Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu BPO innheimta hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn, tvíburabræðurna Guðmar og Hreim Guðlaugssyni. Viðskipti innlent 15. mars 2023 10:32
Sveinbjörn nýr framkvæmdastjóri hjá Fossum Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. Viðskipti innlent 14. mars 2023 14:18
Angeline ráðin yfirmaður markaðsmála hjá ECA Angeline Stuma hefur verið ráðin sem yfirmaður markaðsmála hjá sprotafyrirtækinu sports Coaching Academy (ECA). Félaginu er ætlað að styðja grasrótarstarf rafíþróttafélaga með hugbúnaði og lausnum sem auðveldi félögunum að halda uppi öflugu barnastarfi í rafíþróttum. Viðskipti innlent 14. mars 2023 09:57
Anna nýr framkvæmdastjóri Marel í Norður-Ameríku Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Marels í Norður-Ameríku. Hún er einnig framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá fyrirtækinu og mun gegna báðum störfum samhliða. Viðskipti innlent 13. mars 2023 19:58
Árni Jón og Þorvaldur Jón til Advania Árni Jón Eggertsson hefur verið ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri á rekstrarlausnasviði Advania og Þorvaldur Jón Henningsson deildarstjóri mun leiða einingu innan rekstrarlausna sem fer meðal annars fyrir vöruþróun, sjálfvirknivæðingu, þjónustuvöktun og ferlum. Viðskipti innlent 13. mars 2023 12:42
Jóhannes og Kristmundur nýir í stjórn Samtakanna '78 Á aðalfundi Samtakanna '78 sem fram fór í dag var kosið í þrjú sæti. Jóhannes Þór Skúlason og Kristmundur Pétursson koma nýir inn í stjórnina en Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir var endurkjörin. Þá var Álfur Birkir Bjarnason endurkjörinn formaður. Innlent 10. mars 2023 21:02
Laufey nýr mannauðsstjóri Icewear Laufey Guðmundsdóttir, verslunarstjóri hjá Icewear, hefur verið ráðin mannauðsstjóri fyrirtækisins. Viðskipti innlent 10. mars 2023 13:36
Valgerður og Jóhannes til Terra Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir og Jóhannes Karl Kárason hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Terra umhverfisþjónustu. Viðskipti innlent 10. mars 2023 11:22
Árni ráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar Árni Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar. Hann tekur við starfinu af Herði Gunnarssyni sem hefur gegnt því undanfarin tuttugu og tvö ár. Viðskipti innlent 10. mars 2023 11:19
Jón Garðar ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs Faxaflóahafna Jón Garðar Jörundsson hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs Faxaflóahafna og tekur við stöðunni af Gunnari Tryggvasyni sem ráðinn var í stöðu hafnarstjóra félagsins í lok seinasta árs. Viðskipti innlent 9. mars 2023 14:54
Fjögur kosin í stjórn Samtaka iðnaðarins Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Kosningaþátttaka var 76,26% en kosið var um fjögur almenn stjórnarsæti. Sjö framboð bárust til almennra stjórnarsæta. Innlent 9. mars 2023 12:37
Vilhjálmur Theodór nýr forstöðumaður sölu hjá Vodafone Vilhjálmur Theodór Jónsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sölu hjá Vodafone. Viðskipti innlent 9. mars 2023 11:46
Elísabet til Haga Elísabet Austmann hefur verið ráðin forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála hjá Högum hf. Til viðbótar við störf tengdum nýsköpunar- og markaðsmálum mun Elísabet einnig bera ábyrgð á vörumerkja- og samskiptamálum Haga á breiðum grunni. Viðskipti innlent 9. mars 2023 11:41
Grettir frá Aton.JL til Spor Grettir Gautason hefur verið ráðinn til samskipta- og ráðgjafastofunnar Spor þar sem hann mun veita viðskiptavinum stofunnar ráðgjöf í almannatengslum og samskiptum ásamt því að hafa umsjón með greiningar- og skýrsluvinnu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 9. mars 2023 11:09
Formaður knattspyrnudeildar ÍR í eigendahóp lögfræðistofu Axel Kári Vignisson hefur bæst í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar. Aðrir eigendur eru hæstaréttarlögmennirnir Arnar Kormákur Friðriksson, Haukur Örn Birgisson og Ómar Örn Bjarnþórsson. Viðskipti innlent 8. mars 2023 16:58
Hjalti ráðinn verkefna- og margmiðlunarstjóri Hjalti Björn Hrafnkelsson hefur verið ráðinn verkefna- og margmiðlunarstjóri hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Innlent 8. mars 2023 16:47
Valgeir nýr framkvæmdastjóri happdrættis DAS Valgeir Elíasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri happdrættis DAS. Hann mun starfa við hlið fráfarandi forstjóra, Sigurðar Ágústs Sigurðssonar, fram í maí næst komandi. Sigurður hefur verið forstjóri happdrættisins í 33 ár en lætur nú af störfum vegna aldurs. Viðskipti innlent 8. mars 2023 13:52
Kjartan Páll nýr formaður Strandveiðifélags Íslands Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og félagsfræðingur, var kjörinn nýr formaður Strandveiðifélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var síðastliðinn sunnudag. Innlent 8. mars 2023 11:16
Valli flatbaka segir skilið við Flatbökuna Valgeir Gunnlaugsson hefur verið þekktur sem Valli flatbaka síðan hann stofnaði pizzustaðinn Íslensku flatbökuna. Nú verður þó breyting þar á þar sem Valgeir hefur selt reksturinn. Viðskipti innlent 7. mars 2023 16:10
Skipuð ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Lilju Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. apríl næstkomandi. Innlent 7. mars 2023 12:50
Tvær konur taka við stjórnunarstöðum hjá Advania Júlía Pálmadóttir Sighvats og Guðrún Þórey Sigurbjörnsdóttir hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Advania. Júlía er nýráðin til fyrirtækisins sem forstöðumaður hjá viðskiptalausnum. Guðrún Þórey er orðin deildarstjóri eftir sex ára starf sem forritari hjá viðskiptalausnum Advania. Viðskipti innlent 6. mars 2023 11:28
Einar ráðinn framkvæmdastjóri Sólar Ræstingafyrirtækið Sólar ehf. hefur ráðið Einar Hannesson sem nýjan framkvæmdastjóra. Hann tók við starfinu 1. mars síðastliðinn af Þórsteini Ágústssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri hjá félaginu frá árinu 2007. Viðskipti innlent 6. mars 2023 09:34
Ráðin mannauðsleiðtogi Malbikunarstöðvarinnar Guðrún Árný Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem mannauðsleiðtogi hjá Malbikstöðinni og hefur nú þegar tekið til starfa. Viðskipti innlent 6. mars 2023 08:42
Ráðinn skrifstofustjóri í ráðuneyti Guðlaugs Þórs Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur tekið ákvörðun um að skipa Ólaf Darra Andrason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu eftirfylgni og fjármála til næstu fimm ára. 23 sóttu um stöðuna. Innlent 3. mars 2023 10:43
Settur ríkissáttasemjari sækir um nýtt starf Ástráður Haraldsson, héraðsdómari og settur ríkissáttasemjari, og Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari og formaður Dómarafélags Íslands, eru í hópi fjögurra sem hafa sótt um stöðu sem dómari við Landsrétt sem auglýst var laus til umsóknar á dögunum. Fjórir héraðsdómarar sóttu um stöðuna. Innlent 3. mars 2023 09:59
Valentín Lago kemur nýr inn í stjórn Play í stað Auðar Bjarkar Spánverjinn Valentín Lago kemur nýr inn í stjórn flugfélagsins Play samkvæmt tillögu sem lögð verður til samþykktar á aðalfundi félagsins sem fram fer 7. mars. Lago kæmi inn í stjórnina í stað Auðar Bjarkar Guðmundsdóttur. Viðskipti innlent 3. mars 2023 09:46
Fjórir vilja í embætti ráðuneytisstjóra Fjórar umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins bárust en umsóknarfrestur rann út 31. janúar síðastliðinn. Þriggja manna nefnd mun meta hæfi umsækjenda. Innlent 2. mars 2023 10:56
Sigþrúður nýr framkvæmdastjóri Forlagsins Sigþrúður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Forlagsins. Hún tekur við stöðunni af Agni Erni Jóhannssyni sem lét af störfum á dögunum. Menning 2. mars 2023 10:36
Átján vilja verða dagskrárstjóri Rásar 1 Átján sóttu um að verða næsti dagskrárstjóri Rásar 1. Þröstur Helgason sagði upp störfum í byrjun febrúar en hann hafði gegnt starfinu í nærri níu ár. Innlent 2. mars 2023 10:03
Forstjóri Ríkiskaupa ráðinn innkaupastjóri Bónuss Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa, hefur verið ráðinn innkaupastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Bónus. Viðskipti innlent 2. mars 2023 09:33