Síðasta vídeóleigan í bænum lokar dyrunum Þau tíðindi verða í lok mánaðar þegar síðasta kvikmyndaleigan í fullum rekstri lokar dyrum sínum. Um er að ræða Aðalvideoleiguna við Klapparstíg þar sem Reynir Maríuson hefur staðið vaktina í á fjórða áratug. 10.3.2023 09:59
Grét þegar hann var upplýstur um magn efnanna Á myndbandi sem sýnt var við aðalmeðferð í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reyjavíkur í dag sést Jóhannes Páll Durr, einn sakborninga, brotna niður þegar lögregla upplýsir hann um að vigtun á efnunum hafi leitt í ljós að um rúmlega 99 kíló af kókaíni væri að ræða. Verjandi Jóhannesar segir lögreglu hafa sprengt málið upp á fáránlegum tímapunkti. 8.3.2023 14:39
Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. 8.3.2023 14:08
„Það er ákveðin leitun að samvinnuþýðari sakborningi“ Verjandi Páls Jónssonar timbursala segir himinn og hafa hafa verið á milli þeirra sem hlutu þunga dóma í Saltdreifaramálinu svokallaða og ákærðu í stóra kókaínmálinu. Hann taldi eðlilega refsingu fyrir Pál vera upp á fjögur til fimm ár að frátöldu gæsluvarðhaldi sem umbjóðandi hans hefur setið í síðan í ágúst. 8.3.2023 12:25
Skýr ásetningur og krefst hámarksrefsingar Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að innflutningur á hundrað kílóum af kókaíni gæti ekki þýtt annað en hámarksrefingu fyrir sakborninga. Þetta kom fram í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða hefðu fengið allt að tólf ára dóm eða hámark refsirammans. 8.3.2023 11:22
Verbúðin tilnefnd sem besta handrit eftir allt saman Handritið að sjónvarpsþáttunum Verbúðin verður tilnefnt til Edduverðlauna eftir allt saman. Þetta er niðurstaða kjörnefndar Edduverðlaunanna. 7.3.2023 17:02
Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. 7.3.2023 10:32
Lýsir algjöru úrræðaleysi sem foreldri barns með átröskun Arna Pálsdóttir, lögfræðingur og móðir, kallar eftir hugarfarsbreytingu til geðraskana og heilbrigðiskerfi sem veiti barni hennar nauðsynlega þjónustu. Barn hennar glímir við átröskun. 6.3.2023 16:38
Árekstur á gatnamótum Lönguhlíðar og Flókagötu Nokkuð harður árekstur tveggja fólksbíla varð á gatnamótum Lönguhlíðar og Flókagötu á fjórða tímanum í dag. Engum virðist hafa orðið alvarlega meint af. 6.3.2023 16:06
Íslensk kona dæmd í fangelsi í stóru Oxycontin-máli í Finnlandi 32 ára gömul íslensk kona hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi í Finnlandi fyrir dreifingu á ópíóðalyfinu Oxycontin. Þyngsta refsingin í málinu hljóðaði upp á rúmlega fimm ára fangelsi. 6.3.2023 15:37