Heilbrigðisráðherra ræddi tillögur Þórólfs Ríkisstjórnin situr á reglulegum þriðjudagsfundi sínum í Ráðherrabústaðnum þar sem til umræðu er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis þar sem hann leggur til hertar aðgerðir á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. 16.2.2021 10:19
Engin króna fannst í 310 milljóna gjaldþroti Austur Gjaldþrot einkahlutafélagsins 101 Austurstræti, sem rak skemmtistaðinn Austur í miðbæ Reykjavíkur, nam 310 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 7. október síðastliðinn og Sigurður Snædal Júlíusson skipaður skiptastjóri í þrotabúinu. 15.2.2021 16:14
Nágranninn féll ekki fyrir klósettpappírshrekknum Sveinn Alfreð Reynisson, nágranni Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, segist alltaf leggja upp með að vera kurteis. Það hafi hann líka gert þegar Karl Örvarsson, í gervi Kára Stefánssonar, bað hann um að koma með klósettpappírsrúllu til sín í síðustu viku. 15.2.2021 15:31
Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans. 15.2.2021 14:59
Kofinn enn ófeðraður Timburkofi sem fannst brotinn á Suðurstrandarvegi rétt vestan við Hlíðarvatn að mánudagskvöldið 8. febrúar er enn ófeðraður að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. Talið er að kofinn hafi fallið af flutningabíl umrætt kvöld. 15.2.2021 12:05
Á puttanum um Suðurlandið en átti að vera í sóttkví Erlendur ferðamaður sem átti að vera í sóttkví en ferðaðist austur um Suðurland á puttanum í liðinni viku var fluttur í sóttvarnarhús í Reykjavík. Honum jafnframt gert að greiða sekt vegna brots síns. Þetta var á meðal verkefna Lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku sem lögregla greinir frá á heimasíðu sinni og má lesa um að neðan. 15.2.2021 12:01
Svona var 162. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 15.2.2021 10:16
Bláa Lónið nú opið um helgar eftir fjögurra mánaða lokun Bláa Lónið verður opnað á ný á morgun eftir að hafa verið lokað frá 8. október. Bláa Lónið, veitingastaðurinn Lava, Silica hótel og verslun Bláa Lónsins í Svartsengi, verða opin allar helgar fram á vor. Retreat Spa verður opið á laugardögum. 12.2.2021 16:29
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga vinkonu fyrrverandi Landsréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs dóm yfir karlmanni fyrir að nauðga vinkonu sinni í janúar fyrir þremur árum. Var karlmaðurinn dæmdur fyrir nauðgun með því að hafa haft samræði án samþykkis við konuna. 12.2.2021 16:08
Áfangasigur 203 íslenskra kvenna í Frakklandi Áfrýjunardómstóll í Frakklandi hefur staðfest bótaskyldu þýska eftirlitsfyrirtæksins TÜV Rheinland í máli 203 íslenskra kvenna og fleiri í PIP-sílikonmálinu svokallaða. Alls eru um níu þúsund konur hluti af tveimur málsóknum en konurnar krefjast skaðabóta fyrir heilsutjón sem þær telja púðana hafa valdið sér. 12.2.2021 13:20