Hafi aldrei farið í Reykholt Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 13:41 Vilhjálmur Vilhjálmsson er lögmaður Halldórs Loga. Vísir/Anton Brink Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun.
Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltenskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Aðalmeðferðin hófst í gær og er gert ráð fyrir því að hún standi yfir fram í næstu viku. Fyrr í dag gaf Níels Pálmar Benediktsson skýrslu. Þar á eftir kom Halldór Logi, í fylgd fangavarðar. Hann fékk fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps. Þegar hann var beðinn um að lýsa kvöldinu segist hann aldrei hafa farið með upp í Reykholt. „Ég var þarna á heimili Andra. Ég var búinn að reykja svolítið af grasi. Ég var búinn að vera að reykja og hlusta á tónlist,“ segir hann og tekur seinna fram að hann hafi dvalið í tvo til þrjá daga á heimili Andra Más Mortensen Birgissonar og Ingunnar Rutar Sigurðardóttur í Kópavogi. Þau eru einnig ákærð í málinu. „Svo koma þarna tveir aðilar og svo allt í einu erum við að fara að gera eitthvað. Við höldum út í einhvern bíl, svo leist mér ekkert á blikuna og fór út einhvers staðar, mér skilst að það hafi verið í Mosó.“ Halldór Logi hafi síðan komið sér á puttanum aftur upp í Sunnusmára, með „einhverri konu“, til að ná í dótið sitt en þar hafi enginn verið. Hann hafi því húkkað far til Keflavíkur og farið heim til ömmu sinnar. „Tjúnaður“ ökumaður fékk hann til að fara Halldór átti í erfiðleikum með að lýsa mönnunum tveimur sem eiga að hafa verið með honum í bílnum auk Andra. Báðir hafi þeir verið stórir og breiðir, annar yngri en hinn eldri. „Þeir ætluðu að fara að redda einhverju fyrir pabba Ingunnar og mér leist ekkert á blikuna þannig að ég fór ekkert með,“ segir hann. Út undan sér heyrði hann að til stæði að koma einhverjum út úr íbúðinni en vissi Halldór ekki hverjum. Hann vissi þó að málið varðaði einhverja leiguskuld. Halldór Logi sé þá mjög áttavilltur og gerði sér ekki grein fyrir því hvert þeir keyrðu en segist hafa farið út úr bílnum í kringum Mosfellsbæ. Um hafi verið að ræða svartan jeppling. Halldór segist hafa setið í aftursæti bílsins, Andri undir stýri, annar maður við hlið hans og sá fjórði við hlið Halldórs. Tímaskyn hans sé ekki upp á það besta eftir að hafa verið að reykja gras svo hann viti ekki hversu lengi þeir voru í bílnum. Sú frásögn er ekki í samræmi við frásögn Níelsar sem segir að þeir hafi einungis verið þrír í bílnum. Bæði Níels og þriðji maðurinn, sem hann nefndi ekki á nafn, hefðu setið aftur í þar sem að sætishitinn var bilaður í framsætinu og því sætið alltaf steikjandi heitt. Halldór var spurður af hverju hann fór út úr bílnum á þessum tímapunkti. „Þetta var einhvern veginn bara svo mikið rugl í gangi þarna,“ segir hann. „Mér leist ekki á hvað það var rosalega mikill æsingur í Andra. Hann var einhvern veginn út um allt og það fékk mig til að vilja ekki vera þarna.“ Hann lýsir Andra sem „dálítið tjúnaður á því“. Fór aldrei upp í Reykholt Sækjandinn ber undir Halldór orð Andra og Ingunnar í skýrslutöku lögreglu og Níelsar fyrir dómi. Þau sögðu öll að einungis einn maður, Níels, hefði komið inn í íbúðina en Halldór segir að þeir hafi verið tveir. Þá sagði Andri að Halldór hefði verið með þeim og farið með þeim upp í Reykholt. „Ég veit ekki af hverju hann myndi vera að segja eitthvað svona,“ svarar Halldór. „Ég fór ekki upp í Reykholt.“ Sé enn ekki kominn með símann Halldór segist hafa reynt að ná í Andra daginn eftir, á laugardeginum. Síminn hans hafi orðið eftir í íbúð Andra og Ingunnar og því hafi Halldór verið án síma. „Hann svaraði ekkert.“ Hann sé enn ekki kominn með símann og hafi haldið á sjó á mánudeginum eftir umrædda helgi. Hins vegar hafi hann fengið skilaboð frá Andra um að hann hefði átt að hafa misst af einhverju. „Hann sendi einhverja mynd sko, það var af einhverri peningaupphæð og sagði svo að ég hefði misst af einhverju,“ segir Halldór.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Tengdar fréttir Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. 17. ágúst 2026 07:35 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira
Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. 17. ágúst 2026 07:35