Takmarkanir ekki hertar: Englendingar fá að djamma um áramót Boris Johnson, forsætisráðherra Englands hefur tilkynnt að sóttvarnatakmarkanir verði ekki hertar fyrir áramót. Fjöldasamkomur verða leyfðar og skemmtanaþyrstir munu geta dansað fram á rauða nýársnótt. 27.12.2021 22:29
Bjarni Benediktsson með Covid-19 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra greindist með Covid-19 í dag. Hann hvetur alla til að sýna varkárni vegna útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. 27.12.2021 21:32
Mikið sé gert úr því að landsbyggðarfólk sé rolur og aular Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisfólksins, segir mikið gert úr því í fjölmiðlum og íslenskum kvikmyndum að landsbyggðarfólk sé upp til hópa rolur og aular. Þar vísar hann helst til Verðbúðarinnar, nýrrar þáttaráðar RÚV, sem hann hefur gagnrýnt harðlega í dag. 27.12.2021 21:20
Sjö sjúklingar á hjartadeild greindust smitaðir Sjúklingur á hjartadeild Landspítala greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Í kjölfar skimunar allra inniliggjandi sjúklinga hafa sex greinst til viðbótar. 27.12.2021 19:56
Fer fram á að ríkisstjórnin fordæmi ákvörðun Persónuverndar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fer fram á það fyrir hönd fyrirtækisins að ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á þeirri ákvörðun Persónuverndar að Íslensk erfðagreining hafi brotið lög með mótefnamælingunum og heiti því að vernda fyrirtækið meðan það leitar réttar síns fyrir dómstólum. 27.12.2021 19:48
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Smitrakningarteymið sér ekki lengur fram á að geta hringt í alla sem greinast með kórónuveiruna, líkt og gert hefur verið hingað til. Ástæðan er gríðarlegur fjöldi smitaðra, en rúmur fjórðungur þeirra sem fór í sýnatöku í gær reyndist smitaður. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27.12.2021 18:11
Ísraelar láta reyna á fjórða skammt bóluefnis Hópur heilbrigðisstarfsmanna í Ísrael fékk í dag fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19 en um er að ræða tilraunaverkefni sem er ætlað að skera úr um hversu mikla vernd seinni örvunarskammtur veitir gegn ómíkron afbrigðinu. 27.12.2021 18:10
Íslandsbanki styttir opnunartíma Frá og með áramótum opna flest útibú Íslandsbanka ekki fyrr en klukkan 10:00 og loka klukkan 16:00. Á Egilsstöðum og Ísafirði verður opið milli 11:00 og 15:00 og á Reyðarfirði í aðeins þrjá klukkutíma milli 12:00 og 15:00. 27.12.2021 17:53
Sjö útköll vegna heimilisofbeldis yfir hátíðirnar Frá hádegi á Þorláksmessu til hádegis í dag fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í sjö útköll vegna heimilisofbeldis. 27.12.2021 17:32
Skjálfti að stærð 3,5: Skjálftahrinan heldur áfram Enn skelfur jörð á Reykjanesi en nú rétt fyrir klukkan ellefu varð skjálfti að stærð 3,5. 26.12.2021 23:38