Icelandair aflýsir öllu flugi til og frá landinu eftir hádegi

Icelandair hefur aflýst öllu flugi til og frá landinu eftir hádegi í dag og í fyrramálið vegna veðurs. Öllu innanlandsflugi hefur einnig verið aflýst en djúp lægð fer yfir landið í dag og morgun. Búast má við hríðarveðri á vestanverðu landinu í dag og ættu borgarbúar að fara sér hægt á leið heim úr vinnu í dag.

2
02:40

Vinsælt í flokknum Fréttir