Aldrei eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei fengið eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi og í ár, en þær eru nú orðnar tæplega sjö hundruð talsins. Innlent 23. nóvember 2020 19:00
Vísa ásökunum um gluggagægjur á bug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vísar ásökunum um gluggagægjur lögregluþjóna í Hafnarfirði alfarið á bug. Innlent 23. nóvember 2020 16:23
Hjólahvíslarinn hvekktur eftir torkennileg tilmæli frá lögreglu Lögreglumaður bað Bjartmar Leósson um að „hætta þessu hjólarugli“. Innlent 23. nóvember 2020 16:20
Með réttarstöðu sakbornings eftir veltuna í Öxnadal Ökumaður bíls sem valt út af þjóðveginum í Öxnadal í Hörgársveit fyrr í mánuðinum hefur réttarstöðu sakbornings. Innlent 23. nóvember 2020 13:58
Mjög rólegt hjá lögreglunni í nótt Mjög rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá miðnætti og fram á morgun að hennar sögn og aðeins komu fjögur verkefni inn á hennar borð á tímabilinu. Innlent 23. nóvember 2020 07:19
Sérstakar áhyggjur af fólki með þroskahömlun sem býr við ofbeldi Rúmlega tvö hundruð manns hafa leitað til Bjarkarhlíðar miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis frá því í september. Verkefnastjóri segir að ástandið sé þungt á mörgum heimilum. Hún hefur sérstakar áhyggjur af fólki meðþroskahömlun sem eigi erfitt með að leita sér aðstoðar í þessu árferði. Innlent 22. nóvember 2020 12:08
Annasöm nótt hjá lögreglu Eldur í báti við Grandagarð í Reykjavík var á meðal fjölda verkefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í nótt. Töluvert var um útköll vegna hávaða og ónæðis víðs vegar um borgina. Innlent 22. nóvember 2020 07:24
Lögreglan leitar enn að Ævari Annel Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að Ævar Annel Valgarðssyni og skorar á hann að gefa sig fram. Fréttir 21. nóvember 2020 11:06
Lýsir eftir grárri Mercedes Benz-bifreið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir grárri Mercedes Benz-bifreið árgerð 2008 með bílnúmerinu TN-L25. Síðast var vitað um bifreiðina í Mosfellsbæ klukkan tvö í nótt. Innlent 21. nóvember 2020 08:19
Árásarmaðurinn úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald Maðurinn sem birti myndband af sér á Facebook þar sem hann gengur í skrokk á öðrum manni hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Innlent 20. nóvember 2020 23:49
Lögregla lýsir eftir Ævari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ævari Annel Valgarðssyni, 20 ára. Innlent 20. nóvember 2020 16:56
Lögðu hald á um 1.300 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Reykjavík í gær og lagði hald á mikið magn af fíkniefna eða um þrettán hundruð kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Innlent 20. nóvember 2020 14:55
Húsleit og handtökur vegna bruna, líkamsárása og hótana Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í nokkuð umfangsmiklar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu í gær og seint í gærkvöldi sem lauk með handtöku tveggja karlmanna. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 20. nóvember 2020 09:11
Grunur um vopnaburð reyndist rangur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur mönnum í fjölbýlishúsi í Fellahverfi í Breiðholti nú síðdegis. Innlent 19. nóvember 2020 19:25
Innan við helmingur heimila með fullnægjandi eldvarnir Sex hafa látið lífið í fjórum eldsvoðum á þessu ári og hafa dauðsföll af völdum bruna ekki verið fleiri á einu ári undanfarinn áratug. Þá er brunavörnum ábótavant á tæplega helmingi heimila landsins. Tveimur eldvarnaátökum var ýtt úr vör í dag. Innlent 19. nóvember 2020 19:00
Féllu sjö metra þegar vinnupallur hrundi á Ísafirði Tveir menn slösuðust þegar þeir féllu um sjö metra til jarðar þegar vinnupallur hrundi við hús á Ísafirði á miðvikudaginn fyrir viku. Var annar fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Innlent 18. nóvember 2020 12:21
Kviknaði í íbúð mannsins sem birti árásina á Facebook Rannsókn er hafin á eldsupptökum í fjölbýlishúsi í Úlfarsárdal í Reykjavík í gærkvöldi. Íbúðin var vettvangur ljótrar líkamsárásar sem birt var myndband af á Facebook um helgina. Enginn var heima þegar slökkvilið mætti á vettvang og sinnti slökkvistarfi. Innlent 18. nóvember 2020 11:02
Enn ekki náðst að ræða við fólkið í bílnum Lögregla hefur enn ekki náð að ræða við karl og konu sem lentu í alvarlegu bílslysi í Öxnadal í Hörgársveit fyrr í mánuðinum. Innlent 17. nóvember 2020 11:58
Jólaskrauti stolið í Breiðholti og líkamsárás í Bústaðahverfi Jólaskrauti var stolið úr geymslum í Breiðholti og þá var einn handtekinn vegna líkamsárásar í Bústaðahverfi. Innlent 17. nóvember 2020 06:33
Handtóku karlmann sem sýndi grófa líkamsárás á Facebook Lögregla handtók í gær tæplega þrítugan karlmann sem birti myndband af sér á Facebook þar sem hann gengur í skrokk á öðrum manni. Myndbandið er enn í birtingu á Facebook nú rúmum sólarhring eftir að það var sett á samfélagsmiðilinn. Innlent 16. nóvember 2020 16:12
Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni með stöðu sakbornings Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri togarans Júlíusar Geirmundssonar, segist vera með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmiti Covid-19 sem kom upp um borð í togaranum í síðasta mánuði. Innlent 16. nóvember 2020 14:01
Tekinn 22 sinnum af lögreglu vegna sama brots Eftir að maðurinn gaf ítrekað upp ranga kennitölu tókst lögreglu loks að bera kennsl á hann og kom þá í ljós hann hefur ítrekað verið staðinn að verki við sama brot. Innlent 16. nóvember 2020 06:33
Umferðaróhapp talið vera vegna farsímanotkunar undir stýri Skömmu eftir klukkan þrjú í nótt barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í Kópavogi þar sem bifreið hafði verið ekið á grindverk. Innlent 15. nóvember 2020 08:24
Tuttugu tilkynningar bárust vegna hávaða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt, en níutíu mál voru skráð hjá henni frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í nótt. Innlent 15. nóvember 2020 07:34
Handtekinn á Hlemmi vegna líkamsárásar Karlmaður var handtekinn á Hlemmi um kl. 16 í dag, grunaður um líkamsárás. Að minnsta kosti einn hlaut áverka eftir að hafa verið sleginn í andlitið af handtekna. Viðkomandi gistir fangageymslur lögreglu en ekki var unnt að ræða við hann sökum ölvunarástands. Innlent 14. nóvember 2020 19:08
Gestir sátu að drykkju einum og hálfum tíma eftir heimilaðan opnunartíma Lögregla þurfti að hafa afskipti af starfsemi veitingastaðar við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Innlent 14. nóvember 2020 07:21
Veitingahúsi lokað vegna brota á sóttvarnalögum Veitingahúsi í Kópavogi var lokað í gærkvöldi vegna brota á sóttvarnalögum. Í eftirliti lögreglu um níuleytið reyndust 18 gestir vera inni á staðnum og tveir starfsmenn. Innlent 13. nóvember 2020 06:18
Þrjú þúsund tilkynningar vegna brota á sóttvarnarlögum Um þrjú þúsund tilkynningar hafa borist lögreglunni vegna brota á sóttvarnarlögum. Í um tvö hundruð tilfellum hefur málunum lokið með sektum. Margar eru vegna grímunotkunar og eða að fjöldatakmarkanir séu ekki virtar. Innlent 12. nóvember 2020 18:31
Lögreglu blöskrar framkoma gagnvart þjóðargerseminni Páli Óskari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir dæmigert af svikahröppum að nota jafn viðkunnanlegan mann og Pál Óskar í svindl sitt. Innlent 12. nóvember 2020 16:43