Erlent

Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti funduðu í New York um miðjan september síðastliðinn.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti funduðu í New York um miðjan september síðastliðinn. AP/Julia Demaree Nikhinson

Bandaríkjastjórn hefur samþykkt sölu á fimm hundruð Patriot-eldflaugum til Úlraínumanna en Patriot-varnarkerfið er Úkraínumönnum nauðsynlegt í vörnum sínum gegn rússneskum skotflaugum. 

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði að flaugarnar yrðu alfarið fjármagnaðar með framlögum frá Kanada, Noregi og Þýskalandi auk láni frá Evrópusambandinu, segir í umfjöllun Reuters. Bandaríkin tæku ekki þátt í fjámögnun kaupanna. Salan er metin á um 2,1 milljarð bandaríkjadala eða X íslenskra króna. 

Volodímír Selenskí Úkraínuforseti varaði við því að mörg ár gætu tekið fyrir flaugarnar að berast til Úkraínumanna, að því er kemur fram í frétt BBC. Hann hefur ítrekað að Bandaríkin afhendi flaugarnar með hraði en þær séu eina vörn Úkraínu gegn loftárásum Rússa.

Sjá einnig: Bað Trump um „vetrarpakka“

Stirt hefur verið á milli Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Selenskís á síðustu vikum. Trump tilkynnti meðal annars dísilsamning við Rússland og hefur ítrekað gagnrýnt ​Selenskí fyrir árásir Úkraínuhers á rússneska orkuinnviði.


Tengdar fréttir

Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð

Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði.

Ræddu 

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×