Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag. Innlent 24.8.2026 15:51
Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur. Innlent 24.8.2026 12:52
Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag og stóð til að taka skýrslu af læknum á Möltu sem eiga að hafa séð um meðferð brotaþola ytra. Innlent 24.8.2026 10:45
Virtist taugaóstyrkur og brast í grát „Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína. Innlent 18. ágúst 2026 22:31
Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur „Ég er saklaus af öllum ákæruliðum. Ég beitti engu ófbeldi né hótaði þolanda.“ Þetta voru fyrstu orð Sigurðar Gunnars Ágeirssonar við skýrslutöku í Reykholtsmálinu. Hann mundi eftir fæstu og vildi ekki tjá sig um neitt sem varðaði dóttur hans, sem er ein af ákærðu. Innlent 18. ágúst 2026 16:26
Hafi aldrei farið í Reykholt Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun. Innlent 18. ágúst 2026 13:41
Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Níels Pálmar Benediktsson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu, gaf skýrslu fyrir dómara í dag. Hann hafi einungis komið upphaflega í því skyni að lána bíl en neitar að hafa sent skilaboð þar sem lagt er á ráðin um hótanir um barnaklám. Innlent 18. ágúst 2026 11:06
Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag. Þrír sakborningar fara fyrir dómara í dag. Innlent 18. ágúst 2026 08:59
Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. Innlent 17. ágúst 2026 13:24
Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Innlent 17. ágúst 2026 07:35
Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex sæta ákæru fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024, er komin á dagskrá Héraðsdóms Suðurlands. Reiknað er með því að aðalmeðferð taki heila sjö daga. Innlent 11. ágúst 2026 13:20
Neita öll sök í Reykholtsmálinu Öll sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. Innlent 16. mars 2026 13:41
Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi. Innlent 8. mars 2026 22:31
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. Innlent 4. mars 2026 18:49
Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu í Reykholti í Biskupstungum í apríl í fyrra er lokið. Það kemur í hlut héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. Innlent 11. apríl 2025 07:02
Sakamálin sem skóku þjóðina Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést. Innlent 28. desember 2024 07:15
Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. Innlent 11. október 2024 16:18
Fólkið sem er talið hafa brotið á Maltverjanum látið laust Tveir sakborningar sem grunaðir erum um að brjóta á maltneskum karlmanni í Reykholti í Biskupstungum lok aprílmánaðar hafa ekki verið úrskurðaðir í frekara gæsluvarðhald. Innlent 10. júní 2024 11:40
Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur en einn látinn laus Tveir sakborningar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á mánudaginn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í Reykholti gegn maltneskum manni. Gæsluvarðhaldið gildir til fyrsta júlí. Innlent 6. júní 2024 12:00
Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu. Innlent 27. maí 2024 14:52
Sleppt úr haldi lögreglu Einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Atburðarásin er að skýrast að sögn lögreglu. Innlent 22. maí 2024 15:43
Vænsti maður og harðduglegur Íbúar í Reykholti og Laugarási bera eldri karlmanni sem hefur starfað og búið þar í lengri tíma ákaflega vel söguna. Þar fari harðduglegur vænsti maður sem fólk skilur ekki að einhver hafi viljað gera mein. Fjögur eru í gæsluvarðhaldi grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 17:36
Maðurinn ríkisborgari Möltu Maðurinn sem grunur er um að hafi verið frelsissviptur í heimahúsi í Reykholti í Bláskógabyggð er með maltneskt ríkisfang. Fjögur eru í haldi vegna málsins, grunuð um frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun. Innlent 13. maí 2024 12:32
Samfélagið í áfalli vegna málsins Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir samfélagið í áfalli vegna meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í heimahúsi í Reykholti. Gerendur eru sagðir tengjast fjölskylduböndum. Innlent 12. maí 2024 19:09