Stefán Jökulsson er látinn Stefán Jökulsson, fyrrverandi lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, útvarpsmaður og tónlistarmaður, er látinn, 76 ára að aldri. Innlent 29.5.2026 12:03
Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Poppstjarnan Olivia Rodrigo er vægast sagt ósátt við gagnrýni um að kjóllinn sem hún klæddist í tónlistarmyndbandi við lagið „Drop Dead“ geri hana barnslega. Tónlistarkonan telur slíka gagnrýni til marks um það hvernig barnagirnd er normalíseruð í menningunni. Tónlist 29.5.2026 11:26
Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti „Við sjáum bara fram á að við verðum einn öflugasti tónlistarskólinn á landinu þegar rytmísk tónlist er annars vegar,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir um sameiningu Tónskóla hennar og Tónlistarskóla FÍH. Innlent 29.5.2026 07:00
Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist 28.5.2026 13:06
Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp. Lífið 25. maí 2026 15:24
Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Einu sinni fór ég til miðils sem tilkynnti mér, af mikilli yfirvegun, að því meira sem ég jánkaði og samþykkti orð hennar, þeim mun betri yrði tíminn okkar saman. Lífið 25. maí 2026 07:02
„Aulalegasti bófinn í bænum“ Óprúttinn aðili tróð Bítlamyndum sem fylgdu Hvíta albúminu fræga inn á sig og reyndi að hafa þær á brott úr Plötumarkaði Óla. Óli greip þjófinn glóðvolgan þegar myndirnar ætluðu að detta niður um hann. Innlent 23. maí 2026 20:51
Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Birgitta Haukdal og Herra hnetusmjör eru höfundar og flytjendur lagsins „Flugeldar“ sem er Þjóðhátíðarlagið í ár. Þau frumfluttu lagið í Brennslunni á FM957 í morgun en það fangar eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn. Tónlist 22. maí 2026 10:11
Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum „Við reynum að segja já við öllu sem býðst og afla okkur reynslu, sama hvert giggið er og stundum hafa þau verið ansi fyndin,“ segja þær Bára Katrín og Guðrún Ýr sem tilheyra stelpusveitinni Dóra & döðlurnar. Hljómsveitin, sem er skipuð sex dömum, hefur komið fram víða um land og eru stelpurnar þekktar fyrir líflega sviðsframkomu. Tónlist 22. maí 2026 07:01
Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband „Þetta lag heyrist nú ekki oft í dag, en myndbandið er mjög eftirminnilegt,“ segir Stefán Hilmarsson, söngvari Sálarinnar hans Jóns míns sem var gestur í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar í umsjón Auðuns Blöndal. Myndbandið sem um ræðir er við lagið „Tár eru tár“ en þættirnir eru allir aðgengilegir í heild sinni á Sýn+. Lífið 21. maí 2026 20:02
Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stefán Hilmarsson heldur sextugsafmælistónleika í lok júní og sendir frá sér sólóplötuna Ár & dagar á næstu vikum. Hann frumflutti lagið „Hringd'í mömmu“ af plötunni á Bylgjunni í gær en upphaflega átti Björgvin Halldórsson að syngja það með honum. Örlögin gripu í taumana þegar Björgvin féll sviplega frá í síðasta mánuði. Tónlist 21. maí 2026 16:51
Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Hinir ástsælu söngvarar og stórstjörnur, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, ætla að syngja nokkra stórsmelli sína á þrennum tónleikum á næstunni. Lífið 21. maí 2026 16:24
Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Bubbi Morthens syngur á nýrri plötu um nándarleysi sem hann burðaðist með lengi síðan hann varð fyrir misnotkun. Þá þurfti hann að horfast í augu við eigin dauðleika fyrir nokkrum árum þegar slagæð rifnaði í hálsi hans. Bubbi mætti í Menningarvaktina til Símonar Birgissonar leikhúsgagnrýnanda til að ræða plötuna og grófu þeir í leiðinni stríðsöxina. Menning 20. maí 2026 07:03
Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Á laugardaginn verða afturgöngur, tröllamæður, morðóðir álfar og afskornar tær hylltar með flutningi nýrra íslenskra kórverka í Langholtskirkju. Kammerkórinn og bílskúrsbandið Huldur fagnar þar útgáfu hljómdisksins „Í fossgljúfri“ með tónleikum, og í leiðinni íslenskri grasrótarkórtónlist og sígildum, þjóðlegum kveðskap. Lífið 19. maí 2026 19:11
Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Sara Pétursdóttir, sem áður gekk undir nafninu Glowie, segist standa með tónlistarkonunni Bríeti í deilum hennar við Pálma Ragnar Ásgeirsson, pródúsent og lagahöfundi. Glowie og Pálmi unnu saman áður en hún gerði útgáfusamning við Columbia Records árið 2017. Við tók áralangt samstarf Pálma með Bríeti en hún hefur nú krafið þrotabú félags, sem var í eigu Pálma, um greiðslu átta milljóna króna. Tónlist 19. maí 2026 15:45
Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Útvarpsmaðurinn Ívar Halldórsson er týndur sonur tónlistarmannsins Jóhanns G. Jóhannssonar. Ívar segir mikla leynd hafa ríkt yfir faðerni hans um árabil, það hafi verið súrrealískt að sjá mann svo líkan sér í sjónvarpi en þeim feðgum hafi komið vel saman þegar þeir hafi hitt hvorn annan í fyrsta sinn. Lífið 19. maí 2026 10:39
Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Rapparinn Aron Can og flugfreyjan Erna María eru sannkallað ofurpar en þau færðu sig nýverið í nýtt póstnúmer, úr Grafarvogi í Mosfellsbæ. Hjúin keyptu tæplega 200 milljón króna einbýlishús sem er enn óklárað en þau eru bæði framkvæmdaglöð og sýna frá ferlinu á samfélagsmiðlum. Lífið 19. maí 2026 09:41
Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Þegar ég steig inn í Laugardalshöllina um níuleytið á föstudagskvöldinu mætti mér veggur af dúndrandi bassa, ilmvatnslykt og klið. Myrkrið var þétt, loftið þungt og það var strax ljóst að hér átti ekki að hlusta — hér átti að háma í sig. Gagnrýni 19. maí 2026 07:04
Þá var kátt í höllinni Það var gríðarleg stemning í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið þegar rapparinn Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, steig á svið fyrir framan þúsundir manna. Tónlist 18. maí 2026 11:33
Shakira sýknuð Kólumbíska söngkonan Shakira hefur verið sýknuð í hæstarétti Spánar í stórfelldu skattamáli sem teygir sig aftur til ársins 2011. Ríkissjóði Spánar hefur verið gert að endurgreiða tónlistarkonunni rúmlega 60 milljónir evra (rúmir 8,6 milljarðar króna) vegna málsins. Tónlist 18. maí 2026 09:56
Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig. Lífið 16. maí 2026 23:01
Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Hvernig finnum við manneskjur tilgang í tilverunni? Oft er vísað í víxlverkun sem samanstendur annars vegar af eigin markmiðum í lífinu, eins og þegar við reynum að ná tökum á ákveðinni færni, og hins vegar af tengingu við eitthvað stærra samhengi, eitthvað æðra ef svo má orða. Á sviði tónlistar getur dæmi um þetta verið það að maður finnur merkingu við að bæði ná litlum sigrum í sinni eigin færni og samtímis fyllast lotningu fyrir mun betri flutningi annarra. Skoðun 16. maí 2026 16:32
Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Norræna kóramótið Norbusang hefur farið fram í Kópavogi síðustu daga en þrjú hundruð börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum taka þátt. Á morgun fara fram lokatónleikar í Digraneskirkju klukkan fjögur en þar verður tónverkið Valhoppar vorið frumflutt. Tónlist 15. maí 2026 23:52
Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll Herra Hnetusmjör fagnar þrítugsafmæli sínu nú í kvöld, föstudaginn 15. maí, með tvennum tónleikum í Laugardalshöll. Fjölskyldutónleikarnir hófust klukkan fimm en þeir síðari klukkan átta fyrir troðfullri höll. Tónlist 15. maí 2026 23:19
Skálmöld hafði betur fyrir dómi Meðlimir Skálmaldar hafi lagt útgáfufyrirtækið Öldu music í deilu um útgáfurétt á plötunni með upptökum frá tónleikum Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Innlent 15. maí 2026 16:50