Sigldu til hafnar eftir að skipverji fékk einkenni Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 sigldi í nótt úr Ísafjarðardjúpi og til hafnar í Hafnarfirði. Ástæðan eru einkenni skipverja sem fór í sýnatöku í morgun. Aðrir skipverjar bíða niðurstöðu og líður vel að sögn skipstjórans. 3.12.2020 11:31
Vill rannsaka hvort öryrkjar og bótaþegar sigli undir fölsku flaggi Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist finna mjög til með fólki sem eru allar bjargir bannaðar. Hins vegar þurfi þeir sem ekki eru í þeirri stöðu að bera sjálfir einhverja ábyrgð. Fjöldi öryrkja og fólks á atvinnuleysisbótum sé allt of mikill. 2.12.2020 22:53
Séra Skírnir stefnir Agnesi og þjóðkirkjunni Fyrrverandi héraðsprestur á Suðurlandi hefur stefnt biskupi Íslands og þjóðkirkjunni og fer fram á tæplega tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur. Hann telur þau bera ábyrgð á skaða sem hann hafi hlotið vegna færslu í embætti árið 2015, í kjölfar kvörtunar hans vegna eineltis, og svo brottrekstri úr kirkjunni fyrr á árinu. 2.12.2020 16:48
Anna Aurora bakvörður ætlar í mál við íslenska ríkið og fleiri Anna Aurora Waage Óskarsdóttir ætlar að stefna íslenska ríkinu vegna handtöku hennar á Vestfjörðum í apríl þar sem hún var grunuð um að villa á sér heimildir sem bakvörður á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Þá ætlar hún að stefna fjölmiðlum og einstaklingum sömuleiðis. Lögmaður hennar segir mikla vinnu framundan að hreinsa mannorð skjólstæðings síns. 2.12.2020 14:57
Bakvörðurinn á Bergi verður ekki ákærður Kona sem var grunuð um að hafa villt á sér heimildir sem bakvörður á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins verður ekki ákærð. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari við Vísi. 2.12.2020 13:05
Íslandsbanki lækkar vexti Útlánavextir Íslandsbanka munu lækka um allt að 0,25 prósentustig á föstudag. Innlánsvextir vextir haldast að mestu leyti óbreyttir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs, sendir fyrir hönd bankans. 2.12.2020 11:51
510 milljóna gjaldþrot Hópferðabifreiða Akureyrar Skiptum á þrotabúi Hópferðabifreiða Akureyrar er lokið en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. Lýstar kröfur í þrotabúið námu samanlagt 510 milljónum króna og fengust greiddar um 26 milljónir. 2.12.2020 10:07
Jón Páll áfrýjar nauðgunardómnum Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, ætlar að áfrýja skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir nauðgun sem hann hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Þetta segir Björgvin Jónsson, lögmaður Jóns Páls, í samtali við Ríkisútvarpið. 1.12.2020 23:55
Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 1.12.2020 15:36
Fylgdust undrandi með bílunum bruna yfir gönguljósin á rauðu Þrír ökumenn fóru yfir á rauðu ljósi á Bústaðavegi í morgun. Foreldri í hverfinu sem náði brotum fólksins á myndband hefur áhyggjur af hegðun fólks enda börn reglulega á ferli á leið í og úr skóla eða félagsstarf. Hann segir brotin í morgun alls ekkert einsdæmi. 1.12.2020 14:49