Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Kristján Már Unnarsson skrifar 1. nóvember 2026 06:36 Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum, segir frá aftöku Friðriks og Agnesar á Þrístöpum. Fyrir aftan má sjá afsteypu af öxinni sem notuð var. Egill Aðalsteinsson Staðurinn þar sem þau Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin árið 1830, Þrístapar í Vatnsdalshólum, er orðinn áningarstaður ferðamanna, jafnt Íslendinga sem útlendinga. En svo er einnig um aðra sögustaði síðustu aftöku á Íslandi.
Í þættinum Um land allt á Sýn+ eru slóðir þessara dimmu atburða í Húnavatnssýslum fyrir nærri tvöhundruð árum heimsóttar og rætt við heimamenn. Á aftökustaðnum Þrístöpum fer Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrum bóndi á Sveinsstöðum, yfir söguna en hann ritaði bókina „Öxin, Agnes og Friðrik“ um atburðina. Aftakan þótti svakaleg. „Björn Blöndal sýslumaður ætlaði að gera þetta þannig að menn myndu eftir þessu. Hann knúði Guðmund Ketilsson, bróður Natans, til að vera böðul. Hann fór í verkið og hjó svo fast og svo örugglega að þegar haus var höggvinn af Friðriki þá þurfti tvo menn til þess að ná öxinni upp úr höggstokknum, svo fast fylgdi hann eftir högginu,“ segir Magnús í þættinum en Þrístapar eru í landi Sveinsstaða. Þátturinn var frumsýndur síðastliðinn miðvikudag. Hann verður endursýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 15. Ábending sem sögð var komin frá miðli 104 árum eftir aftökuna leiddi til þess að bein Agnesar og Friðriks voru árið 1934 flutt frá Þrístöpum og jarðsett í kirkjugarðinum að Tjörn á Vatnsnesi. Hér má sjá kafla þar sem þessum sérkennilega atburði er lýst í þættinum: Þau Friðrik og Agnes voru dæmd til dauða fyrir morð á tveimur mönnum, Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni. Morðin voru framin tveimur árum áður á bænum Illugastöðum á Vatnsnesi en þar bjó Natan. Það gleymist stundum í sögunni að önnur kona var einnig dæmd til lífláts og talin meðsek, Sigríður Guðmundsdóttir. Hún var aðeins 16 ára þegar morðin voru framin. Agnes og Sigríður voru báðar vinnukonur hjá Natani á Illugastöðum. Danakonungur breytti hins vegar dauðadómi Sigríðar í lífstíðarfangelsi. Bændurnir á Tjörn á Vatnsnesi, þau Olga Lind Geirsdóttir og Baldur Heimisson. Í kirkjugarðinum eru grafir þeirra Agnesar og Friðriks, sem voru líflátin fyrir morðin, en einnig Natans og Péturs, þeirra sem voru myrtir á Illugastöðum.Egill Aðalsteinsson Nokkrar íslenskar bækur hafa verið skrifaðar um málið og María Ellingsen lék Agnesi í kvikmynd frá árinu 1995, sem Pegasus og Snorri Þórisson framleiddu en Egill Eðvarðsson leikstýrði, og byggð er á þessum atburðum. Málið var samt lítt þekkt utan Íslands fyrr en ástralskur rithöfundur, Hannah Kent, sem dvalið hafði í Skagafirði sem skiptinemi, skrifaði skáldsögu um Agnesi. Bókin kom út árið 2013, varð metsölubók á enskri tungu undir heitinu Burial Rites og fékk titilinn Náðarstund í íslenskri þýðingu. Ástralski rithöfundurinn Hannah Kent ritaði skáldsöguna Burial Rites, sem byggð er á sögu Agnesar. Í íslenskri þýðingu hlaut bókin heitið Náðarstund. Bókin varð alþjóðleg metsölubók, hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og selst í mörghundruð þúsund eintökum. Kvikmyndarétturinn seldist fyrir háa fjárhæð og búið var að kynna að Jennifer Lawrence ætti að leika Agnesi. Covid-heimsfaraldurinn varð hins vegar til þess að kvikmyndatökum var slegið á frest og síðan hefur lítið frést af þeim áformum. Skúli Thoroddsen, eigandi sýslumannshússins að Kornsá í Vatnsdal. Agnes ólst að hluta upp á Kornsá og þar var hún höfð í haldi síðustu mánuði fyrir aftökuna.Egill Aðalsteinsson Skáldsaga Hönnu Kent leiddi til þess að fjöldi ferðamanna hóf að koma víða að úr heiminum til að skoða sögusviðið. Eigendur Illugastaða á Vatnsnesi eru meðal viðmælenda þáttarins, einnig bændur á Tjörn á Vatnsnesi sem sýna okkur gröf þeirra Friðriks og Agnesar og einnig staðinn þar sem talið er að þeir Natan Ketilsson og Pétur Jónsson séu grafnir. Bæirnir Kornsá, Vatnsdalshólar og Hvammur í Vatnsdal eru heimsóttir, sem og Þingeyrar og Steinnes.
Um land allt Sýn Bíó og sjónvarp Dómsmál Húnaþing vestra Húnabyggð Tengdar fréttir Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi. 28. október 2026 06:00 Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. 2. júlí 2026 09:12 Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið. 26. október 2026 20:22 Agnes hlyti í dag fjórtán ára dóm fyrir morðið á Natan Refsidómur í hinu fræga morðmáli Natans Ketilssonar yrði mildaður til muna ef réttað væri í málinu með nútímaréttarfari. Agnes Magnúsdóttir hlyti fjórtán ára fangelsisdóm í stað dauðadóms, Friðrik Sigurðsson hlyti sjö ára fangelsisdóm og lengd fangelsisdóms Sigríðar Guðmundsdóttur væri fimm ár. 9. september 2017 19:09 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira
Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi. 28. október 2026 06:00
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. 2. júlí 2026 09:12
Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið. 26. október 2026 20:22
Agnes hlyti í dag fjórtán ára dóm fyrir morðið á Natan Refsidómur í hinu fræga morðmáli Natans Ketilssonar yrði mildaður til muna ef réttað væri í málinu með nútímaréttarfari. Agnes Magnúsdóttir hlyti fjórtán ára fangelsisdóm í stað dauðadóms, Friðrik Sigurðsson hlyti sjö ára fangelsisdóm og lengd fangelsisdóms Sigríðar Guðmundsdóttur væri fimm ár. 9. september 2017 19:09