Bara „random“ að rassskella stjúpdóttur sína og vinkonu hennar Landsréttur staðfesti í gær sakfellingu yfir manni sem braut kynferðislega á stjúpdóttur sinni. Dómurinn lækkaði þó fangelsisdóminn úr sjö mánuðum í fjóra mánuði, bundna skilorði í tvö ár, með tilliti til þess að málsmeðferðin hafði dregist verulega á langinn. 16.10.2025 13:36
Tveir sjúklingar í nánast hverju plássi á bráðamóttökunni Gríðarlegt álag hefur myndast á bráðamóttökunni síðustu daga þar sem ekki tekst að útskrifa fólk af öðrum deildum, að sögn framkvæmdastjóra hjá Landspítalanum sem líkir vandanum við bakflæði. Hann segir að nýtingin á bráðamóttökunni nemi 150 prósentum að meðaltali, og stundum 190 prósentum, en þá manna tveir sjúklingar nánast hvert pláss. 16.10.2025 11:32
Grindvíkingum blöskrar umræðan í Vikunni Grindvíkingar eru margir móðgaðir eftir að hafa heyrt umræðuna sem spannst um heimabæ þeirra í Vikunni með Gísla Marteini á föstudag þar sem Jón Gnarr þingmaður var meðal gesta. Þeim blöskrar að talað sé um bæinn eins og hann sé glataður en einmitt þetta sama kvöld var íþróttamiðstöð Grindavíkur troðfull þar sem Grindvíkingar kepptu sinn fyrsta heimaleik í körfubolta í tvö ár. 5.10.2025 23:15
Nýr formaður SUS vill sækja til hægri Júlíus Viggó Ólafsson var í dag kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Engin mótframboð bárust í embætti formanns eða til stjórnar. Sambandið fékk þó ekki aðeins nýjan formann, heldur einnig nýtt merki. 5.10.2025 21:46
Hafi tekið bílstjórann hálstaki meðan hann lá á flautunni Maður var í nótt handtekinn í Seljahverfi í Reykjavík fyrir að ráðast á leigubílstjóra. Sjónarvottur segir að árásarmaðurinn hafi tekið leigubílstjórann hálstaki og að bílstjórinn hafi verið með „ljótan hósta“ eftir árásina. 5.10.2025 20:39
Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Hið gjaldþrota flugfélag Play er sagt skulda Isavia um hálfan milljarð króna. Þrátt fyrir það fengu kínverskir eigendur síðustu Play-vélarinnar á Keflavíkurflugvelli leyfi til að fljúga með vélina úr landi í dag. 5.10.2025 20:01
Tveir á sjúkrahús eftir að bíll valt við árekstur Tveir voru fluttir á sjúkrahús með minni háttar meiðsl rétt fyrir á áttunda tímanum í kvöld eftir árekstur milli tveggja bíla á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í Reykjavík. Annar bíllinn valt á hliðina. 5.10.2025 19:47
„Þetta er ekki á borði þingflokksins“ Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, er brugðið vegna brottvísunar ungbarna í vikunni og segir lögin greinilega ekki nægilega mannúðleg. Kurr er innan herbúða Samfylkingarinnar á Alþingi en Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður segir engan ágreining ríkja við aðra stjórnarflokka um málið. 5.10.2025 18:33
Sonur Tinu Turner látinn Tónlistarmaðurinn Ike Turner yngri, sonur söngkonunnar Tinu Turner, er látinn 67 ára að aldri. 5.10.2025 17:26
Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Forsætisráðherra Ísraels segir að Ísrael og Hamas nálgist samkomulag um vopnahlé á Gasaströndinni. Bandaríkjaforseti er bjartsýnn og segir Ísraela hafa samþykkt að draga herinn af hluta Gasa til að greiða fyrir fangaskiptum en Ísraelsmenn hafa þó ekki hlýtt ósk hans um að hætta að sprengja. Stríðandi fylkingar ganga að samningaborðinu á mánudag. 4.10.2025 23:40