Guðmundur Felix maður ársins hjá hlustendum og lesendum Guðmundur Felix Grétarsson er maður ársins að mati hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og lesenda Vísis. Guðmundur Felix fékk ágræddar hendur á árinu eftir langa bið í Frakklandi. Hann hefur með óbilandi trú og kjarki verið fyrirmynd fólks og sýnt mikla þrautseigju og bjartsýni. 31.12.2021 11:32
Einangrun stytt í sjö daga Einangrunartími fyrir fólk með Covid-19 hér á landi hefur verið styttur í sjö daga úr tíu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins. 30.12.2021 18:01
Maskína og MMR verða að Maskínu Maskína og MMR sameinast þann 1. janúar 2022 undir hatti Maskínu. Með sameiningunni verður til eitt öflugasta rannsóknarfyrirtæki landsins sem mun kappkosta að mæta gæðakröfum íslenskra fyrirtækja og stofnana, eins og segir í tilkynningu. 30.12.2021 15:27
Fagnar 41,1 milljón króna með sonum sínum þremur um áramótin Kona á sjötugsaldri vann 41,1 milljón króna þegar hún var ein með allar tölur réttar í Lottó á jóladag. Þá var dreginn út hæsti þrefaldi potturinn hingað til. 30.12.2021 15:23
Tappinn úr flöskunni og búbblurnar flæða um áramótin Eitthvað virðist áhugi landsmanna á því að sötra áfenga drykki úr Vínbúðinni vera minni í ár en í fyrra ef marka má sölutölur. Salan í desember í ár er um tíu prósentum minni árið 2021 en var í desember í fyrra. Áhuginn í freyði- og kampavíni er þó meiri í ár ef eitthvað er. 30.12.2021 14:23
„Gott væri að fækka ferðum á bílum“ Styrkur svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs var nokkuð hár í borginni í morgun samkvæmt mælingum á þremur mælistöðvum Reykjavíkur. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir með því að notkun bílsins verði lágmörkuð í dag. 30.12.2021 13:56
Þórólfur hringdi í Kára: Íslensk erfðagreining tekur sýnin innanlands að sér Íslensk erfðagreining hefur á nýjan leik tekið að sér greiningu á sýnum innanlands. Gríðarlegt álag hefur verið í greiningu sýna á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og biðtími verið allt að 72 klukkustundir eftir niðurstöðu. 30.12.2021 12:08
Stefnir í að einangrun styttist í sjö daga Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir reiknar með að það skýrist í dag hvort einangrun einkennalítilla og -lausra með Covid-19 verði stytt í sjö daga. Þá munu í dag koma út reglur um vinnusóttkví sem fyrirtæki af öllum stærðum eiga að geta lagað sig að. 30.12.2021 11:27
Það gerist ýmislegt á bak við tjöldin „Enginn veit neitt og allir eru bara að gera sitt besta.“ Þessi tilvitnun hefur sjaldan átt jafn vel við og á þessum síðustu og verstu. Stundum er bara allt svolítið flókið og erfitt. En það gera allir mistök og það má bara ekki tapa gleðinni. 30.12.2021 06:54
Þríbólusettur og í 23 daga sóttkví gefst ekki upp fyrir dómstólum Þríbólusettur einstaklingur sem þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að sæta sóttkví í 23 daga hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Viðkomandi segist hafa verið útsettur fyrir smiti á heimili sínu frá 10. desember án þess að smitast. Það staðfesti fjölmörg PCR-próf sem hann hafi farið í. 29.12.2021 15:15