Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Vilja fjölga hólmum í Reykja­víkur­tjörn og frið­lýsa fjöru við Skerja­fjörð og Ægi­síðu

Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Hopp vill ráða sófakappana

Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína á ný því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Myndaband af uppátækinu rataði á TikTok en þar sjást þeir aka sófanum af mikilli færni eftir Leirulæk.

Innlent
Fréttamynd

Sjö vilja em­bætti skóla­meistara FB

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Innlent
Fréttamynd

Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn

Ungmenni í golfi á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur léku sér á æfingabásum vallarins að því að dræva golfkúlum yfir Krókhálstjörn og inn á bílastæði þjónustuverkstæðis Öskju við samnefnda götu. Forstjóri Öskju segir nokkra bíla hafa orðið fyrir kúlu með tilheyrandi tjóni.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn á skemmti­stað með þrjú ung­menni

Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið.

Innlent
Fréttamynd

„Varð að mar­tröð“

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi segir tölvupóstasamskipti milli sín og annarra ráðamanna í Reykjavíkurborg staðfesta það að hún hafi aldrei verið hlynnt „Græna gímaldinu“ sem risið hefur við Álfabakka. Hún segir framkvæmdina hafa breyst í „martröð.“

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er náttúru­lega al­gjör­lega fá­rán­legt“

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir kreditkortafærslur borgarstjóra með korti borgarinnar alvarlegt mál en að hans mati hefur borgarstjóri gefið nægilegar skýringar á færslunum og svarað vel fyrir sig. Hann segir kenningar um að einhver innan Samfylkingarinnar reyni að ná höggi á Heiðu fáránlegar.

Innlent
Fréttamynd

Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara.

Innlent
Fréttamynd

Sam­göngur fyrir börn

Borg sem er hugsuð út frá þörfum barna er borg sem virkar fyrir okkur öll. Börn þurfa ekki síður en fullorðnir að komast leiðar sinnar með öruggum og fljótlegum hætti hvort sem það er innan hverfisins eða á milli hverfa.

Skoðun
Fréttamynd

„Auð­vitað hef ég í­hugað það“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist „auðvitað hafa íhugað“ að einhver hafi verið að reyna að koma höggi á sig með því að vekja athygli á kreditkortafærslum hennar í borgarstjóraembætti. Hún vill ekki svara því hvort hún telji andstæðinga eða jafnvel samflokksmenn sína standa þar að baki. Heiða segist ekki íhuga stöðu sína vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Endur­greiddi eftir að fjöl­miðlar spurðu út í innkaupakortið

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur endurgreitt borginni alls 28 þúsund krónur vegna óheimillar notkunar á innkaupakorti borgarstjóra. Þrjár af fjórum endurgreiðslum greiddi hún eftir að fjölmiðlar sendu fyrirspurnir vegna innkaupakortsins. 23 skriflegar athugasemdir hafa borist vegna notkunar hennar á kortinu, þar á meðal vegna greiðslu fyrir uppfærslu á fyrsta farrými.

Innlent
Fréttamynd

Mikil tíma­mót fyrir Víkinga, byrja á bíla­stæðum

Framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Víkings fagnar samningi við borgarráð um að félagið fái alls um tíu þúsund fermetra lóð sem Gróðrastöðin Mörk hefur haft afnot af í Fossvogsdal. Þá feli samningurinn í sér að borgin muni sjá um sjá um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Safamýri og við Traðarland. Fyrsta verkefnið verði bílastæði í Fossfogsdal.

Innlent
Fréttamynd

Borgar­stjóri fer í saumana á kortafærslunum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur notað innkaupakort borgarstjóra á annan máta en forverar hennar í starfi. Dagur B. Eggertsson notaði kortið ekki, Einar Þorsteinsson greiddi fyrir leigubíla og hótelherbergi erlendis en á yfirliti Heiðu Bjargar má sjá færslur frá veitingastöðum á borð við Jómfrúna, leigubílum og kaffihúsum borgarinnar. Heiða Björg segist hafa farið að reglum í einu og öllu varðandi notkun kortsins.

Innlent
Fréttamynd

Um rekstur Reykja­víkur­borgar 2025

Rekstrarniðurstaðan A-hluta Reykjavíkurborgar (borgarsjóðs) fyrir fjármagnsliði og afskriftir var jákvæð um 7,2 ma.kr. árið 2025. Rekstrarniðurstaða A-hluta í heild sinni var hins vegar neikvæð um 5,3 ma.kr.

Skoðun
Fréttamynd

Um hvað snýst þetta allt saman?

Jú – auðvitað snúast kosningarnar í Reykjavík um fólkið í borginni. Þær snúast um traust og við kjósum þá sem við teljum að nái að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum verkefnum.

Skoðun
Fréttamynd

Hjólakynslóð fram­tíðar verður til

Það er gaman að hjóla, frelsandi tilfinning að setjast á hjólið – fá vindinn í fangið. Hægt að stýra hraðanum, fara hægar yfir þegar útsýnið er fagurt – eða stíga brekkuna og fá hjartað til að pumpa hraðar, taka heilsurækt á leiðinni til og frá vinnu.

Skoðun
Fréttamynd

Fjölga stæðum fyrir deili­bíla og raf­hlaupa­hjól í Reykja­vík

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni að fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum. Í dag eru níu safnstæði en lagt er til að þeim verði fjölgað í tuttugu til þrjátíu og þau verði annars vegar fyrir rafhlaupahjól og hins vegar fyrir deilibíla.

Innlent
Fréttamynd

„Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í af­mælis­gjöf“

Borgarráð samþykkti í dag að afhenda íþróttafélaginu Víkingi tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdalnum sem Gróðrastöðin Mörk leigði af borginni. Eigandi gróðrastöðvarinnar segir sorglegt að gróður og ræktun víki fyrir steypu en er fegin að það verði að minnsta kosti hægt verði að reka hluta stöðvarinnar á svæðinu til ársins 2050.

Innlent
Fréttamynd

Öll börn eiga rétt á öryggi

Við erum öll sammála um að leik- og grunnskólar eigi að vera öruggt umhverfi fyrir öll börn, þar sem öll börn eru boðin velkomin á sínum eigin forsendum.

Skoðun
Fréttamynd

„Við erum bara að mót­mæla“

Reykjavíkurborg vill að kofi sem börn hafa byggt í sameiningu við Lynghaga í Reykjavík verði fjarlægður þar sem hann er ekki öryggisvottaður. Börnin eru ekki ánægð og segja nær alla í hverfinu hafa skrifað nafn sitt við undirskriftalista þar sem áætlunum borgarinnar er mótmælt.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgar­stjóra en Björgu

Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri.

Innlent