Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. Innlent 17.8.2026 13:24
Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Innlent 17.8.2026 07:35
Þrír handteknir á Þingvöllum Þrír voru handteknir af lögreglunni á Suðurlandi grunaðir um vasaþjófnað á Þingvöllum. Þar með bætist í hóp grunaðra vasaþjófa. Innlent 10.8.2026 12:26
Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Íbúi á Laugarvatni brýnir fyrir eigendum hunda að tilkynna þá þegar þeir týnast í sveit sem borg. Þeir beri ábyrgð á að koma dýrum sínum ekki í aðstæður eins og sköpuðust á Lyngdalsheiði. Að minnsta kosti ein kind er illa særð og óttast að fleiri hafi orðið illa úti. Innlent 22. júlí 2026 11:43
Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast. Innlent 17. júlí 2026 13:12
Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra. Innlent 9. júlí 2026 15:00
Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll. Innlent 4. júlí 2026 12:30
Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Lögregla á Suðurlandi handtók um nýliðna helgi mann í Reykholti vegna ræktunar kannabis. Innlent 29. júní 2026 14:47
„Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ „Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu. Innlent 21. júní 2026 09:13
Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. Innlent 20. júní 2026 22:10
Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna. Lífið 20. júní 2026 15:49
Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt. Innlent 20. júní 2026 14:38
Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni. Tónlist 20. júní 2026 14:16
Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Von er á rjómablíðu á Þingvöllum þar sem tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram. Tónlist mun óma um svæðið til miðnættis og verður hápunktinum útvarpað í beinni á Bylgjunni. Lífið 20. júní 2026 13:21
Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Allt er að verða tilbúið fyrir stórtónleika Kaleo sem fara fram á morgun. Meðlimir Kaleo hvetja gesti til að skemmta sér fallega og skora á Bubba Morthens að taka sér pásu frá laxveiði til að kíkja á hátíðina. Innlent 19. júní 2026 21:01
Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Ásta Stefánsdóttir hefur verið endurráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Ásta hefur gegnt stöðunni síðastliðin átta ár. Ný sveitarstjórn kom í vikunni saman á sínum fyrsta fundi. Innlent 6. júní 2026 14:29
Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Tveir jarðskjálftar að stærð 3,8 og 3,3 mældust rétt norðvestur af Þórisjökli um klukkan 23:08 í kvöld. Um er að ræða stærstu skjálfta sem mælst hafa á þessu svæði frá því í maí 2008. Innlent 4. júní 2026 00:44
Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Séra Kristján Björnsson lét af embætti vígslubiskups í Skálholti eftir að kona sem tengist honum fjölskylduböndum kærði hann fyrir kynferðisbrot til Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 29. maí 2026 16:00
Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki. Lífið 28. maí 2026 16:40
Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Lokatölurnar í Bláskógabyggð eru nauðalíkar þeim sem komu upp úr kjörkössunum í síðustu kosningum 2022. Bilið á milli T-listans og Þ-listans minnkaði um einhver rúmlega tvö prósentustig en kemur niður á sömu skiptingu fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 02:37
Sterkur rekstur og skýr sýn Rekstur og traust fjárhagsstaða eru meðal mikilvægustu þátta í stjórnun hvers sveitarfélags. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur nú lokið fyrri umræðu um ársreikning ársins 2025 og sýna niðurstöðurnar skýrt að reksturinn hefur verið traustur og stýrt af ábyrgð. Skoðun 8. maí 2026 13:32
Hvert stefnir Bláskógabyggð? Í minni sveitarfélögum hefur rödd hvers og eins íbúa meira vægi en víða annars staðar. Því er mikilvægt að virkt íbúasamráð í sveitarfélögum eins Bláskógabyggð sé til staðar. Íbúasamráð snýst um meira en að kjósa fulltrúa í sveitarstjórn. Það felur í sér virkt samtal, gagnsæi og raunverulegt tækifæri fyrir fólk til að hafa áhrif. Skoðun 21. apríl 2026 07:01
Fjársjóðurinn í matarkistunni Matur er á vörum okkar daglega, enda grunnurinn að heilsu okkar og næringu. Þá væru viðburðir, samkomur og fjölskylduboð lítilfjörleg án hans. Matur er allt í kring um okkur og með auknum ferðamanna straumi hefur norræn og íslensk matarmenning fengið byr undir báða vængi og hróðurinn farinn að berast um allan heim. Skoðun 19. apríl 2026 12:31
Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Einstaklingur slasaðist á fæti þegar hann lenti í gjótu við Davíðsgjá í Þingvallavatni í gærkvöld. Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi og komu á staðinn um áttaleytið. Þá var hann með talsverðar blæðingar en hann var hluti af hópi sem var við sund í Davíðsgjá. Innlent 18. apríl 2026 11:46