Bein útsending: Af hverju er þjóðgarður á hálendinu góð hugmynd? Af hverju er þjóðgarður á hálendi Íslands góð hugmynd? Landvernd efnir til ráðstefnu um hálendisþjóðgarð og verður streymt beint frá fundinum á Vísi klukkan 15. Í tilkynningu frá Landvernd segir að Náttúra Íslands sé verðmæt auðlind og sameign okkar allra. 1.12.2020 14:00
Þórólfur gaf grænt ljós á sundlaugar og afreksíþróttir fyrir bakslagið Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði það til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra þann 25. nóvember að á morgun, 2. desember, yrðu sund- og baðstaðir opnaðir að nýju með leyfi fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda. 1.12.2020 13:55
Víðir nýtur fyllsta trausts Katrínar og Svandísar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra nýtur trausts Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Víðir lýsti gestagangi á heimili sínu í aðdraganda þess að hann greindist smitaður af Covid-19 á dögunum. Nokkur gagnrýni hefur verið í samfélaginu og háværar raddir um að Víðir hafi ekki fylgt eigin fyrirmælum miðað við frásögn hans. 1.12.2020 12:16
Viðbrögð ráðherra vegna óbreyttra aðgerða og dóms í Landsréttarmálinu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun í dag tilkynna hvaða reglur taka gildi hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins. Gildistími núverandi reglugerðar rennur út á miðnætti. 1.12.2020 11:06
Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2 Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu. 1.12.2020 10:28
Jón Páll dæmdur fyrir að hafa nauðgað konu árið 2008 Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun. Brotið átti sér stað fyrir tólf árum eða árið 2008. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn síðdegis og staðfestir niðurstöðuna skriflega við fréttastofu. 30.11.2020 17:17
Kjartan kveður eftir tuttugu ára starf Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með næstkomandi áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna að því er segir í tilkynningu til Kauphallar. 30.11.2020 15:06
Þjóðverjarnir keyptu Hjörleifshöfða á 489 milljónir króna Power Minerals Iceland, íslenskt félag í 100 prósent eigu þýska fyrirtækisins STEAG Beteilungsgesellschaft, greiddi 489 milljónir króna fyrir Hjörleifshöfða í Mýrdalshreppi. Vísir greindi frá sölunni í síðustu viku en fékk ekki upplýsingar frá kaupendum eða seljendum um hve miklir fjármunir skiptu um hendur. Systkinin Áslaug, Halla og Þórir Níels Kjartansbörn voru eigendur jarðarinnar. 30.11.2020 14:00
Hersir Aron nýr aðstoðarmaður Bjarna Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins. 30.11.2020 13:21
Landsmenn hvattir til að velja sér jólavini Landsmenn eru hvattir til að velja sér jólavini fyrir aðventuna, þ.e. hverja eigi að hitta yfir hátíðarar. Best er að plana heimboð með góðum fyrirvara. Þá eigi að takmarka fjölda fólks í eldhúsinu. 30.11.2020 13:12