Margir hringdu sig inn veika eftir seinni sprautuna Lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu bera sig margir hverjir illa í dag. Margir hafa tilkynnt sig veika í dag og aðrir eru lumbrulegir á vaktinni. Ástæðan er viðbrögð við seinni bólusetningusprautunni sem fyrrnefndir hópar fengu í Laugardalshöll í gær. 11.2.2021 15:55
Óvenjuleg byrjun á fundinum í tilefni dagsins Dagur íslenska táknmálsins er haldinn hátíðlegur í níunda sinn í dag þann 11. febrúar. Af því tilefni hófu þeir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir reglubundinn upplýsingafund vegna kórónuveirunnar á því að heilsa landsmönnum á táknmáli og bjóða góðan daginn. 11.2.2021 12:03
Svona var 161. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 11.2.2021 10:15
„Við erum ekki úr stáli“ „Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði í árslok 2020 eru þær verstu sem ég hef lent í á mínum ferli. Þarna voru ólýsanlegar, lífshættulegar aðstæður, þar sem maður óttaðist um eigið líf og annarra, bæði líf bæjarbúa og félaganna sem voru að sinna björgunarstörfunum.“ 11.2.2021 06:15
Saksóknari fær gögn KPMG um Samherja eftir allt saman Hæstiréttur hefur vísað frá kæru útgerðarfélagsins Samherja sem barist hefur fyrir dómstólum gegn því að endurskoðunarfyrirtækið KMPG þurfi að afhenda héraðssaksóknara gögn varðandi bókhald og reikningsskil Samherja hf og Samherja holding undanfarinn áratug. 10.2.2021 16:18
Klár í framlínuna eftir seinni sprautuna Lögreglumenn í framlínu, sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu byrjuðu að streyma í Laugardalshöll klukkan 13 í dag þar sem þeir fengu seinni Moderna sprautuna sína. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir að planið hafi verið að bólusetja 400 manns fyrsta klukkutímann og stefndi í að það gengi eftir. 10.2.2021 14:02
Allir búnir að gleyma ofbeldismáli í Eyjum Karlmaður í Vestmannaeyjum hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa veist að tveimur konum á heimili þeirra í Heimaey árið 2018. Konurnar lýstu báðar líkamsárás af hálfu karlmannsins á vettvangi og hjá lögreglu umrædda nótt. Sömuleiðis ýtti framburður karlmanns sem mætti á vettvang undir að karlmaðurinn hefði ráðist á konurnar. 10.2.2021 13:01
Gunnar stýrir öllum álverum Century á heimsvísu Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, hefur verið ráðinn til að stýra álverum Century Aluminum í Evrópu og Norður Ameríku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli. 10.2.2021 10:38
Hrap hjá Icelandair í fyrstu viðskiptum Hlutabréfaverð í Icelandair hefur fallið um þrettán prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Viðskipti með bréf í flugfélaginu hafa numið tæplega 200 milljónum króna það sem af er degi. Verð á bréfum eftir lækkun er 1,58 krónur á hlut. 10.2.2021 10:18
Fjölskylduharmleikur við Lækjartorg Aðalmeðferð er hafin í meiðyrðamáli Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, gegn Aldísi Schram dóttur hans, Sigmari Guðmundssyni fréttamanni og Ríkisútvarpinu. Reiknað er með því að aðalmeðferðinni ljúki á föstudaginn með málflutningi lögmanna aðila. 10.2.2021 09:44