Beittu varnarúða á mann með hníf í austurbænum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu beitti varnarúða til að yfirbuga mann sem fór ekki að fyrirmælum lögreglu í austurbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. 6.10.2023 06:18
Lögmaður hjá SA nýr aðstoðarmaður Guðrúnar Árni Grétar Finnsson, lögmaður á efnahags- og samkeppnishæfnissviði Samtaka atvinnulífsins, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Hreinn Loftsson lét nýverið af störfum sem aðstoðarmaður ráðherrans. 5.10.2023 14:13
Bregðast við ítrekuðum seinkunum leiðar 14 Til stendur að leggja niður strætóstoppistöðina Hólsveg sem er að finna á horni Langholtsvegar og Hólsvegar í Reykjavík. Strætó númer 14 stoppar þar á leið sinni í átt að Verzlunarskólanum, en ákvörðunin nú er tekin til að strætó geti betur haldið áætlun. 5.10.2023 14:01
Fannst látinn í sjónum við Kristiansand Fjörutíu og sex ára karlmaður sem lögregla í Noregi lýsti eftir í síðustu viku vegna dráps á mæðgum í Kristiansand hefur fundist látinn. Maðurinn fannst látinn í sjónum, milli eyjanna Dybingen og Svensholmen fyrir utan bæinn. 5.10.2023 13:05
Norðmaðurinn Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Norska leikskáldið Jon Fosse hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 5.10.2023 11:08
Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Sænska akademían tilkynnir í dag hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 11 að íslenskum tíma. 5.10.2023 10:32
Níu kærðir vegna ólöglegra hvalveiða á Grænlandi Lögregla á Grænlandi hefur kært níu manns vegna gruns um að hafa stundað ólöglegar hvalveiðar við Kullorsuaq á vesturströnd landsins. Talið er að mennirnir hafi veitt allt að tuttugu náhvali um miðjan september. 5.10.2023 07:48
Má reikna með allhvössum vindstrengjum syðst á landinu Búast má við allhvössum vindstrengjum syðst á landinu fram á kvöld og geta staðbundið myndast varasamar aðstæður fyrir þau ökutæki sem eru viðkvæmust fyrir vindi, einkum í Mýrdal og undan Öræfum. 5.10.2023 07:28
Mjög harður árekstur tveggja bíla í Aðaldal Mjög harður árekstur tveggja bíla varð á Norðausturvegi, skammt vestan við Laxamýri í Aðaldal, suður af Húsavík, um klukkan 11 í morgun. 4.10.2023 13:03
Nýr byggingarfulltrúi og framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits í Reykjavík Brynjar Þór Jónasson hefur verið ráðinn nýr byggingarfulltrúi Reykjavíkur og Tómas G. Gíslason nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. 4.10.2023 12:34