Andlát í Goliath-rússíbana í Six Flags
Einn maður er látinn og nokkrir slösuðust í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Six Flags Over Georgia í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Lögreglan í Cobb-sýslu rannsakar nú dauðsfallið og orsök slyssins. Í myndbandinu, sem er frá AP-fréttaveitunni, má sjá að rússíbaninn var stöðvaður miðja vegu og aðstoða þurfti gesti úr honum.