Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fram 18-20 | Fram leiðir einvígið 1-0 Fram bar sigur úr býtum, 20-18, gegn Haukum í fyrsta leiknum um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram að Ásvöllum í Hafnafirði. Sigurður Eggertsson var frábær í liði Framara og gerði 6 mörk. Handbolti 29. apríl 2013 11:49
Guðmundur Hólmar fór líka til Vals Guðmundur Hólmar Helgason mun spila með Val á næsta tímabili en hann verður lánaður til liðsins frá Akureyri. Handbolti 27. apríl 2013 13:31
Geir gengur í raðir Valsmanna Valsmenn fengu góðan liðsstyrk í dag þegar skyttan örvhenta frá Akureyri, Geir Guðmundsson, skrifaði undir samning við félagið. Handbolti 26. apríl 2013 20:53
Kom bara heim til að kjósa Ólafur Stefánsson kom til landsins í fyrradag og stýrði þá sinni fyrstu æfingu með Val. Hann er strax byrjaður að undirbúa lið sitt fyrir næsta tímabil og hefur ráðið Claes Hellgren sem markvarðaþjálfara. Handbolti 25. apríl 2013 07:30
Líklega vont að vera blankur í Rússlandi Ekkert verður af því að hornamaðurinn Bjarki Már Elísson semji við rússneska félagið Chekhovski Medvedi á næstunni þar sem félagið er í fjárhagsvandræðum. Bjarki Már stefnir engu að síður ótrauður á að komast út í sumar. Handbolti 25. apríl 2013 06:30
Verður liðum í N1-deild karla fjölgað? Tillaga liggur fyrir ársþing HSÍ um að fjölga liðum í N1-deild karla strax á næstu leiktíð. Handbolti 24. apríl 2013 11:30
Ólafur tók Hellgren með sér til Íslands Ólafur Stefánsson er kominn til Íslands og er þegar byrjaður að taka til hendinni sem nýr þjálfari Vals. Handbolti 24. apríl 2013 10:00
Gylfi í banni í fyrsta leik Haukamaðurinn Gylfi Gylfason verður í banni þegar að Haukar mæta Fram í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum N1-deildar karla. Handbolti 22. apríl 2013 10:00
Ætla mér að spila minnst tvo leiki í viðbót Sebastían Alexandersson, markvörður ÍR, var heldur betur í sviðsljósinu í leik liðsins gegn Haukum á Ásvöllum á fimmtudagskvöldið. Handbolti 20. apríl 2013 08:00
Höfum engu að tapa Lokaúrslitin í umspilskeppni N1-deildar karla hefjast í Vodafone-höllinni í kvöld en þá mætast Valur og Stjarnan. Það lið sem vinnur fyrst tvo leiki spilar í N1-deild karla á næstu leiktíð. Handbolti 19. apríl 2013 06:30
Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Haukar 19-29 | Stórsigur Hauka Haukar jöfnuðu metin í undanúrslitarimmu sinni gegn ÍR með stórsigri í Austurbergi í kvöld. Næsti leikur fer fram á fimmtudagskvöldið. Handbolti 16. apríl 2013 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Fram - FH 24-19 | Fram jafnaði metin í einvíginu Framarar unnu fimm marka sigur á FH-ingum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla í handbolta í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er því 1-1. Handbolti 16. apríl 2013 14:50
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 27-19 Stjarnan vann Víking, 27-19, í oddaleik í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í N1-deild karla í handknattleik. Stjarnan hafði yfirhöndina allan leikinn og gáfu aldrei neitt eftir. Liðið byrjaði leikinn á því að komast í 5-0 og það forskot fór aldrei. Handbolti 14. apríl 2013 00:01
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍR 23-24 | ÍR leiðir einvígið 1-0 ÍR-ingar unnu Hauka, 24-23, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla í handknattleik en leikurinn fór fram að Ásvöllum í dag. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og gátu Haukar jafnaði metin í síðustu sókn leiksins. Handbolti 13. apríl 2013 16:30
Umfjöllun og viðtöl: FH - Fram 37-26 | N1-deild karla FH sigraði Fram 36-27 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1 deildar karla en leikið var í Kaplakrika. Staðan í hálfleik var 16-15 FH í vil. Handbolti 13. apríl 2013 00:01
Stjarnan knúði fram oddaleik Valur er komið áfram í úrslitaleik umspilskeppni N1-deildar karla en Stjörnumenn náðu að knýja fram oddaleik gegn Víkingi í sinni rimmu. Handbolti 11. apríl 2013 21:20
Daníel Freyr bestur Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, var kjörinn besti leikmaður umferða 15-21 á hófi sem Handknattleikssamband Íslands stóð fyrir í hádeginu. Handbolti 11. apríl 2013 13:06
Víkingur og Valur í góðum málum Stjarnan skoraði aðeins fimm mörk í fyrri hálfleik þegar að liðið tapaði fyrir Víkingi á heimavelli, 19-16, er umspilskeppni N1-deildar karla hófst í kvöld. Handbolti 9. apríl 2013 22:32
Guðlaugur tekur við Fram Guðlaugur Arnarsson verður næsti þjálfari karlaliðs Fram en það kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Handbolti 9. apríl 2013 19:05
Einar fékk heilahimnubólgu Einar Jónsson, þjálfari Fram, var lagður inn á spítala í gær eftir að hafa fengið heilahimnubólgu. Handbolti 6. apríl 2013 14:04
Mál Einars skýrast líklega í dag Norska handknattleiksfélagið Molde birti frétt á Facebook-síðu sinni í gær um að Einar Jónsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið. Sú frétt reyndist ekki vera rétt. Það er samt ekki enn búið að fjarlægja fréttina. Handbolti 6. apríl 2013 13:56
Sárnaði umræðan Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson hefur verið gagnrýndur fyrir að gefa ekki kost á sér í heimsmeistaramótið í handknattleik sem fram fór í janúar. Mörgum þótti það skrýtið að Alexander gæti spilað með félagsliði sínu en ekki landsliðinu og umræðan fór ekki fram hjá leikmanninum. Handbolti 6. apríl 2013 09:00
Gæti reynst fordæmisgefandi Kári Kristján Kristjánsson segist hafa spilað með íslenska landsliðinu í góðri trú eftir að hafa fengið leikheimild hjá læknum Wetzlar. Landsliðsþjálfarinn lýsir mikilli óánægju með vinnubrögð forráðamanna Wetzlar. Handbolti 6. apríl 2013 08:30
Fyrirliðinn með fullt hús Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti frábæran leik í sigrinum í Slóveníu á miðvikudagskvöldið og kórónaði síðan flotta frammistöðu með því að skora sigurmarkið á lokamínútunni. Handbolti 6. apríl 2013 08:00
Óvissa með Róbert Ísland mætir Slóveníu klukkan 16.00 á morgun í Laugardalshöll í mikilvægum leik. Með sigri tryggir Ísland sér sæti á EM í Danmörku á næsta ári en Slóvenar mega helst ekki við því að tapa ætli þeir sér að komast upp úr riðlinum. Handbolti 6. apríl 2013 07:00
Einar búinn að semja við Molde Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik, er á förum frá félaginu en hann er búinn að semja við norska félagið Molde. Handbolti 5. apríl 2013 22:17
Fram valtaði yfir Gróttu Fram vann afar auðveldan sigur, 39-19, á Gróttu er liðin mættust í átta liða úrslitum N1-deildar kvenna í kvöld. Handbolti 4. apríl 2013 22:11
Frábær sigur á einum erfiðasta útivelli Evrópu Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, var afar ánægður þegar Vísir heyrði í honum hljóðið eftir sigurinn frækna í Slóveníu í kvöld. Handbolti 3. apríl 2013 22:00
Kári Kristján spilar í Maribor Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór í aðgerð vegna góðkynja æxlis í baki fyrir rúmum mánuði síðan. Hann er búinn að jafna sig og mun spila leikinn mikilvæga gegn Slóvenum í undankeppni EM í dag. Handbolti 3. apríl 2013 07:00
Gunnar Andrésson tekur við Gróttuliðinu Gunnar Andrésson hefur gengið frá þriggja ára samningi um að taka við liði Gróttu af Ágústi Jóhannssyni sem er á leiðinni til Danmerkur á næsta tímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gróttu. Það er ekki enn ljóst í hvaða deild Grótta spilar því liðið er á leiðinni í umspil um laust sæti í N1 deild karla. Handbolti 29. mars 2013 11:15