Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. mars 2026 22:31 Vettvangur meintrar frelsissviptingar, líkamsárásar og fjárkúgunar í Reykholti. Vísir Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi.
Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum er atburðarásinni lýst auk ofbeldisins sem hópurinn á að hafa beitt manninn. Fjögur voru handtekin árið 2024, karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins. Yngsti sakborningurinn er ekki orðinn tvítugur. Sjá nánar: Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Vert er að vara við grófum lýsingum á ofbeldi hér fyrir neðan. Þrjú þeirra eru sögð hafa ráðist inn á heimili maltneska karlmannsins í Reykholti föstudaginn 19. apríl, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með höggum og spörkum. Eitt þeirra sneri upp á fingur hans svo hann brotnaði og annað tók um háls og höfuð mannsins og sneri upp á líkama hans. Þau eiga að hafa reynt að koma manninum inn í bíl sem stóð fyrir utan en hann náð að hlaupa burt. Eitt þeirra elti hann og felldi niður í jörðina auk þess sem einn ákærðra sparkaði í höfuð og líkama hans. Í framhaldinu var maðurinn dreginn inn í húsið, bundinn á höndum og fótum. Markmið þeirra ákærðu, samkvæmt ákærunni, var að fá hann til að gefa upp rafræn skilríki og upplýsingar um bankareikninga hans. Hótað með vélsög og að henda honum útbyrðis Á laugardagsmorgun eiga tveir aðrir að hafa mætt, sem eru meðal ákærðra, og haldið honum áfram á heimili sínu fram til mánudags. Á þeim tíma beittu þau hann ítrekuðu ofbeldi, hótuðu honum líkamsmeiðingum og lífláti. Maltneski karlmaðurinn á að hafa verið sleginn ítrekað með hnúajárni og honum ógnað með hníf og haglabyssu. Þá var honum einnig hótað að hann yrði skorinn á háls eða skotinn í höfuðið. Þá segir í ákærunni að honum hafi verið hótað með keðjusög og að farið yrði með hann á bát til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis. Sá sem stóð í hótununum á einnig að hafa farið í útibú Landsbankans til að fá upplýsingar um hvernig hann gæti fengið aðgang að bankareikningi mannsins án hans aðkomu. Á mánudeginum hafi maðurinn síðan verið fluttur nauðugur í útibú Símans við Ármúla og fenginn til að setja upp rafræn skilríki í síma. Honum hafi síðan verið ekið um höfuðborgarsvæðið. Millifærði tæpar átján milljónir Svo segir í ákærunni að einn ákærðra hafi yfirgefið bílinn og keypt flugmiða í nafni karlmannsins frá Íslandi til Frakklands og svo þaðan til Möltu í nafni maltneska karlmannsins. Þá á ákærði að hafa millifært alls 17.660.000 krónur, þar á meðal átta og hálfa milljón króna á bankareikninga í sinni eigu. Restin var millifærð á reikninga í eigu þriggja ákærðra. Að því loknu eiga þrír ákærðu að hafa fylgt karlmanninum upp á Keflavíkurflugvöll, afhent honum fartölvu og síma með flugmiðunum og sagt honum að dóttur mannsins yrði gert mein ef hann myndi ekki ferðast til Möltu. Maðurinn fór að fyrirmælunum en rannsókn lögreglu hófst eftir að þeim barst tilkynning um að ekki hefði náðst í manninn í nokkra daga. Tveimur dögum síðar bárust lögreglu upplýsingar um að maðurinn hefði fundist illa haldinn á Möltu. Í ákærunni kemur fram að vegna áverkanna hafi maðurinn meðal annars hlotið blæðingu í framheila, mar í kringum hægra auga, brot í nefbeini, bólgu á hægri kjálka, brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, tapað fimmtán tönnum, mar við vanga og á hálsi, fjögur rifbeinsbrot og mar víðs vegar um líkamann. Málið verður þingfest um miðjan mars.
Fjárkúgun í Reykholti Lögreglumál Bláskógabyggð Dómsmál Tengdar fréttir Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. 4. mars 2026 18:49 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. 4. mars 2026 18:49