350 starfsmenn World Class halda vinnunni Björn Leifsson, stofnandi og eigandi World Class, ætlar ekki að segja upp þeim 350 starfsmönnum sem eru á launaskrá hjá félaginu. Björn lýsti því yfir fyrir helgi að hann lægi undir feldi vegna óvissunnar sem framundan væri vegna kórónuveirufaraldursins. Möguleiki væri að hann segði upp öllum 350 starfsmönnum World Class í dag. 30.11.2020 13:01
Telja ekki hagsmuni barna að eineltismál séu rekin í fjölmiðlum Bæjarstjóri í Garðabæ segir að í undantekningartilfellum dugi ekki aðgerðaráætlanir í eineltismálum til að leysa mál sem komi upp. Mál sem varði samskiptavandamál geti verið sérstaklega erfið þegar börn eigi í hlut. Þá hafi börn ekki hag af því að slík mál séu rakin í fjölmiðlum. 30.11.2020 12:48
Bráðabólguheilkenni ekki komið upp hjá barni hér á landi Sóttvarnalæknir segist ekki vita til þess að bráðabólguheilkenni hafi komið upp hjá barni hér á landi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um sjö ára íslenskan dreng í Svíþjóð sem veiktist lífshættulega af bráðabólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 30.11.2020 11:46
Telur fálkadauða mega rekja til rjúpnaleysis Sex dauðir eða deyjandi fálkar hafa fundist hér á landi í nóvember. Þrír ungar og þrír fullorðnir. Tveir þeirra hafa fundist á Akureyri. Fuglafræðingur telur góðar líkur á því að rjúpnaleysi sé um að kenna. 30.11.2020 08:26
Batakveðjur streyma til Víðis en sumir hneykslaðir Óhætt er að segja að frásögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á Facebook af því hvernig hann smitaðist af Covid-19 á dögunum hafi vakið mikla athygli. Langflestir þakka Víði fyrir hreinskilna frásögn en þó eru ýmsir sem gera athugasemdir við gestagang á heimili hans. Víðir lækar allar athugasemdir fólks, gagnrýnar sem hugulsamar. 29.11.2020 12:01
Braust inn í sundlaug, stundaði kynlíf og er stolt af því Leikkonan og útvarpskonan Steiney Skúladóttir segist hafa brotist inn í sundlaug og stundað þar kynlíf í kórónuveirufaraldrinum. Þetta kemur fram í hlaðvarpinu Einhleyp, einmana og eirðarlaus sem þau Pálmi Freyr Hauksson stýra í Útvarpi 101. 28.11.2020 15:51
Fimm fámennir hópar í forgangi í bólusetningu Tíu hópar eru í forgangi þegar kemur að bólusetningu við Covid-19 hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir því að börn fædd eftir árið 2006 verði bólusett. Af forgangshópunum tíu eru fimm fámennir hópar sem innihalda um tuttugu þúsund einstaklinga í framlínu í baráttu við sjúkdóminn. 27.11.2020 18:26
Refsingu frestað fyrir mótmæli í flugvél Icelandair Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fresta refsingu Jórunnar Eddu Helgadóttur og Ragnheiðar Freyju Kristínardóttur og skilorðsbinda til tveggja ára. 27.11.2020 15:12
Kristján í Samherja keypti Landsbankahúsið á 350 milljónir Landsbankinn hefur tekið 352 milljóna króna tilboði Sigtúns þróunarfélags í Landsbankahúsið á Selfossi og var kaupsamningur þess efnis undirritaður í dag. 27.11.2020 14:50
Uppfletting landamæravarðar í LÖKE fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt landamæraverði áfrýjunarleyfi sem dæmdur var fyrir að brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram á vef Hæstaréttar en rétturinn tekur fyrir minnihluta þeirra mála sem dæmd hafa verið í Landsrétti. Þá helst ef málin hafa fordæmisgildi. 27.11.2020 13:00