Aukin fjárfesting fram undan í Reykjavík Flestir eru sammála um mikilvægi aukinnar fjárfestingar til að auka hagvöxt á Íslandi. Þessi grein er til að vekja athygli jákvæðri þróun. Reykjavíkurborg hefur verið að kortleggja stöðuna til að vita hvað er í vændum og styðja við aukna fjárfestingu í Reykjavík, í samræmi við nýja atvinnustefnu borgarinnar. Skoðun 9. mars 2013 06:00
Samt ekki þjóðin "Þið eruð ekki þjóðin!“ á Ingibjörg Sólrún að hafa sagt á borgarafundi í Háskólabíói. Með upphrópunarmerki og öllu. Satt að segja væri ég til í að prenta þennan frasa á boli. Því auðvitað er mjög hugað að segja þetta við æstan múg. Hugað og satt. Fastir pennar 8. mars 2013 06:00
Forysta og "forysta“ Einhverra hluta vegna amast mörg hinna nýju framboða til Alþingis við formönnum. Þetta á sérstaklega við um byltingarþríeykið: Dögun, Lýðræðisvaktina og Pírata. Ýmist þykjast þessar stjórnmálahreyfingar alls ekki hafa formenn eða reyna að fela þá bak við orð eins og "talsmaður“, "málsvari“ eða "vaktstjóri“. Fastir pennar 1. mars 2013 06:00
Stærsta sjávarútvegshöfnin Gamla höfnin í Reykjavík hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og áratugi eins og borgarbúar vita. Höfnin var upphaflega gerð á árunum 1912 til 1917. Þá voru garðarnir tveir lagðir, Ingólfsgarður og Norðurgarður, sem mynda mynni hafnarinnar með fallegu gulu vitunum hvorum á sínum enda. Skoðun 28. febrúar 2013 06:00
Inneignarnóta innanlands Eins og stundum áður fékk ég sömu bókina tvisvar í jólagjöf. Nú var það fallega myndskreytt myndasaga upp úr Biblíusögum eftir Hugleik Dagsson. Ég hef almennt litla þörf fyrir að lesa bækur tvisvar, hvað þá að eiga þær tvisvar, svo ljóst var að öðru eintakinu þurfti að skila. Strax á aðfangadagskvöldi þurfti ég þannig í reynd að velja milli tveggja inneignarnóta, einnar úr Hagkaupum og annarrar úr Eymundsson. Skoðun 22. febrúar 2013 06:00
Atvinna eykst í Reykjavík Nýjar tölur sem unnar hafa verið af Hagstofu Íslands sýna að störfum hefur fjölgað um 3.000 í Reykjavík frá árinu 2010. Skoðun 20. febrúar 2013 06:00
Sprengjur Feneyjanefndar Nú hefur Feneyjanefnd Evrópuráðsins skilað drögum að áliti sínu á þeim stjórnarskrártillögum sem eru til umræðu á Alþingi. Í einni af fyrstu fréttum vikunnar um álitið kom fram að "enga sprengju“ væri þar að finna. Það er rangt. Álitið geymir þó nokkrar sprengjur. Skoðun 15. febrúar 2013 06:00
Næsti fjármálaráðherra Ég vil að næsti fjármálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins viti eitthvað um fjármál. Skoðun 8. febrúar 2013 06:00
Framtíðaröryggi þjóðarinnar Reglulega yfir vetrartímann kemur óveður á Íslandi með tilheyrandi vandræðum í samgöngum og samskiptum milli svæða. Fyrir nokkrum vikum gekk slíkt veður yfir vestanvert landið – langsamlega verst á Vestfjörðum – og afhjúpaði veikleika í samfélagi okkar. Þeir veikleikar áttu reyndar ekki að koma nokkrum á óvart. Skoðun 7. febrúar 2013 06:00
Klám fjölgar ekki nauðgunum Myndin hér fyrir neða sýnir lagalega stöðu kláms víða um heim. Ísland er þar í flokki með löndum á borð við Kúbu, Kína, Norður-Kóreu og harðstjórnarríki Mið-Austurlanda. Það er vandamál. Fastir pennar 1. febrúar 2013 06:00
Falsað fólk Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherja- og menntamálefndar Alþingis er ekki ánægður með Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar vegna ummæla hennar um hælisleitendur. Fleiri eru honum sammála. Það er gott. Fastir pennar 25. janúar 2013 06:00
Stuðningsgrein: Þannig er Guðbjartur Formannskosning í Samfylkingunni er val milli tveggja jafnaðarmanna. Það er í eðli sínu gott val. Það getur hins vegar skipt máli fyrir framtíðina hver úrslitin verða. Skoðun 21. janúar 2013 16:00
„Okkar“ Oft á þessum tíma árs má heyra nöldur fólks yfir þeirri staðreynd að hinn heilagi fréttatími RÚV sé styttri eða sé sýndur á öðrum tíma en alla jafna. Fastir pennar 18. janúar 2013 06:00
Tölum saman um betri hverfi Í fyrra óskaði Reykjavíkurborg eftir hugmyndum frá borgarbúum að smærri verkefnum í hverfum borgarinnar. Borgarbúar tóku vel við sér og komu með nærri 400 góðar hugmyndir. Embættismenn og hverfaráð Reykjavíkurborgar fóru síðan yfir hugmyndirnar og var kosið á milli 182 hugmynda í rafrænum íbúakosningum. Þar af kusu borgarbúar 124 hugmyndir sem komu til framkvæmda í fyrrasumar og haust. Hafa nú yfir 100 verkefni verið framkvæmd. Aðeins lítill hluti bíður vors. Skoðun 14. janúar 2013 06:00
Umræðuþræðinum lokað Mér hefur verið boðið að hitta fulltrúa Feneyjanefndarinnar þegar þeir verða hér á landi til að kynna sér drög að nýrri stjórnarskrá. Fastir pennar 11. janúar 2013 06:00
Að trufla ekki umferð Á seinasta degi ársins 2012 hljóp ég ásamt um þúsund öðrum í Gamlárshlaupi ÍR. Annað árið í röð var hlaupið fram og til baka eftir Sæbrautinni með smá hring í um hin fögru stræti Klettagarða og Vatnagarða, fram hjá gáma- og iðnaðarsvæðum þar sem maður ímyndar sér að vondir karlar í bíómyndum lemji góðu karlarna með röri til að fá upp úr þeim lykilorð að móðurtölvu FBI. Fastir pennar 4. janúar 2013 08:00
Haftlandinu góða Pawel Bartoszek lítur um öxl og rifjar upp drastískar aðgerðir fyrsta fjármálaráðherra Póllands eftir hrun kommúnismans. Hann lýsir eftir vel menntaðri og hugaðri manneskju í fjármálaráðuneytið sem væri sama þótt hún væri hötuð af þorra Fastir pennar 3. janúar 2013 06:00
Reykjavík er hlaupaborg Gamlárshlaup ÍR hefur verið fært úr miðbænum og vesturbænum að ströndinni austur með Sæbraut og niður í iðnaðarhverfin við Sundahöfn. Skipuleggjendum hlaupsins gengur gott eitt til. Þeir vilja tryggja betur öryggi hlaupara og gæslufólks vegna óþolinmóðra bílstjóra. Ég skrifa þessar línur vegna þess að ég er óhress með þessar breytingar. Skoðun 28. desember 2012 08:00
Allir að hamra inn nagla Ég er aurvaldssinni. Það er svona míní-auðvaldssinni. Mér finnst það ekki endilega óendanlega magnað að til sé fólk sem hefur orðið ríkt af því að breyta rafmagni í ál eða fundið olíu og tekist að selja hana. Skoðun 21. desember 2012 06:00
Sorgarsaga Íslenskt skólakerfi má á margan hátt bæta. Það fag sem ég vil hér ræða er mér hugleikið eftir þriggja ára veru mína í Óslóarborg þar sem ég nem hin ýmsu fræði, en læri þó fremur öðru um mannlífið. Þetta fag er sagnfræðin. Skoðun 19. desember 2012 06:00
Með fulla trú á sjálfum sér Fréttastofa RÚV færði okkur fréttir af því í vikunni að fólk treysti fréttastofu RÚV betur en öðrum fréttastofum. Þar var vitnað í könnun rannsóknarfyrirtækisins MMR á trausti almennings til helstu fjölmiðla. Skoðun 14. desember 2012 06:00
Litla-netið-okkar.is Einu sinni var internet. Og þetta internet þótti alveg ágætt en það var alveg rosalega stórt. Svo stórt að mörgum okkar þótti það óþægilegt. Sérstaklega þótti mörgum óþægilegt hvað við, á þessu litla landi, höfðum litla stjórn á því hvað menn gætu gert úti á hinu stóra interneti. Fastir pennar 7. desember 2012 06:00
Ástæðulaust að óttast Á næstunni er að vænta niðurstöðu EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu. Flestir muna þann gegndarlausa hræðsluáróður sem rekinn var fyrir undirritun Icesave-samninganna og átti ekki við nein haldbær rök að styðjast. Þrátt fyrir þann áróður gaf íslenska þjóðin skýr skilaboð í málinu í tvígang. Skoðun 30. nóvember 2012 08:00
Strikað yfir starfsstétt Borgarstjórn ætlar að "brúa bilið“ milli fæðingarorlofs og leikskóla. Í huga Sóleyjar Tómasdóttur, fulltrúa VG, sem mestan á heiðurinn af þeirri tillögu, er engin spurning hvernig það bil eigi að brúa. Það þarf að lengja "fæðingarorlofið og svo að lengja leikskólagönguna“. Bilið verður því ekki brúað með hjálp dagforeldra. Fastir pennar 30. nóvember 2012 08:00
Norræna nammileitin Ímyndum okkur eftirfarandi leik: Bláum og rauðum súkkulaðieggjum er dreift um Öskjuhlíðina. Eggin sjást ekki langar leiðir heldur þarf oft að kemba grasið og fara inn í runna til að finna þau. Krakkahópur fær það hlutverk að leita að eggjunum. Fastir pennar 23. nóvember 2012 06:00
Menntakerfi fyrir nemendur Sú þjóðsaga hefur verið lífseig hér á landi að við Íslendingar séum vel menntuð þjóð. Samanburður á menntunarstigi fólks á evrópskum vinnumarkaði segir hins vegar aðra sögu, því samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands og Eurostat hafa um 30% Íslendinga á aldrinum 25-64 ára eingöngu grunnmenntun samanborið við 25% í löndum ESB og 15-20% á Norðurlöndunum. Skoðun 15. nóvember 2012 06:00
Í hvað fer eyrnamerkti skatturinn? Á dögunum gaf SÁÁ út frá sér myndband með yfirskriftinni Betra líf. Þar eru lagðar fram athyglisverðar tillögur um að eyrnamerkja hluta tekna af áfengisgjaldinu fyrir meðferðarstofnanir. Augljóslega var skattlagning áfengis hugsuð sem tekjur til að vega á móti auknum kostnaði í félags- og heilbrigðiskerfinu sökum óhóflegrar áfengisneyslu. Þrátt fyrir það hefur verið bent á að erfitt hefur reynst að fá fjármagn til forvarna og meðferðar úr ríkissjóði. Skoðun 14. nóvember 2012 06:00
Skipulag í Reykjavík Síðastliðinn fimmtudag skrifaði Arna Mathiesen arkitekt grein í Fréttablaðið um skipulagsmál og spurði skipulagsyfirvöld í Reykjavík nokkurra spurninga. Áhugi Örnu á skipulagsmálum í Reykjavík er lofsverður. Okkur er bæði ljúft og skylt að bregðast við. Skoðun 13. nóvember 2012 06:00
Jóhönnuð atburðarás Hér í blaðinu fyrir helgi svaraði Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, grein minni um þátt Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra í kipp sem útlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) tóku á mánuðunum fyrir bankahrunið 2008. Skoðun 13. nóvember 2012 06:00
Græna hagkerfið á góðri leið Alþingi samþykkti með öllum greiddum atkvæðum þann 20. mars síðastliðinn stefnu um eflingu græna hagkerfisins, sem nefnd allra þingflokka undir minni forystu mótaði á árunum 2010-2011. Stefnan felur í sér fimmtíu tillögur um aðgerðir sem hafa það að markmiði að skapa atvinnu og verðmæti með aðferðum sem samrýmast markmiðum sjálfbærrar þróunar. Skoðun 12. nóvember 2012 06:00
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun
Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun