Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. september 2026 07:02 Thelma Tómasdóttir og Sverrir Haukur Gíslason búa í Osló. Thelma ræddi við blaðamann um daglegt líf í borginni. Aðsend „Ég elska lífið hérna og er ekkert að flýta mér heim,“ segir hin 24 ára gamla Thelma Tómasdóttir sem fluttist til Osló með kærastanum sínum Sverri Hauki Gíslasyni. Thelmu dreymdi um að fara í meistaranám erlendis og komst inn í skólann sem henni leist best á. Hún segir flutningana hafa verið auðveldara og nýtur þeirra áskorana sem lífið býður upp á úti.
Thelma stundar nám í fjármálum með áherslu á eignastýringu í BI Norwegian Business School í Osló. Hún og Sverrir hafa búið úti í eitt ár og hún ræddi við blaðamann um lífið erlendis. Thelma elskar hversdagsleikann í Osló.Aðsend Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér? Það er mjög rólegt og þægilegt. Ég elska að taka rólega morgna og fara uppi í skóla að læra eða mæta í tíma, fara svo í ræktina eða í göngutúr og koma heim og elda góðan kvöldmat og hafa það kósý um kvöldið. Rólegir morgnar, hreyfing og lærdómur einkenna gjarnan daga Thelmu.Aðsend Hefurðu búið annars staðar erlendis? Já, ég bjó í Stokkhólmi í hálft ár þegar ég var sjö ára. Hvað er skemmtilegast við lífið í Osló? Það skemmtilegasta við lífið hérna er rútínan sem við höfum tileinkað okkur og hvað það er allt rólegt í kringum okkur. Við búum í sama hverfi og skólinn og á ótrúlega góðum stað þar sem ræktin, matvörubúðir, verslanir og bíó eru allt í göngufjarlægð. Það er ótrúlega þægilegt og ég elska að geta labbað allt. Svo er líka fullt af krúttlegum hverfum og görðum hérna og er ég alltaf að uppgötva nýja staði. Það að búa í stærri borg er líka skemmtileg tilbreyting frá Íslandi. Mér finnst líka gaman að fá að upplifa allar fjórar árstíðirnar, sumarið hérna er geggjað og veturinn ótrúlega kaldur og fallegur. Thelma elskar árstíðarskiptin í Noregi.Aðsend En mest krefjandi? Líklegast er það námið sjálft. Það kom mér ótrúlega á óvart hvað fyrsta árið var mikil vinna og við gerðum ekki mikið annað en að vera uppi í skóla að læra. Fyrsta árið úti gerðu Thelma og Sverrir lítið annað en að læra uppi í skóla.Aðsend Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Nýnemavikan stendur mikið upp úr. Það var mikil dagskrá alla fyrstu vikuna á vegum skólans sem heitir Fadderullan. Við fórum í bátsferð, hoppuðum á milli bara, fórum í heimapartý og fórum á tónleika á kvöldin þar sem við fengum að kynnast norska tónlistarfólkinu. Vikan var skemmtileg og fékk maður að kynnast mikið af fólki sem er með manni í náminu og læra betur inn á borgina. Nýnemavikan í skólanum hjá Thelmu var mikil upplifun.Aðsend Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju? Líklegast Grünerløkka sem er hverfi með fjölbreyttum búðum og veitingastöðum, það er ótrúlega gaman að labba þar og skoða. Síðan finnst mér líka mjög fallegt að labba meðfram sjónum á Aker Brygge og þar eru alls konar veitingastaðir sem er gaman að sitja úti á og njóta útsýnisins og mannlífsins. Thelma elskar að sitja við Aker Brygge og þar eru ýmsir huggulegir veitingastaðir.Aðsend Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Ég á eftir að prófa svo mikið af kaffihúsum hérna en elska kanilsnúðana frá Bit Union. Annars hef ég bara farið í Åpent Bakeri þar sem það er svo nálægt þar sem við búum sem er mjög gott. Uppáhaldsveitingastaður er annaðhvort Seven, sem er frekar nýr asískur staður með mjög góðan mat og er ótrúlega flottur að innan, eða Jimmy’s sem er mjög kósý með alls konar litlum réttum til að deila. Veitingastaðurinn Seven er í miklu uppáhaldi hjá Thelmu.Aðsend Hvernig er draumadagur fyrir þig úti? Draumadagurinn er klárlega heitur sumardagur! Ég og kærastinn minn myndum vakna og mæta á Barry's æfingu, ná okkur í kaffi og eitthvað gott að borða og setjast í garð í sólinni. Fara svo heim, gera sig til, rölta um bæinn og enda kvöldið með vinum úti að borða. Draumadagur hjá Thelmu myndi enda á skemmtilegum veitingastað með vinum. Aðsend Hefurðu fundið fyrir heimþrá? Nei, eiginlega ekki. Það var svo mikið álag í skólanum á fyrsta árinu að tíminn flaug áfram og maður hafði varla tíma til að finna fyrir heimþrá. Svo hjálpar líka mikið að ég bý með kærastanum mínum og mamma og pabbi hafa líka verið dugleg að koma í heimsókn til mín. Tíminn líður hratt í Osló.Aðsend Hvað er fram undan? Ég ætla að klára síðasta árið í meistaranáminu og ég er mjög spennt að fara að vinna og tengja námið við raunveruleikann. Hvort það verður á Íslandi eða annars staðar verður bara að koma í ljós. Thelma lærir öllum stundum í Osló og hlakkar til að útskrifast og geta tengt námið við raunveruleikann.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Hvað það var í raun auðvelt að flytja út. Norðmennirnir eru svo líkir okkur Íslendingum að það er lítið sem kom mér á óvart. Það eina sem tók smá tíma að venjast var að það eru allar búðir lokaðar hérna á sunnudögum, sem maður pælir ekkert í á Íslandi þar sem allt er alltaf opið. Hversdagsleikinn er huggulegur hjá Thelmu og Sverri og hún segir flutningana hafa verið óvenju auðvelda.Aðsend Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti? Nei, ekki beint, en við búum alveg við hliðina á grunnskóla þannig að við vöknum við Star Wars-lagið alla morgna sem spilast þegar skólabjallan hjá þeim hringir. Parið vaknar við Star Wars lagið alla morgna þar sem grunnskóli er við hliðina á heimili þeirra og skólabjallan spilar umrætt lag.Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Já, ég sé það alveg fyrir mér. Ég elska lífið hérna og er ekkert að flýta mér heim. Auðvitað saknar maður fjölskyldunnar og vina heima en það er sem betur fer auðvelt og stutt að skella sér heim í heimsókn.
Íslendingar erlendis Noregur Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira