Smitten vex með Lísu Rán Lísa Rán Arnórsdóttir hefur gengið til liðs við stefnumóta appið Smitten. Hún var áður vörustjóri farsíma-, net- og sjónvarpsþjónustu Nova. Lísa hóf störf þann 4. nóvember síðastliðinn. 9.12.2021 16:47
Alvarlegur grunur um geislavirkni reyndist sem betur fer rangur Umsjónarmaður fasteigna við Háskólann á Akureyri segist hafa verið verulega létt þegar í ljós kom að hann hafði ekki komist í snertingu við geislavirkt efni. Torkennilegur hlutur mun þó reynast Geislavörnum ríkisins vel. 9.12.2021 11:38
Bentu lögreglu á mögulegt vitni í Kaupmannahafnarmálinu Nefndin sem skoðaði viðbrögð KSÍ við ábendingum um kynferðislegt ofbeldi tilkynnti lögreglu um mögulegt vitni í umtöluðu hópnauðgunarmáli frá árinu 2010. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í fyrradag. 9.12.2021 07:01
Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2021 Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2021 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 7.12.2021 16:56
Leitaði til almannatengils vegna gruns um heimilisofbeldi landsliðsmanns Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ, brást við upplýsingum um að lögregla hefði verið kölluð að dvalarstað landsliðsmanns vegna grunsemda um heimilisofbeldi með því að leita til almannatengils. Fyrrverandi eiginkona umrædds landsliðsmanns varð fyrir vonbrigðum með hvernig KSÍ tók á málinu. 7.12.2021 14:44
Sér fyrir sér að fólk með örvunarskammt sleppi við fjöldatakmarkanir og hraðpróf Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra að viðhalda óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum í nokkrar vikur frá og með 9. desember. Ráðherra ákvað að framlengja núverandi aðgerðir um tvær vikur. 7.12.2021 13:59
Minnkandi líkur á gosi í Grímsvötnum Veðurstofan hefur fært fluglitakóða fyrir Grímsvötn niður á gult. Í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í gærmorgun, þar sem meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,6 sem er óvenjustór fyrir Grímsvötn, var fluglitakóðinn settur á appelsínugult í gær. 7.12.2021 11:20
Hjúkrunardeild fyrir eldri Covid-19 sjúklinga opnuð á Eir Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Deildin er einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun. 7.12.2021 09:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og inn í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 6.12.2021 18:01
Fyrrverandi forsætisráðherra Noregs fallinn frá Kåre Willoch, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Hægriflokksins, er látinn 93 ára gamall. Flokkurinn greinir frá í tilkynningu þar sem fram kemur að hann hafi lognast út af á heimili sínu í hverfinu Ullern í Osló. 6.12.2021 16:27