekki lengur að geta stöðvað aðalskoðun bíls og Skatturinn á að fá skýrari heimild til að leiðrétta rangt reiknað gjald. 3.9.2026 13:18
Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Lögregla fengi meira svigrúm til að rannsaka skipulagða brotahópa samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Meðal annars yrði auðveldara að leita í símum, leggja hald á eignir og hefja símhlustun þegar hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir núverandi lög ekki passa við það hvernig brotahópar starfa í dag. 3.9.2026 13:03
Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Gjaldskyldutími á bílastæðum á P1 og P2 svæðum í Reykjavík verður styttur um eina klukkustund á kvöldin samkvæmt tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Ráðið samþykkti jafnframt að bílahús borgarinnar verði opin allan sólarhringinn alla daga ársins. 2.9.2026 16:55
Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst. Hann taldi að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að áhrif hárra vaxta væru farin að koma skýrt fram í hagkerfinu. 2.9.2026 16:32
Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu. 2.9.2026 15:16