Með riffil í ólæstum skáp og grunaður um brot gegn barni Karlmaður með lögheimili í Reykjavík hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot og brot gegn vopnalögum framin á þáverandi dvalarstað hans í Mosfellsbæ aðfaranótt laugardagsins 12. október 2019. 10.3.2021 15:42
Börn í Kópavogi slegin eftir uppákomu í vettvangsferð Nemendur í fjórða bekk í Hörðuvallaskóla í Kópavogi lentu í heldur óskemmtilegri uppákomu í strætisvagni á leiðinni heim úr vettvangsferð í dag. Karlmaður í annarlegu ástandi hrópaði ókvæðisorð yfir börnin og sparkaði til nokkurra nemenda. 10.3.2021 13:50
Fólk í miklu basli á Kjalarnesi og Vesturlandsvegi lokað Lokað hefur verið fyrir umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Umferðaróhapp varð í morgun á veginum og sendi slökkviliðið dælubíl til að draga bíla til hliðar. 10.3.2021 11:36
Snarpur morgunskjálfti Jarðskjálfti fannst vel á suðvesturhorninu um klukkan 08:49 í morgun. Stærð hans reyndist 4,6 en skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Skjálftinn varð rétt austur af Fagradalsfjalli. 10.3.2021 08:52
Launahækkun og þriggja milljóna króna eingreiðsla til Bjarna Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er með tæplega 2,9 milljónir á mánuði í laun eftir fimmtán prósent launahækkun sem tók gildi um mánaðamótin. 10.3.2021 08:46
Neitar að hafa nauðgað fimmtán ára stúlku Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga fimmtán ára stúlku. Í ákæru sem fréttastofa fékk frá skrifstofu Héraðsdóms Suðurlands kemur ekki fram hvar eða hvenær brotið átti sér stað en þó að það hafi verið að næturlagi. Farið er fram á þrjár milljónir króna í miskabætur fyrir hönd stúlkunnar. 10.3.2021 06:15
Listaverk Margeirs Dire heitins komið heim í portið á Prikinu Strætóskýli sem verið hefur við Njarðargötu í Reykjavík hefur fengið nýtt heimili í Bankastræti. Nánar tiltekið á kaffihúsinu Prikinu þar sem því hefur verið komið fyrir í porti staðarins sem snýr út að Ingólfsstræti. Á skýlið er málað listaverk eftir fastagest á Prikinu sem féll frá langt fyrir aldur fram. 9.3.2021 15:35
„Köld tuska sem dómsmálaráðherra hendir framan í almenning“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er hneyksluð á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem samið hefur verið við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann og fyrrverandi dómara við Hæstarétt um aðstoð við vinnu ráðuneytisins að styttingu málsmeðferðartíma í refsivörslukerfinu. 9.3.2021 14:41
Bein útsending: Úthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra munu kynna úthlutun ársins 2021 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða á sameiginlegum fundi klukkan 13:30. 9.3.2021 12:55
Gul viðvörun á fjórum spásvæðum Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir. Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og gildir til miðnættis. Varað er við hvassviðri eða stormi, snjókomu eða hríð og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. 9.3.2021 12:46