Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Kristín Dís Árnadóttir lék allan leikinn fyrir Brøndby er liðið tryggði sér sæti í úrslitum dönsku bikarkeppninnar með 3-1 sigri gegn AGF í síðari undanúrslitaleik liðanna í dag. Fótbolti 17. maí 2024 18:24
Zlatan sendi Fury kveðju: „Njóttu bardagans og vertu viss um að vinna hann“ Enski boxarinn Tyson Fury fékk góðar kveðjur frá sjálfum Zlatan Ibrahimovic fyrir titilbardaga sinn gegn Oleksandr Usyk. Sport 17. maí 2024 17:01
Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Forseti FIFA, Gianni Infantino, var heldur harðorður í garð samtakanna sem gagnrýnt hafa fyrirhugaðar breytingar á heimsmeistaramóti félagsliða. Hann sagði gagnrýnina tilgangslausa og benti á að þeir fáu leikir sem FIFA skipuleggur fjármagna fótboltastarfsemi um allan heim. Fótbolti 17. maí 2024 16:01
„Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Þorsteinn Halldórsson gaf sig til tals fyrir komandi leiki íslenska kvennalandsliðsins gegn Austurríki í undankeppni EM. Þar á hann á von á tveimur erfiðum leikjum gegn sterkum andstæðingi sem spilar á háu orkustigi. Fótbolti 17. maí 2024 15:01
Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í dag valin í fyrsta sinn í íslenska A-landsliðið í fótbolta en hún er í hópnum fyrir tvo leiki á móti Austurríki í undankeppni EM 2025. Fótbolti 17. maí 2024 13:28
Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Ný nöfn eru í íslenska landsliðshópnum fyrir risaleiki í undankeppni EM kvenna í fótbolta. Cecilía Rán Rúnarsdóttir snýr líka til baka í landsliðið. Fótbolti 17. maí 2024 13:10
Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir fjórar breytingar og kallar á þrjá nýliða í nýjasta landsliðshóp sinn. Hér má sjá hann ræða hópinn sinn á blaðamannafundi. Fótbolti 17. maí 2024 13:01
Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman „Þetta er minn síðasti blaðamannafundur hér,“ sagði Thomas Tuchel, stjóri Bayern München, á fundi í morgun. Félagið leitar áfram logandi ljósi að nýjum þjálfara. Fótbolti 17. maí 2024 11:27
Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Cristiano Ronaldo, leikmaður Al Nassr í Sádi-Arabíu, er launahæsti íþróttamaður heims samkvæmt úttekt tímaritsins Forbes. Fótbolti 17. maí 2024 10:30
Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Nú er loksins ljóst hvar næsta heimsmeistarakeppni kvenna í knattspyrnu fer fram. Brasilía mun halda HM 2027. Fótbolti 17. maí 2024 09:00
Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Barcelona þarf að fá tæplega tuttugu milljarða íslenskra króna í kassann fyrir 30. júní ætli félagið sér að festa kaup á leikmönnum, eða skrá nýja leikmenn, í sumar. Fótbolti 16. maí 2024 23:30
Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Barcelona vann 2-0 útisigur á Almería í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Sigurinn styrkir stöðu liðsins í 2. sæti deildarinnar sem Real Madríd hefur nú þegar unnið. Fótbolti 16. maí 2024 21:47
Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Bikarmeistarar Víkings eru komnir áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta. Sömu sögu er að segja af Keflavík og Fylki. Íslenski boltinn 16. maí 2024 21:31
Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Leeds United er komið í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 4-0 sigur á Norwich City í síðari leik liðanna í undanúrslitum umspilsins. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli en í kvöld var aldrei spurning um hvort liðið væri á leið á Wembley. Enski boltinn 16. maí 2024 21:05
Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Sverrir Ingi Ingason og félagar í Midtjylland eru komnir á topp dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á FC Kaupmannahöfn, ríkjandi meisturum. Fótbolti 16. maí 2024 20:15
Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Kolbeinn Þórðarson lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar í 2-2 jafntefli á útivelli gegn Sirius þegar liðin mættust í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Fótbolti 16. maí 2024 19:30
Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Viðar Ari Jónsson skoraði eitt af sjö mörkum HamKam í 7-1 útisigri liðsins á Sarpsborg 08 í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Þá lagði hann upp eitt til viðbótar. Fótbolti 16. maí 2024 18:26
Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði sigurmark Silkeborg þegar liðið lagði AGF í dönsku efstu deild karla í knattspyrnu. Fótbolti 16. maí 2024 18:05
UEFA setur pressu á City Football Group UEFA hefur sett City Football Group tvo valkosti fyrir næsta tímabil. Ef ekki verður farið eftir fyrirmælum fyrir 3. júní verður annað hvort Manchester City eða Girona lækkað um tign og látið spila í Evrópudeildinni á næsta ári. Fótbolti 16. maí 2024 17:15
Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Armin Gigović hefur verið fyrirliði 21 árs landsliðs Svía í fótbolta en spilar aldrei fyrir A-landsliðið. Hann ákvað að skipta um landslið. Fótbolti 16. maí 2024 16:46
Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Indverska knattspynugoðsögnin og þriðji markahæsti landsliðsmaður heims, Sunil Chhetri, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann mun leika sinn síðasta landsleik gegn Kúveit, 6. júní næstkomandi. Fótbolti 16. maí 2024 14:30
Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Blað verður brotið í sögu deildarkeppni karla í fótbolta í Danmörku á morgun þegar að Fabiana Alcalá verður fyrsta konan til þess að stýra karlaliði. Fabiana stýrir AB gegn Nykobing á morgun í 2.deildinni en Jóhannes Karl Guðjónsson var í gær ráðinn AB. Fótbolti 16. maí 2024 12:05
Allegri afklæddist á hliðarlínunni Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, byrjaði að afklæðast á hliðarlínunni í úrslitaleik ítölsku bikarkeppninnar í gær. Fótbolti 16. maí 2024 11:30
Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, heimilaði meðlimi framkvæmdaráðs sambandsins að vera á meðal gesta á ráðstefnu sambandsins sem stendur yfir í Bangkok þrátt fyrir að sá sitji í fangelsi. Fótbolti 16. maí 2024 10:30
„Þetta var ótrúlega erfitt“ John Andrews, þjálfari Víkings, var glaðbeittur á svip eftir 1-0 baráttusigur á liði Þróttar á Avis-vellinum í Laugardal í kvöld. Þetta er annar sigur Víkinga á tímabilinu en fimm umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Fótbolti 15. maí 2024 21:15
Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn Dusan Vlahovic skoraði eina mark leiksins er Juventus tryggði sér ítalska bikarmeistaratitilinn með 1-0 sigri gegn Atalanta í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 21:09
KA sneri taflinu við í seinni hálfleik KA er á leið í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 endurkomusigur gegn Vestra í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 20:00
Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Fimm Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 19:24
Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark Lilleström er liðið vann góðan 3-2 sigur gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 15. maí 2024 17:51
Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Félög í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu munu á næsta ársfundi deildarinnar kjósa um það hvort notkun myndbandsdómgæslu, VAR, verði hætt frá og með næsta tímabili. Fótbolti 15. maí 2024 17:17
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti