Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 22:16
Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Karl Bretakonungur varð konungur árið 2022 eftir andlát móður sinnar, Elísabetar II, sem hafði þá gegnt embætti drottningar frá árinu 1952. Þegar Karl tók við embætti konungs hafði hann verið krónprins í rúmlega sjö áratugi og varð þá elsti maðurinn til að taka við bresku krúnunni. Lífið 22.10.2026 20:02
Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir. Innlent 21.10.2026 09:04
Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Gríska lögreglan hefur til rannsóknar andlát skoskrar konu sem fannst látin í ferðatösku í yfirgefinni byggingu í Aþenu. Grunur leikur á að einhver hafi haft umráð yfir farsíma hennar eftir andlátið og sent skilaboð til að villa um fyrir þeim sem leituðu hennar. Erlent 31. júlí 2026 22:05
Vill færa Bretum von á nýjan leik Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik. Erlent 20. júlí 2026 13:18
„Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin. Erlent 20. júlí 2026 07:39
Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, er nú formlega formaður Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu af Keir Starmer á mánudaginn. Burnham heitir því að verða forsætisráðherra allra Breta, hlusta á þjóðina og vinna í hennar þágu. Erlent 17. júlí 2026 12:20
Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Dómstóll í Skotlandi hefur dæmt Peter Murrell, fyrrverandi eiginmann Nicolu Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Erlent 24. júní 2026 07:18
Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Skoskur stuðningsmaður mun aldrei snúa aftur heim frá heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 22. júní 2026 08:52
Starmer segir af sér Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. Erlent 22. júní 2026 08:38
Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Búið er að aflýsa sex flugferðum Icelandair í dag vegna áhafnaskorts í flugstjórnarklefa. Það staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 31. maí 2026 11:01
Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, óskar Nigel Farage, formanni Umbótaflokksins í Bretlandi, til hamingju með kosningasigur í sveitarstjórnarkosningum þar í landi á Instagram. Lífið 8. maí 2026 14:37
Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Englendingar gengu að kjörborðinu í gær þegar sveitarstjórnarkosningar fóru fram í landinu þar sem töluverðar breytingar virðast vera í farvatninu. Erlent 8. maí 2026 07:41
Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi. Erlent 10. apríl 2026 14:59
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. Erlent 1. apríl 2026 22:11
Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum. Erlent 18. mars 2026 08:12
Eldhaf í Glasgow Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað. Erlent 9. mars 2026 08:04
Skotar fá frídag vegna HM Til að fagna því að vera komnir á heimsmeistaramótið í fótbolta í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár fá Skotar auka frídag. Fótbolti 6. janúar 2026 10:30
Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Skoski söngvarinn og verslunareigandinn Andrew Ure fannst látinn á fjallinu Ben Vane, daginn eftir afmælisdag sinn, eftir að hafa lagt einn af stað í fjallgöngu á gamlársdag til að prófa nýjan klifurbúnað. Lífið 5. janúar 2026 10:54
Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Sveitastjórn Múlaþings hyggst taka til skoðunar að hefja ferjusamgöngur milli Seyðisfjarðar og Skotlands. Bæjarfulltrúi telur að slíkt samstarf gæti bætt stöðu atvinnumála. Innlent 18. desember 2025 19:27
Vellinum í Edinborg lokað um stund og seinkanir mögulegar Edinborgarflugvelli var lokað í skamma stund í morgun vegna bilana hjá þjónustuaðila flugumferðarstjórnarinnar á vellinum. Að sögn Guðna Sigurðssonar, staðgengils forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, kann lokunin að hafa einhverja seinkun í för með sér fyrir farþega félagsins. Erlent 5. desember 2025 11:02
Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, segir blikur á lofti í breskum stjórnmálum. Sótt sé að stofnunum sem gegni lykilhlutverki í lýðræðissamfélagi, þar á meðal fjölmiðlum á borð við BBC. Þótt fjölmiðillinn hafi gert mistök og sé ekki hafin yfir gagnrýni, sé markvisst reynt að grafa undan stofnuninni. Þá óttast Sturgeon mögulegt bakslag í kvennréttindabaráttunni en hún segir konur í leiðtogastöðum verða fyrir auknu aðkasti frá því sem var þegar hún var að hefja sinn leiðtogaferil í stjórnmálum. Erlent 10. nóvember 2025 20:53
Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Skosk kona notaði gervibumbu í marga mánuði, falsaði sónarmyndir, þóttist hafa eignast dóttur og reyndi að telja fólki trú um að dúkka væri dóttir hennar. Upp komst um blekkingarleikinn þegar hún sagði dótturina hafa dáið. Lífið 23. október 2025 15:26
Falin myndavél á þingklósettinu og ósæmilegar myndir af börnum Skoski þingmaðurinn Colin Smyth hefur verið ákærður fyrir að koma falinni myndavél fyrir á salerni í skoska þinginu. Fyrr í mánuðinum var Smyth handtekinn fyrir að vera með ósæmilegt myndefni af börnum í fórum sér. Erlent 29. ágúst 2025 08:15