Arion eignaðist 1,2 prósent í Marel með innlausninni Forstjóri Marel síðustu tíu ár er hættur eftir að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest stærsta hluthafa í fyrirtækinu. Arion banki eignast næstum fimm prósent í fjárfestingarfélaginu eftir innlausnina. 8.11.2023 13:01
Golfkylfurnar of þungar og skatan eins og lambakjöt Fjölskyldumaður sem var með þeim fyrstu til að veikjast af Covid-19 hér á landi hefur enn ekki getað snúið aftur til starfa vegna heilsubrests. Hann er meðal þúsunda annarra Íslendinga sem glíma við langvarandi veikindi af slíkri sýkingu og hvetur heilbrigðiskerfið til að halda betur utan um hópinn. 7.11.2023 20:01
Húsnæðisverð hækki mest á Íslandi og fyrstu kaupendur í vanda Fyrstu kaupendur eiga erfiðara með að kaupa sér húsnæði nú en eldri kynslóðir og fyrir einhverja hópa er það nánast vonlaust. Dósent við HÍ telur Seðlabankann bera ábyrgð á þessari þróun með vaxtaákvörðunum síðustu ár. Mannfjöldaþróun sé einnig stór áhrifavaldur. 6.11.2023 13:01
Skotin höfnuðu á fjórum stöðum Sex hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í fyrrinótt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Dómsmálaráðherra er gríðarlega brugðið yfir málinu. Nauðsynlegt sé að bregðast við. 3.11.2023 19:00
Tveir urðu fyrir skoti í árásinni við Silfratjörn Tveir ungir menn urðu fyrir skotum í skotárásinni í Úlfarsáradal í gær, annar særðist en hinn fékk skrámu. Um er að ræða deilur milli tveggja hópa sem ólíklegt er að sjái fyrir endann á. Lögregla kannar hvort auka þurfi viðbúnað í höfuðborginni vegna málsins. 3.11.2023 11:50
„Allt starfsfólk meðvitað um þennan harmleik“ Mikill viðbúnaður hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna leitar að manni sem er grunaður um skotárás við fjölbýlishús í nótt þar sem einn særðist. Líðan hins særða er sögð góð eftir atvikum en hann er ekki í lífshættu. Í árásinni var einnig skotið á nærliggjandi hús og bíl. Lögreglan telur atlöguna tengjast útistöðum tveggja hópa. 2.11.2023 19:31
Lögregla gefur ekkert upp um þá handteknu Þrír hafa verið handteknir vegna skotárásar í fjölbýli í Úlfarsárdal í nótt. Einn særðist en líðan hans er sögð góð eftir atvikum. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í dag vegna málsins. Lögregla gefur ekki upp hver aðild þeirra handteknu að málinu er. 2.11.2023 18:47
Best að Bjarni og Katrín tali beint saman um tíma og klukkur Innviðaráðherra segir engan ágreining innan ríkisstjórnarinnar um afstöðu Íslands til átakanna á Gasa. Það sé hins vegar skynsamlegra í slíkum málum að heyra beint í hvort öðru. Utanríkisráðuneytið segist hafa látið forsætisráðuneytið vita fyrr af afstöðu Íslands í málinu en komið hefur fram í svörum forsætisráðherra. 31.10.2023 12:24
Farsakennd atburðarás um atkvæðagreiðslu Forsætisráðherra barst tölvupóstur um ákvörðun um hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu um vopnahlé á Gasa, nokkrum mínútum áður en hún fór fram hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún segir að ekkert samráð hafi verið haft við sig. Utanríkisráðherra telur ferlið hefðbundið. Stjórnarandstaðan segir málið nærri fordæmalaust. 30.10.2023 19:01
„Þetta er blóðugt“ Algengt er að afborganir á óverðtryggðum fasteignalánum hafi meira en tvöfaldast milli ára. Kona sem keypti sér íbúð fyrir þremur árum segir blóðugt að á sama tíma og afborganir hafi snarhækkað sé eignamyndun minni en áður. 27.10.2023 19:01