Heldur starfinu en þarf að greiða sekt Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu sem leystur var frá störfum í nóvember í fyrra vegna framkvæmdar handtöku í Hafnarfirði er aftur kominn til starfa. Hann þarf að greiða eitt hundrað þúsund króna sekt vegna þess hvernig hann beitti kylfu sinni. 6.12.2021 16:15
Ók of nærri næsta bíl og sveigði yfir á rangan vegarhelming Karlmaður á tíræðisaldri sem lést í kjölfar umferðarslyss í Hrunamannahreppi sumarið 2020 ók bíl sínum of nálægt næsta bíl á undan. Hann gætti ekki að því þegar bíllinn á undan honum hægði á sér, ók yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. 6.12.2021 13:16
Skora á Katrínu að víkja Jóni úr ráðuneytinu Rúmlega 1500 hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að víkja Jóni Gunnarssyni úr embætti innanríkisráðherra. Nýstofnaður Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu stendur fyrir undirskriftarsöfnuninni og telja ekki von á nauðsynlegum úrbótum í kerfinu með hann í brúnni. 6.12.2021 11:53
„Þetta hefði getað verið banvænt ef því er að skipta“ Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Kemi, segir mikla mildi að eldri maður hafi ekki slasast alvarlega við komuna til Íslands frá Orlando í Flórída. Hann kallar eftir meiri þjónustu við farþega að vetri til sem gangi úr flugvélunum niður brattar tröppur sem geti verið hálar og stórhættulegar. 6.12.2021 11:12
Ósammála um þyngd refsingar í nauðgunarmáli í Landsrétti Karol Wasilewski hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Landsréttur staðfesti dóm héraðdóms í dag en einn Landsréttardómari vildi þyngja dóminn í þriggja ára fangelsi. Karol þarf að greiða konunni sem hann braut á 1,8 milljónir króna í bætur. 3.12.2021 16:00
Vill ryðja brautina fyrir aðra tvíkynhneigða Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það hafa tekið langan tíma að átta sig á því að hann væri tvíkynhneigður. Hann telur samfélagið opnara fyrir tvíkynhneigðum konum en körlum. 3.12.2021 13:28
Ásdís Halla ráðin til að undirbúa nýtt ráðuneyti Áslaugar Örnu Ásdís Halla Bragadóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri við undirbúning nýs vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu þar sem segir að Ásdís muni mun starfa hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti en vinna náið með öðrum starfsmönnum Stjórnarráðsins að þessu verkefni. 3.12.2021 13:11
Brynjar hættur á Facebook Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nýskipaður aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, er hættur á Facebook, tímabundið hið minnsta. Hann segir nýja starfið þess eðlis að þar sé ekki gert ráð fyrir ábyrgðarlausu glensi á samfélagsmiðlum. 2.12.2021 16:13
Skammar foreldra í Fossvoginum sem eigi að vita betur Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, segir foreldra í Fossvoginum eiga að vita betur en að tala um það sem þyngra en tárum taki að börn þeirra missi af skólabúðum. Skólastjórinn í Fossvogsskóla sagði upp störfum nýlega og vísaði til gríðarlegs álags sem fylgt hefði starfinu. 2.12.2021 15:42
Sá omíkron-smitaði á áttræðisaldri Einstaklingurinn sem greindist fyrstur manna hér á landi með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar er karlmaður á áttræðisaldri. Hann er fullbólusettur og hefur þess utan fengið örvunarskammt. 2.12.2021 14:15