Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Meistarabarátta um efsta sætið

Tiger Woods hefur hægt og bítandi blandað sér í baráttuna um efsta sæti heimslistans í golfi á ný eftir að hafa verið í sögulegri lægð á þeim lista. Einkalíf bandaríska kylfingsins var aðalfréttaefnið í lok nóvember árið 2009 en á þeim tíma var Woods í sérflokki sem kylfingur og hafði einokað efsta sæti heimslistans í mörg misseri.

Golf
Fréttamynd

Gullbjörninn segir að Tiger hafi gott af samkeppni frá McIlroy

Rory McIlroy er í efsta sæti heimslistans í golfi þessa stundina og hann var einnig valinn kylfingur ársins á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Norður-Írinn var efstur á peningalistanum á tveimur stærstu atvinnumótaröðum veraldar. Goðsögnin Jack Nicklaus, segir að gott gengi McIlroy, hafi kveikt neista í Tiger Woods sem ætli sér ekki að standa lengi í skugga hins 23 ára gamla McIlroy.

Golf
Fréttamynd

Ólafur Björn í 21. sæti í Flórída

Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, hafnaði í 21. sæti á Disney Lake Buena Vista golfmótinu sem lauk í Flórídafylki í Bandaríkjunum í gær.

Golf
Fréttamynd

Leggur ekki árar í bát

Sjómannslíf mun einkenna líf Birgis Leifs Hafþórssonar sem stefnir á að leika í Bandaríkjunum í vetur.

Golf
Fréttamynd

Tom Watson líklegur sem fyrirliði bandaríska Ryderliðsins

Bandaríska golfsambandið tilkynnir á morgun, fimmtudag, um valið á fyrirliða bandaríska Ryderliðsins sem mætir því evrópska á Gleneagles í Skotlandi árið 2014. Og það eru sterkar vísbendingar um að hinn þaulreyndi Tom Watson fái það hlutverk að stýra bandaríska liðinu. Watson var fyrirliði bandaríska Ryderliðsins sem fagnað sigri á Belfry vellinum árið 1993.

Handbolti
Fréttamynd

Fyrrum eiginkona Tiger Woods reisir 2000 fermetra glæsihýsi

Elin Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger Woods, er á grænni grein eftir skilnaðinn við atvinnkylfinginn. Nordegren, sem er sænsk, fékk um 13 milljarða kr. eftir skilnaðinn við Tiger Woods, og hún hefur eytt gríðarlegum fjármunum í nýtt heimili sem rís við North Palm ströndin við Flórída. Það ætti að fara vel fjölskyldu hennar í því húsi enda er það um 2000 fermetrar.

Golf
Fréttamynd

Rory McIlroy kylfingur ársins hjá golfíþróttafréttamönnum

Rory McIlroy heldur áfram að safna viðurkenningum á þessu tímabili en Norður-Írinn var valinn kylfingur ársins af golfíþróttafréttamönnum. McIlroy er efstur á heimslistanum og hann átti frábært tímabil þar sem hann vann m.a. PGA meistaramótið og lokamót Evrópumótaraðarinnar sem fram fór í Dubai.

Golf
Fréttamynd

Tinna komst ekki áfram á lokaúrtökumótið

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, komst ekki í gegnum fyrsta stigið á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Tinna var aðeins tveimur höggum frá því að komast á lokaúrtökumótið en hún lék hringina fjóra á keppnisvellinum í Marokkó á samtals átta höggum yfir pari vallar. Og endaði hún í 49. sæti af alls 75 keppendum. Alls komust 45 kylfingar áfram á lokaúrtökumótið af þessum velli.

Golf
Fréttamynd

Tom Watson gæti hugsað sér að vera fyrirliði Ryderliðsins

Hinn þaulreyndi kylfingur, Tom Watson, segir að hann myndi íhuga það alvarlega að taka að sér fyrirliðastöðuna fyrir bandaríska úrvalsliðið í næstu Ryderkeppni sem fram fer á Gleneagles vellinum í Skotlandi árið 2014. Watson, sem er 63 ára gamall. var fyrirliði bandaríska liðsins fyrir tveimur áratugum þar sem hann landaði sigri gegn Evrópuúrvalinu sem fyrirliði.

Golf
Fréttamynd

Kylfusveinar slógust í Ástralíu

Kylfusveinar eru venjulega lítillátir og kurteisir á vellinum. Sjá um að halda kylfingum rólegum og eru til fyrirmyndar með sinni hegðun. Á því varð undantekning á opna ástralska mótinu.

Golf
Fréttamynd

Tinna lék fyrsta hringinn á 74 höggum í Marokkó

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hóf í gær leik í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna 2013. Spilað er í bænum Marrakech í Marokkó. Tinna lék hringinn í gær á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari vallar. 154 keppendur eru skráðir til leiks og er leikið í tveimu riðlum, A og B, og eru 77 í hvorum riðli.

Golf
Fréttamynd

Tom Watson telur að golfið eigi ekkert erindi á ÓL

Tom Watson, einn þekktasti kylfingur allra tíma, er á þeirri skoðun að golfíþróttin eigi ekki að vera hluti af ólympíuleikunum. Bandaríski kylfingurinn, sem sigrað hefur á átta risamótum á ferlinum, telur að ÓL eigi að vera vettvangur fyrir áhugamenn en ekki atvinnumenn.

Golf
Fréttamynd

Rory McIlroy PGA kylfingur ársins í fyrsta sinn á ferlinum

Rory McIlroy var í gær útnefndur kylfingur ársins á bandarísku PGA mótaröðinni í golfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Norður-Írinn fær þessa viðurkenningu. Hann þakkaði unnustu sinni, tenniskonunni Caroline Wozniacki, m.a. fyrir þann árangur sem hann hefur náð á keppnistímabilinu. Wozniacki, sem er frá Danmörku, er í fremstu röð á heimsvísu í sinni íþrótt.

Golf
Fréttamynd

Afreks - og boðshópar GSÍ tilkynntir

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið í afreks-og boðhópa GSÍ (A og B), að baki valinu liggja viðmiðunarreglur afreksstefnu GSÍ. Afrekshópur A er skipaður þeim kylfingum sem sýndu hvað bestan árangur í sínum flokkum á seinasta tímabili og í boðshópi (B) verða kylfingar sem ekki skipa Team Iceland eða A hóp en falla þó undir viðmiðunarreglu. Í kringum áramót verða svo 2-6 kylfingar valdir úr A hópi til að skipa Team Iceland hópinn

Golf
Fréttamynd

Kaymer vann Nedbanks golfmótið í Suður-Afríku

Þjóðverjinn Martin Kaymer sigraði Nedbanks Challenge mótið í Sun City í Suður-Afríku í dag. Vendipunkturinn var á 14. holu þegar Kaymer fékk fugl þrátt fyrir að slá upphafshöggið langt út fyrir braut þar sem Kaymer var í raun heppinn að finna boltann.

Golf
Fréttamynd

Einfætti kylfingurinn | myndband

Manuel de los Santos er enginn venjulegur kylfingur. Þrátt að vera með aðeins einn fótlegg hefur honum tekist að ná ótrúlegum tökum á golfíþróttinni. Hann er kominn með þrjá í forgjöf og slær hátt í 300 metra upphafshögg.

Golf
Fréttamynd

Takmarkanir settar við notkun á löngum pútterum

Á undanförnum fimm risamótum í golfi hafa þrír sigurvegarar notað umdeilda púttera sem eru með lengra skafti en hefðbundnir pútterar. Svokallaðir "magapútterar“ hafa notið meiri vinsælda en áður en með slíkum pútterum geta kylfingar nýtt sér líkama sinn til þess að ná meiri stöðugleika á flötunum. Æðstu yfirvöld golfíþróttarinnar í Skotlandi og Bandaríkjunum hafa lagt til að frá og með árinu 2016 verði kylfingum bannað að láta hluta púttersins koma við líkamann á meðan þeir pútta.

Golf
Fréttamynd

John Daly kastaði pútternum út í skóg

John Daly er einn þekktasti kylfingur heims en hann þarf að stóla á að fá boð frá styrktaraðilum til þess að komast inn á PGA mótin í Bandaríkjunum og hann hefur reynt fyrir sér á Evrópumótaröðinni. Daly var langt frá sínu besta á opna Hong Kong meistaramótinu sem lauk um helgina. Þar missti hann stjórn á skapi sínu þar sem hann kastaði pútternum sínum út í skóg.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á litla sem enga möguleika

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG á afar litla möguleika á því að komast áfram á þriðja stig úrtökumótsins fyrir PGA-mótaröðina eftir að hann lék þriðja hringinn í Flórída á 70 höggum í dag. Birgir Leifur er í 67. sæti fyrir lokadaginn en tuttugu efstu kylfingarnir komast áfram.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur í erfiðri stöðu á úrtökumótinu í Flórída

Birgir Leifur Hafþórsson er í erfiðri stöðu þegar keppni er hálfnuð á öðru stigi úrtökumótsins fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Birgir lék á 73 höggum í gær á Plantation Preserve vellinum í Flórída eða 2 höggum yfir pari vallar.

Golf