Orð Kristrúnar gangi gegn jafnaðarstefnunni Samflokkskonur Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar segja mannréttindi vera kjarna jafnaðarstefnunnar. Þær segja allt tal um hámarksfjölda hælisleitenda ekki í anda jafnaðarfólks og raunar ganga gegn jafnaðarstefnunni. 16.2.2024 16:03
Skýringar eiginkonunnar dugðu ekki í Landsrétti Landsréttur hefur staðfest skilorðsbundna dóma yfir feðgum fyrir umfangsmikla fíkniefnaframleiðslu og peningaþvætti. Ári eftir að feðgarnir voru handteknir komu þeir á fót sjávarafurðafyrirtæki sem flytur út fisktegundir frá Íslandi um allan heim og veltir milljörðum króna. Eiginkona föðurins sem sýknuð var í héraðsdómi af peningaþvætti var sakfelld í Landsrétti. 16.2.2024 15:52
Ísteka stefnir íslenska ríkinu Ísteka hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna ákvörðunar matvælaráðherra um að fella alla starfsemi félagsins tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. 16.2.2024 09:48
Styrkja börnin í Palestínu um 150 krónur fyrir hvert barn í Reykjavík Borgarráð samþykkti í dag einróma að styrkja börn í Palestínu um 150 krónur fyrir hvert reykvískt barn á aldrinum 0-18 ára. Þannig mun Reykjavíkurborg styrkja UNICEF um 4,5 milljónir króna. 15.2.2024 15:31
Klósettleysi yfir Íslandi setti ferðaplönin úr skorðum Snúa þurfti við flugvél KLM-flugfélagsins á leið sinni frá Amsterdam til Los Angeles sökum klósettleysis. Flugvélin var í lofthelgi Íslands þegar ákvörðunin var tekin. 15.2.2024 14:55
Lögmaður skammaður fyrir framkomu gagnvart erfingjum Lögmaður á Íslandi sem skipaður var skiptastjóri í dánarbúi konu hefur verið áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir að hafa haldið eftir fjármunum erfingjanna og reyna að villa um fyrir nefndinni. Hann heldur þó þóknun sinni sem erfingjar konunnar töldu allt of háa. 15.2.2024 14:31
Grunaður um líkamsárás á Enska barnum fyrir fjórum árum Karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dreifði myndum af á þriðjudag og óskar eftir að ná tali af er grunaður um líkamsárás á Enska barnum fyrir um fjórum árum. 15.2.2024 07:00
Ekkjan gafst ekki upp og fékk meirihluta dánarbótanna Ekkja flugmanns sem lést í flugslysi á Rangárvöllum sumarið 2019 fær tvo þriðju dánarbóta frá tryggingafélaginu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Tekist var á um hvort flugmaðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi sem orsakaði slysið. 14.2.2024 14:50
Vill ekki að Ísland skeri sig úr í hælisleitendamálum Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir núverandi hælisleitendakerfi ósanngjarnt. Hún vill ekki gera lítið úr áhyggjum fólks í breyttum heimi með auknum fjölda innflytjenda og hælisleitenda á Íslandi. Ísland þurfi að ganga í sama takti og Norðurlöndin en með mannúð að sjónarmiði. Hún segir velferðarsamfélag þurfa landamæri og hefur skilning á lögum dómsmálaráðherra um búsetuúrræði. 14.2.2024 14:00
Dagur svarar fyrir sig varðandi dýrari Fossvogsbrú Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir eðlilegt að hækkun á kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar sé sett í samhengi við samgönguverkefni víða um land af hendi ríkisins. 14.2.2024 13:12