Ragnhildur tekur við Kveik Ragnhildur Þrastardóttir, fréttastjóri á Heimildinni, hefur verið ráðin ritstjóri Kveiks og mun hefja störf um miðjan október. Hún segist þó munu sakna Heimildarinnar. Innlent 2. október 2025 18:32
Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Staða framkvæmdastjóra rekstrar hjá Icelandair hefur verið lögð niður og tvö svið sem heyrðu undir hann heyra nú beint undir forstjóra. Samhliða því taka Leifur Guðmundsson og Arnar Már Magnússon sæti í framkvæmdastjórn. Arnar Már var einn af stofnendum Play og gengdi bæði stöðu forstjóra og framkvæmdastjóra rekstrar þar á bæ. Viðskipti innlent 2. október 2025 11:28
Eiríkur Orri til Ofar Tæknifyrirtækið Ofar hefur ráðið Eirík Orra Agnarsson sem viðskiptastjóra nýs sviðs, Heilbrigðislausna, þar sem hann mun meðal annars leiða uppbyggingu og starfsemi Canon Medical á Íslandi. Viðskipti innlent 2. október 2025 09:53
Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sett Eggert Benedikt Guðmundsson tímabundið í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar en núverandi forstjóri stofnunarinnar hefur óskað eftir leyfi út sinn skipunartíma sem er til marsloka næsta árs. Innlent 1. október 2025 13:46
Ásgeir og Darri til Landslaga Þeir Ásgeir Elíasson og Darri Sigþórsson hafa varið ráðnir til lögmannsstofunnar Landslaga. Þar bætast þeir í hóp átján lögmanna og lögfræðinga sem starfa þar. Viðskipti innlent 1. október 2025 10:11
Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Alfreð hefur ráðið Elsu Thorsteinsson sem nýjan markaðs- og sölustjóra fyrirtækisins. Viðskipti innlent 29. september 2025 10:13
Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Gerður Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrrverandi sveitarstjóri, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, hefur þegar lokið störfum og Gerður tekin við. Innlent 26. september 2025 18:53
Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Steinþór Pálsson hefur verið ráðinn forstjóri Thor landeldis. Viðskipti innlent 26. september 2025 12:31
Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Edda María Birgisdóttir hefur verið ráðin til að leiða nýja, stafræna markaðsþjónustu vefstofunnar Vettvangs. Edda María starfaði áður hjá frá Ístex hf. sem viðskiptastjóri og sá um markaðsmál og dótturfyrirtækið, Lopidraumur. Viðskipti innlent 25. september 2025 19:05
Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Guðný Halldórsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka og Kristófer Orri Pétursson hefur hafið störf í gjaldeyrismiðlun sama banka. Viðskipti innlent 25. september 2025 13:15
Rúna nýr innkaupastjóri Banana Rúna Sigurðardóttir hefur verið ráðin innkaupastjóri Banana, dótturfélags Haga hf. og hefur þegar tekið til starfa. Viðskipti innlent 24. september 2025 09:53
Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Eldar Ástþórsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Faxaflóahafna en þangað fór hann frá CCP. Þar starfaði Eldar að kynningar- og markaðsmálum í yfir áratug og síðustu ár sem aðal vörumerkjastjóri. Hann hefur þar að auki leitt markaðs- og kynningarstörf hjá Iceland Airwavex, nýsköpunarfyrirtækinu Gogoyoko og Forlaginu. Viðskipti innlent 24. september 2025 09:34
Bætist í eigendahóp Strategíu Unnur Helga Kristjánsdóttir hefur bæst í hóp eiganda ráðgjafafyrirtækisins Strategía. Viðskipti innlent 23. september 2025 14:44
Guðrún til Landsbankans Guðrún Nielsen hefur verið ráðin sem verkefnastjóri hjá Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 23. september 2025 12:37
Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Advania hefur ráðið Daníel Sigurð Eðvaldsson í stöðu tækni- og þjónustustjóra. Viðskipti innlent 22. september 2025 11:18
Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til starfa hjá Símanum. Hjörtur Þór Steindórsson tekur við starfi fjármálastjóra fyrirtækisins og þá hefur Sæunn Björk Þorkelsdóttir verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans. Viðskipti innlent 22. september 2025 09:42
Í fullkomnu starfi sem listrænn skipulagspési Nýr listrænn stjórnandi spunaleikhópsins Improv Ísland segir sig sjálfa vera eins konar listrænn skipulagspésa. Eftir að hafa fellt tár í fyrsta skipti sem hún prófaði spunaleik er hún mætt í listrænt teymi heils spunasamfélags. Lífið 21. september 2025 14:04
Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Emmessís hefur ráðið Ara Friðfinnsson sem markaðsstjóra fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19. september 2025 11:35
Hörður og Svala endurvekja Macland Hörður Ágústsson, stofnandi Macland, segir fyrirtækið komið aftur í sínar hendur þremur árum eftir að hann hætti öllum afskiptum af því. „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg. Í hvaða formi og hvenær er enn óljóst,“ segir hann jafnframt. Viðskipti innlent 19. september 2025 10:54
Guðjón Ragnar skipaður skólameistari Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðjón Ragnar Jónasson í embætti skólameistara Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu til fimm ára frá 1. nóvember næstkomandi. Innlent 18. september 2025 14:10
Arnar og Aron Elí til Reita Arnar Skjaldarson og Aron Elí Sævarsson hafa verið ráðnir til þróunarsviðs hjá Reitum fasteignafélagi. Viðskipti innlent 18. september 2025 13:57
Hrókeringar hjá bönkunum og Sverrir tekur við veltubók ISB Íslandsbanki hefur gengið frá ráðningu á nýjum forstöðumanni veltubókar bankans, sem kemur frá Landsbankanum, en Ármann Einarsson hefur stýrt því sviði undanfarin ár. Innherjamolar 17. september 2025 12:10
Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Heiður Anna Helgadóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Félagsstofnunar stúdenta. Hún tekur formlega við starfinu í lok nóvember. Viðskipti innlent 17. september 2025 10:28
Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Monika Hjálmtýsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmastjóra Landmarks fasteignamiðlunar. Hún tekur við af Andra Sigurðssyni, meðeiganda og löggiltum fasteignasala. Viðskipti innlent 17. september 2025 10:03
Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Stjórn Lyf og heilsu hefur ráðið Eddu Hermannsdóttur sem forstjóra félagsins. Viðskipti innlent 17. september 2025 08:11
Andri Sævar og Svava til Daga Andri Sævar Reynisson hefur verið ráðinn sérfræðingur í gagnagreiningu og þróun og Svava Helgadóttir tekur við stöðu gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra. Viðskipti innlent 16. september 2025 13:53
Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Helga Kristín Gunnlaugsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa verið ráðin nýir vörumerkjastjórar hjá Ölgerðinni. Viðskipti innlent 16. september 2025 11:36
Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Sigurður Ágúst Einarsson hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra verkfræðisviðs Coripharma. Viðskipti innlent 16. september 2025 10:17
Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti innlent 16. september 2025 08:18
Birgir til Banana Birgir Hrafn Hafsteinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Banana, dótturfélags Haga hf., og hefur þegar tekið til starfa. Viðskipti innlent 15. september 2025 15:41