Launakröfur upp á allt að tíu milljónir og Helgi vill milljarð Kröfur í þrotabú Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið sáluga og fleiri miðla, nema tæplega einum og hálfum milljarði króna. Langsamlega stærsta krafan er krafa frá Helga Magnússyni, eiganda Torgs, upp á rétt tæpan milljarð. Samþykktar kröfur upp á 235 milljónir samanstanda nánast alfarið af forgangskröfum starfsmanna. 2.7.2023 14:16
Tvö látin og á þriðja tug særð eftir skotárás Tvö eru látin og 28 eru særð eftir skotárás í götupartíi í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt. 2.7.2023 10:22
Segir Rússa hugsanlega ætla að sprengja kjarnorkuver Úkraínuforseti segir að Rússar gætu verið að undirbúa sig fyrir það að sprengja Zaporizhzhia-kjarnorkuverið, stærsta kjarnorkuver Evrópu. 2.7.2023 09:40
Hvalveiðar, Íslandsbankamálið og kynhlutlaust mál Sprengisandur dagsins hefst á rökræðum Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Orra Páls Jóhannssonar þingflokksformanns Vinstri grænna. SFS hefur í höndum lögfræðiálit sem segir að frestun hvalveiða sé í andstöðu við lög. Orri Páll er aldeilis ekki sammála þeirri niðurstöðu. 2.7.2023 09:31
Sólin færir sig suður Í dag og næstu daga verður viðsnúningur í veðrinu frá því sem verið hefur. Nú verður yfirleitt þurrt og bjart á köflum á Suður- og Suðvesturlandi og einnig hlýjast á meðan blautt verður á köflum, lágskýjað og svalara í öðrum landshlutum. 2.7.2023 08:27
Sögulega margir óánægðir með ríkisstjórnina Óánægja með störf ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur hefur aldrei mælst meiri. Meirihluti svarendahóps Maskínu er ekki sáttur með þau. 2.7.2023 07:57
Maðurinn sem lést var búsettur í Vestmannaeyjum Karlmaður á áttræðisaldri lést í dag eftir að hafa fallið úr Ystakletti í Vestmannaeyjum. 1.7.2023 14:08
Nafn mannsins sem lést á Lúx Maðurinn sem lést eftir líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx á dögunum hét Karolis Zelenkauskas og var 25 ára gamall litáískur ríkisborgari, sem búsettur hafði verið hér á landi um nokkurra mánaða skeið. 1.7.2023 13:07
Veiðum frestað eins lítið og unnt var Í minnisblaði matvælaráðherra um frestun veiða á langreyði segir að við afmörkun á tímalengd frestunarinnar hafi verið valinn skemmsti tími sem talinn var raunhæfur til að ná markmiði ráðuneytisins um dýravelferð. Í niðurstöðum fagráðs segir þó að vandséð væri að betur væri hægt að standa að veiðunum en nú er gert. Veiðum var frestað út ágúst, en venjan er að veiða hvali ekki mikið lengur en fram í miðjan september. 1.7.2023 11:32
Ók óléttri konu heim og rak hana í leiðinni Fyrirtækið Dýralæknar Sandhólaferju er talið hafa brotið lög þegar framkvæmdastjóri þess sagði þungaðri konu upp störfum á meðan hann ók henni heim úr vinnu. Konan segir framkvæmdastjórann hafa ausið yfir hana fúkyrðum á leiðinni. 1.7.2023 09:44