Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn. Erlent 7. maí 2026 21:59
Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. Erlent 7. maí 2026 09:14
Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Íranir hafa valdið mun meiri skaða á innviðum Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum en Bandaríkjastjórn hefur viljað kannast við. Þetta eru niðurstöður Washington Post, sem byggja á rannsóknum á gervihnattamyndum. Erlent 7. maí 2026 07:30
Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Íranskir fjölmiðlar segja það ekki rétt að viðræður um mögulegan frið við Bandaríkjamenn hafi tekið stakkaskiptum og að samkomulag gæti brátt legið fyrir. Íranir hafi enn ekki sent svar við nýjustu samningsdrögum Bandaríkjamanna og það þau drög innihaldi einhverjar „óásættanlegar kröfur“. Erlent 6. maí 2026 14:02
„Frelsisaðgerð“ Trumps mun ekki skila árangri við að opna Hormússundið Trump hefur reynt loftárásir, hafnbann og nú síðast óljósar fylgdaraðgerðir til að opna fyrir skipaumferð – en Íran ræður eftir sem áður enn ferðinni á Hormuz-sundi. Aðeins diplómatískar leiðir geta leitt til raunverulegrar lausnar á þessari krísu. Umræðan 6. maí 2026 12:44
Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú. Erlent 6. maí 2026 09:47
Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gert hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fyrstu sókn Bandaríkjanna og Ísraels í Íran, Operation Epic Fury, sé lokið og að markmiðum hennar hafi verið náð. Erlent 5. maí 2026 23:36
Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segja vopnahlé við Íran enn í gildi. Það er þrátt fyrir árásir Írana á bandarísk herskip og Sameinuðu arabísku furstadæmin og að Bandaríkjamenn hafi sökkt að minnsta kosti sex bátum íranska byltingarvarðarins í gær. Erlent 5. maí 2026 13:38
Vopnahléið hangir á bláþræði Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip. Erlent 5. maí 2026 07:56
Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Íranir segja tveimur eldflaugum hafa verið skotið að bandarísku herskipi á eða nærri Hormússundi í morgun. Íranskur miðill, tengdur byltingarverði Íran, segir eldflaugarnar hafa hæft skipið en því neita Bandaríkjamenn. Tveimur bandarískum flutningaskipum mun hafa verið siglt gegnum sundið í dag. Erlent 4. maí 2026 10:46
Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar. Erlent 4. maí 2026 06:39
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. Erlent 3. maí 2026 08:27
Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. Erlent 2. maí 2026 19:30
Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran. Erlent 2. maí 2026 13:25
Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran. Erlent 1. maí 2026 22:52
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. Erlent 30. apríl 2026 13:17
Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Yfirmönnum íranska knattspyrnusambandsins var vísað burt af landamæraeftirliti Kanada. Íran mun því ekki eiga fulltrúa á ársþingi FIFA sem fer þar fram um helgina. Fótbolti 30. apríl 2026 08:24
Áttu langt símtal Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma. Erlent 29. apríl 2026 18:32
Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína. Erlent 29. apríl 2026 13:45
Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi. Erlent 28. apríl 2026 08:32
Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi. Erlent 28. apríl 2026 07:12
Trump segir komið að Írönum að hringja Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana. Erlent 26. apríl 2026 11:26
Segja engan fund á dagskrá Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad. Erlent 25. apríl 2026 08:21
Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Sérstakir erindrekar og samningamenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta halda til Pakistans í fyrramálið á fund með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans. Erlent 24. apríl 2026 19:17
Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi. Erlent 23. apríl 2026 22:38
Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað flotanum við Hormússund að skjóta á og sökkva hverjum báti sem leggur þar tundurdufl. Erlent 23. apríl 2026 13:46
Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Hermenn úr byltingarverði Íran tóku í dag yfir stjórn á tveimur skipum á Hormússundi og fylgdu þeim til hafnar í Íran. Þá varð þriðja skipið fyrir árás en Írönum tókst ekki að taka stjórn á því. Bandaríkjamenn meina enn öllum skipum að sigla til og frá Íran og Hormússundi er enn lokað. Erlent 22. apríl 2026 20:19
Framlengir vopnahléið og herkvína Donald Trump segist ekki ætla að skipa hernum að hefja á nýjan leik árásir á Íran þegar vopnahlé milli Bandaríkjamanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar rennur sitt skeið á morgun. Hann segir að herkvínni gagnvart Íran verði þó haldið áfram. Erlent 21. apríl 2026 20:32
Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju. Erlent 21. apríl 2026 18:06
Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. Erlent 21. apríl 2026 07:21