Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu fimm sinnum á tæplega þriggja mánaða tímabili árið 2022 og svipta hana frelsi þrívegis. 2.3.2026 16:22
Davíðs minnst á Alþingi Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis. 2.3.2026 15:18
Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Slökkviliðsmenn af öllum slökkviliðsstöðvum höfuðborgarsvæðisins vinna nú að því að ráða niðurlögum elds í iðnaðarbili að Brekkutröð í Hafnarfirði. 2.3.2026 13:40
Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa tekið þáverandi sambýliskonu sína og barnsmóður hálstaki. Sannað þótti að hann hefði tekið konuna hálstaki en brot hans heimfært undir ákvæði hegningarlaga um minni háttar líkamsárás og hann því sýknaður vegna fyrningar brotsins. 2.3.2026 12:28
Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Seðlabanki Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, í minnisblaði sem barst velferðarnefnd Alþingis fyrir helgi. 2.3.2026 11:15
Reykjadalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna Inga Sæland segir það hafa verið sér kjaftshögg að lesa í fjölmiðlum að seglin yrðu dregin saman í Reykjadal í sumar vegna skorts á fjárframlögum frá ráðuneytum hennar og Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þau muni styrkja samtökin um 58 milljónir króna, á sama tíma og skorið verður niður í fjárveitingum til annarra félagasamtaka. 27.2.2026 14:44
Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Samfylking mælist með mest fylgi í Reykjavík, 24 prósent, en Sjálfstæðisflokkur fylgir henni fast á hæla með 22,7 prósent, samkvæmt nýjum Borgarvita Maskínu. Nýtt framboð Vinstrisins mælist með 9,1 prósents fylgi 27.2.2026 14:13
Landspítali fær 25 milljónir vegna stuðnings við Bakkakotsbörn Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að veita Landspítala 25 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu vegna stuðnings við einstaklinga sem voru vistaðir sem fósturbörn í Bakkakoti. 27.2.2026 13:07
Páll Winkel varð fyrir valinu Páll Winkel hefur verið skipaður í embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Sex sóttu um embættið, sem Bryndís Helgadóttir hefur gegnt síðan Haukur Guðmundsson lét af störfum í nóvember. 27.2.2026 13:00
Kveður Þorgerði og snýr sér að Guði Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, hefur ákveðið að láta af störfum eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann bauð sig fram í oddvitasæti Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar en laut í lægra haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur. 27.2.2026 10:40