Varaformaðurinn sagður nú sækjast eftir sæti á lista Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfrulltrúi og varaformaður Samfylkingar, er sögð hafa látið þau boð berast til uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar í Reykjavík að hún sé reiðubúin taka sæti á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar. 5.2.2021 07:56
Suðaustlægar áttir ríkja enn um sinn Suðaustlægar áttir ríkja á landinu enn um sinn með strekkingi eða allhvössu við suður- og vesturströndina og stöku él með hita kringum frostmark á þeim slóðum. 5.2.2021 07:10
Hyggja á framleiðslu þátta um Karl Gústaf í anda The Crown Til stendur að ráðast í gerð sjónvarpsþátta í anda The Crown sem eiga að fjalla um ævi Karls Gústafs Svíakonungs. 4.2.2021 15:15
Kaupa Esso-húsið á 1,2 milljarða króna Félag hjónanna Birgis Bieltvedt fjárfestis og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, Eyja fjarfestingarfélag, hefur keypt fasteignina við Suðurlandsbraut 18, Esso-húsið svokallaða, af fasteignaþróunarfélaginu Festi. Kaupverðið er 1,2 milljarðar króna. 4.2.2021 14:52
Gréta María ráðin framkvæmdastjóri hjá Brimi Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Krónunnar, hefur verið ráðin sem framkvæmstastjóri Nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Brimi. 4.2.2021 14:23
Gjörólíkir öskudagar í Kringlunni og Smáralind Stjórnendur Kringlunnar stefna á að geta boðið börn í nammileit velkomin og vera með dagskrá fyrir þau á Öskudaginn sem haldinn er 17. febrúar í ár. Rekstraraðilar verslana í Kringlunni hafa í pósti verið hvattir til að vera með glaðninga þegar börnin mæta. Stjórnendur Smáralindar hafa hins vegar ákveðið að blása af hátíðahöldin að þessu sinni vegna heimsfaraldursins. 4.2.2021 13:38
Guðni og Eliza til Egilsstaða og Seyðisfjarðar Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda til Egilsstaða síðar í dag og heimsækja svo Seyðisfjörð á morgun. 4.2.2021 10:41
Fox gróf upp viðtal Jóhanns Bjarna við Kerry í umfjöllun um flugvélaeign fjölskyldunnar Bandaríska fréttastofan Fox birti í gær frétt þar sem stuðst er við viðtal Jóhanns Bjarna Kolbeinssonar, fréttamanns RÚV, við John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og núverandi erindreka Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum, frá þeim tíma þegar hann var staddur á Íslandi árið 2019. Í fréttinni er einkaþotueign fjölskyldu Kerry til umfjöllunar. 4.2.2021 10:24
Segir skilið við Venstre Inger Støjberg, þingkona Venstre í Danmörku og fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, hefur skráð sig úr flokknum. Hún heldur áfram á þingi sem óháður þingmaður. 4.2.2021 09:34
Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Menntadagur atvinnulífsins fer fram í dag og hefst dagskráin klukkan níu. Þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn og verður hægt að fylgjast með í streymi í spilara að neðan. Fundurinn stendur yfir í klukkustund. 4.2.2021 08:31