Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Haukur Þrastarson skoraði sjö mörk er lið hans Rhein Neckar Löwen gerði jafntefli gegn lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar í liði Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-30. 2.10.2026 19:19
Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, óttast morðtilræði gegn sér og ætlar að láta sig hverfa. 2.10.2026 18:57
Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Uppljóstarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, mun ekki njóta verndar í heimalandi sínu mikið lengur. Hann óttast um öryggi sitt og er staða hans sögð grafalvarleg. 2.10.2026 17:06
Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Fjallað er um stórt tap danska úrvalsdeildarfélagsins Mors-Thy hér á landi gegn Val í dönskum miðlum. Einn helsti handboltasérfæðingur Dana segir að um mikil vonbrigði séu að ræða og um leið hrósar hann Björgvini Páli Gústavssyni. 30.9.2026 07:01
Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu og titilvörn Njarðvíkur hefst Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í kvöld. Evrópuleikir í fótboltanum og tveir leikir í Bónus deild kvenna ásamt uppgjörsþættinum Bónus körfuboltakvöld. 30.9.2026 06:01
Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Enes Mahmutovic, leikmaður Lúxemborgar, getur talist heppinn að hafa sloppið bara með gult spjald í leiknum gegn Íslandi í kvöld eftir að hafa tekið Brynjólf Darra Willumsson hálstaki seint í leiknum. Sérfræðingar Sýn Sport telja að um brot sem verðskuldi rautt spjald hafi verið að ræða. 29.9.2026 23:00
Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. 29.9.2026 21:39
Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Ríkjandi heims- og Evrópumeistarar Spánar fóru nokkuð þægilega í gegnum leik við landslið Króatíu er liðin mættust í Sevilla í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Spánverjar með fullt hús stiga á toppi síns riðils. Lokatölur í kvöld 4-1 sigur þeirra. 29.9.2026 21:15
Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands, segir Arnar Gunnlaugsson einfaldlega verða að landa sigri með íslenska landsliðinu í kvöld gegn Lúxemborg. Pressan er farin að gera vart um sig og langt frá síðasta sigurleik. 29.9.2026 18:34
„Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, væntir mikils af Gylfa Þór Sigurðssyni sem kemur inn í byrjunarliðið gegn Lúxemborg í kvöld. Ísland megi illa við að misstíga sig í þeirri stöðu sem liðið er í, stöðu sem þýði ekkert að væla yfir. 29.9.2026 18:03