Fyrstu smitin í álfunni frá upphafi faraldursins Suðurskautslandið getur ekki lengur státað af því að vera eina heimsálfan sem hefur verið laus við kórónuveiruna. 36 menn frá Chile, sem staðsettir eru á Suðurskautslandinu, greindust með kórónuveiruna í gær. 22.12.2020 10:00
Atvinnuleysi mælist nú 7,1 prósent Alls voru 14.900 einstaklingar atvinnulausir í nóvember 2020, eða 7,1 prósent af vinnuaflinu. Atvinnuleysi hækkaði milli mánaða. 22.12.2020 09:24
Fjórir ákærðir vegna eldanna á Frasereyju Fjórir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að hafa kveikt elda sem urðu til þess að gríðarlegir gróðureldar blossuðu upp á Fraserayju, austur af meginlandi Ástralíu, í haust. Eyjuna er að finna á heimsminjaskrá UNESCO. 22.12.2020 08:42
Munu opna á vöruflutninga um Ermarsundsgöngin Breski forsætisráðherrann Boris Johnson og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafa náð samkomulagi um að opna landamæri ríkjanna að nýju. 22.12.2020 08:15
Morðingi Grace Millane sakfelldur fyrir fleiri árásir gegn konum Maðurinn sem myrti breska bakpokaferðalanginn Grace Millane á Nýja-Sjálandi hefur verið sakfelldur fyrir tvær árásir til viðbótar gegn konum. 22.12.2020 07:37
Ungverskir stjórnarandstöðuflokkar snúa bökum saman Stjórnarandstöðuflokkarnir í Ungverjalandi hafa ákveðið að snúa bökum í baráttunni gegn forsætisráðherranum Viktor Orbán og Fidesz-flokki hans. Þingkosningar fara fram í landinu árið 2022. 21.12.2020 14:23
Petter Northug dæmdur í sjö mánaða fangelsi Dómstóll í Noregi dæmdi í dag gönguskíðakappann Petter Northug í sjö mánaða óskilorðsbundið fangelsi og ævilanga ökuleyfissviptingu fyrir ofsaakstur og vörslu fíkniefna. 21.12.2020 13:19
Danska þingið samþykkir bann við minkarækt út næsta ár Meirihluti danska þingsins samþykkti í morgun frumvarp sem felur í sér bann við alla minkarækt í landinu út næsta ár. 21.12.2020 12:39
Dæmdur fyrir árásina á bænahús gyðinga í Halle Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt karlmann í lífstíðarfangelsi fyrir árás sína á bænahús gyðinga í borginni Halle í október á síðasta ári. 21.12.2020 12:05
Friðarsúlan mun loga næstu mánuði „í ljósi aðstæðna“ Ákvörðun hefur verið tekin um að Friðarsúlan i Viðey muni loga næstu mánuði „í ljósi aðstæðna í heiminum“. 21.12.2020 11:32