Fram - ÍBV 2-0

Fram skoraði úr sinni fyrstu alvöru sókn. Már Ægisson komst þá upp að endamörkum hægra megin og gaf hættulega sendingu fyrir markið, boltinn skoppaði ekki af einum heldur tveimur Eyjamönnum áður en hann féll fyrir Frey Sigurðsson sem að kláraði færið vel á nærstöng. Framarar gengu á lagið og bættu öðru marki við á 28. mínútu. Vuk og Fred spiluðu fallegan þríhyrning upp við vítateiginn og Vuk braust inn á teiginn og lagði boltann fyrir fætur Jakob Byström. Skot hans var varið en hann náði frákastinu sjálfur og setti boltann þægilega í netið.

381
00:58

Vinsælt í flokknum Besta deild karla