Ingveldur verður Hæstaréttardómari Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur gert tillögu til forseta Íslands um skipun Ingveldar Einarsdóttur landsréttardómara sem dómara við Hæstarétt Íslands frá og með áramótum. 20.12.2019 13:11
Vilja leyfa ferðamönnum að keyra um á nagladekkjum níu mánuði á ári Samtök ferðaþjónustunnar vilja rýmka heimild til að nota nagladekk á bílaleigubílum af öryggissjónarmiðum. Snýr tillagan að því að reglugerð verði breytt og negldir hjólbarðar verði leyfðir á bílaleigubílum frá 1. september til 31. maí eða þrjá og hálfan mánuð umfram aðra bíla. 20.12.2019 11:53
Sjálfstæðisflokkurinn réttir úr kútnum í nýrri könnun MMR Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 20,0% í nýrri könnun MMR. Er fylgið tæplega tveimur prósentustigum hærra en við mælingu MMR í nóvember. 20.12.2019 11:36
Matthías Johannessen sannfærður um samsæri gegn Haraldi syni sínum Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum til lengri tíma, er á þeirri skoðun að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið illa fram við Harald Johannessen, son hans og ríkislögreglustjóra. 20.12.2019 11:30
Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hafnarfirði Fjölmennt lið lögreglu hefur verið kallað út að Norðurbakka í Hafnarfirði. Töluverður viðbúnaður er á svæðinu en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er verið að reyna að aðstoða einstakling sem glímir við veikindi. 19.12.2019 17:19
Flutt á slysadeild eftir umferðarslys á Kjalarnesi Ein kona var flutt á slysadeild eftir umferðarslys á Kjalarnesinu á fimmta tímanum í dag. Óttast var í fyrstu að um alvarlegt slys væri að ræða og var óskað eftir töluverðri aðstoð. 19.12.2019 16:26
Öxnadalsheiði, Víkurskarði og hringveginum í Öræfum lokað vegna veðurs Vegum á landinu fer fjölgandi sem lokað hefur verið umferð um sökum veðurs. Gular viðvaranir eru um stærstan hluta landsins en þó ekki á suðvesturhorninu, Vesturlandi og verstari hluta Vestfjarðarkjálkans. 19.12.2019 16:08
Köld vatnsgusa í andlit foreldra barna á biðlista á Seltjarnarnesi Óhætt er að segja að foreldrar barna á Seltjarnarnesi sem bíða eftir daggæslu- eða leikskólaplássi fyrir börnin sín finnist jólagjöfin frá bænum súr þetta árið. 19.12.2019 15:27
Meðaltal heildarlauna hjá VR 666 þúsund krónur Heildarlaun félagsmanna VR voru að meðaltali 666 þúsund krónur í september síðastliðnum og höfðu þá hækkað um 2,1% á sjö mánaða tímabili eða frá febrúar. Miðgildi heildarlauna hækkaði um 2,5% á sama tímabili og var 615 þúsund. 19.12.2019 15:15
Hinn grunaði áfram í fjögurra vikna gæsluvarðhaldi Karlmaður um fimmtugt, sem grunaður er um aðkomu að andláti manns sem féll fram af svölum við Skyggnisbraut í Grafarholti þann 8. desember, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. 19.12.2019 14:54